Laun forstjóra Icelandair hækkuðu um næstum helming milli ára þrátt fyrir yfir 13 milljarða tap

Þrátt fyrir að Icelandair Group hafi tapað 13,7 millj­örðum króna í fyrra hækk­uðu laun for­stjóra félags­ins um næstum helm­ing á árinu. Icelandair Group hefur fengið millj­arða úr opin­berum sjóðum til að koma sér í gegnum far­ald­ur­inn.

Bogi Nils Bogason, for­stjóri Icelandair Group, fékk 518 þús­und Banda­ríkja­dali í laun og hlunn­indi á síð­asta ára. Á árs­loka­gengi árs­ins 2021 eru það 67,5 millj­ónir króna eða 5,6 millj­ónir króna á mán­uði. Til við­bótar fékk Bogi Nils 119,6 þús­und Banda­ríkja­dali í líf­eyr­is­greiðslur, eða 15,6 millj­ónir króna á ofan­greindu gengi. Það þýðir að laun, hlunn­indi og líf­eyr­is­greiðslur hans á síð­asta ári voru sam­tals 83,1 millj­ónir króna, eða rúm­lega 6,9 millj­ónir króna að með­al­tali á mán­uði.

Þetta kemur fram í árs­reikn­ingi Icelandair Group sem birtur var í síð­ustu viku.

Laun Boga hækk­uðu umtals­vert milli ára. Hann var með 355 þús­und Banda­ríkja­dali í laun á árinu 2020 og fékk þá 76 þús­und Banda­ríkja­dali í líf­eyr­is­sjóðs­greiðslur frá félag­inu. Þegar þessar tölur eru umreikn­aðar í íslenskar krónur á árs­loka­gengi síð­asta árs þýða þær að laun og hlunn­indi Boga voru 46,3 millj­ónir króna á árinu 2020, eða tæp­lega 3,9 millj­ónir króna á mán­uði, og líf­eyr­is­sjóðs­greiðsl­urnar alls 9,9 millj­ónir króna. Samtals voru laun, hlunn­indi og líf­eyr­is­sjóðs­greiðslur Boga á árinu 2020 því 56,2 millj­ónir króna miðað við árs­loka­gengi 2021, eða 4,7 millj­ónir króna á mán­uði.

Laun, hlunn­indi og líf­eyr­is­sjóðs­greiðslur Boga hækk­uðu því um 48 pró­sent, eða næstum helm­ing, í Banda­ríkja­dölum talið milli ára.

Kjarninn sendi fyr­ir­spurn til Icelandair Group vegna máls­ins og óskaði eftir útskýr­ingum á launa­hækkun for­stjóra. Í svari upp­lýs­inga­full­trúa félags­ins segir að breyt­ing­una megi „lang­mestu leyti rekja til þess að á árinu 2020 tók for­stjóri á sig 30 pró­sent launa­lækkun stærstan hluta árs­ins. Þess má geta í þessu sam­hengi að árs­reikn­ingur félags­ins er í USD en öll laun á Íslandi, þ.m.t. for­stjóra eru greidd í íslenskum krónum. Með­al­gengi íslensku krón­unnar gagn­vart USD styrkt­ist á milli ára og ýkir það hækk­un­ina í árs­reikn­ingnum.“

Gengi íslensku krón­unnar gagn­vart Banda­ríkja­dal veikt­ist um 2,5 pró­sent á síð­asta ári.

Í skýrslu til­nefn­inga­nefndar Icelandair Group, sem var birt í Kauphöll Íslands í gær, segir að það sé við­var­andi áhætta fyrir félagið að lyk­il­starfs­menn hætti þar sem þeir fá ekki nægi­lega vel greitt fyrir störf sín, en þrír úr fram­kvæmda­stjóri Icelandair Group hafa hætt störfum frá síð­asta aðal­fundi. Í við­tölum sem nefndin tók við stjórn­endur og stjórn­ar­menn í félag­inu kom fram að þeir teldu þörf á „sterk­ari varð­veislu­á­ætlun ásamt end­ur­skoð­uðu starfs­kjara­fyr­ir­komu­lagi æðstu stjórn­enda“.

Sagði launahækkanir hér á landi „algjörlega út úr kortinu“

Bogi hefur tjáð sig um launa­mál með nokkuð afger­andi hætti á und­an­förnum árum. Í maí í fyrra var hann til að mynda gestur Dagmála í sjón­varpi mbl.is þar sem kjara­mál voru rædd. Þar sagði Bogi meðal ann­ars: „Launa­hækk­an­ir hér á Íslandi hafa verið, leyfi ég mér að segja, al­gjör­lega út úr kort­inu miðað við sam­keppn­islönd­in. Síðustu tólf mán­uði hafa þetta verið ríf­lega tíu pró­sent á árs­grund­velli meðan við erum að horfa upp á núll til tvö pró­sent hjá sam­keppn­islönd­un­um. Þannig að þetta verður alltaf mjög krefj­andi verk­efni fyr­ir ís­lensk fyr­ir­tæki að standa í þess­ari sam­keppni en við erum að vinna í þessu mód­eli, þessu ís­lenska mód­eli þannig að tekju­mód­elið verður að end­ur­spegla það.“

Sumarið 2020 stóðu yfir harðar kjara­deilur milli Icelandair Group og starfs­manna félags­ins, sér­stak­lega flug­freyja og -þjóna. Sam­stæðan fór fram á að starfs­menn að laun og rétt­indi þeirra myndu skerð­ast. Þegar að flug­freyjur og flug­þjónar höfn­uðu samn­ingi þess efnis hót­aði Icelandair að ráða starfs­fólk úr öðru stétt­ar­fé­lagi. Um samd­ist að lokum.

Í jan­úar 2022 dæmdi Félags­dómur Flug­freyju­fé­lagi Íslands í vil í ágrein­ingi við Icelandair Group. Málið snérist um það hvort starfs­aldur ætti að ráða þegar Icelandair end­ur­réði flug­freyjur sem sagt var upp starfi sum­arið 2020. Icelandair sagði upp 95 pró­sent flug­freyja á meðal að á kjara­við­ræð­unum stóð og sam­kvæmt dómi Félags­dóms bar Icelandair að fara eftir starfs­aldri þegar félagið aft­ur­kall­aði upp­sagnir flug­freyja og flug­þjóna. Það gerði sam­stæðan ekki.

Tapað nærri 80 milljörðum króna á fjórum árum

Icelandair Group tap­aði 13,7 millj­örðum króna á árinu 2021 miðað við gengi krónu í lok þess árs en félagið gerir upp í Banda­ríkja­döl­um. Þar af tap­aði félagið 5,1 millj­arði króna á síð­ustu þremur mán­uðum árs­ins. Elds­neyt­is­verð á síð­asta árs­fjórð­ungi árs­ins var að með­al­tali tólf pró­sent hærra en á þriðja árs­fjórð­ungi og 91 pró­sent hærra en á fjórða árs­fjórð­ungi árið á undan og hafði þar af leið­andi umtals­verð áhrif á afkomu Icelandair Group. EBIT, afkoma félags­ins fyrir fjár­magns­gjöld og skatta á fjórða árs­fjórð­ungi batn­aði veru­lega milli ára og var sú besta frá árinu 2016.

Rekstr­ar­tap á síð­asta ári var 17,7 millj­arðar króna, en end­an­legt tap dróst saman vegna þess að aðrar tekjur voru jákvæð­ar. Þar á meðal voru sala eigna, í Iceland Travel og Icelandair Hotels, og tekju­færsla vegna reikn­aðra vaxta á vaxta­lausri frestun á greiðslu skatta.

Tap Icelandair Group á árinu 2020 var 51 millj­­arður króna, árið 2019 tap­aði það 7,8 millj­­arðar króna og á árinu 2018 var tapið um 6,8 millj­­arðar króna. Því hefur sam­­stæðan tapað yfir 79 millj­­örðum króna á síð­­­ustu fjórum árum.

Hefur fengið milljarða úr ríkissjóði til að takast á við faraldurinn

Ekkert eitt félag hefur fengið meiri fyr­ir­greiðslu úr hendi hins opin­bera frá því að kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn skall á en Icelandair Group.

Engin sam­steypa nýtti til að mynda hluta­bóta­leið­ina af meiri krafti þegar henni var komið á í upp­hafi far­ald­urs. Alls setti Icelandair 92 pró­­sent allra starfs­­manna sinna í minnkað starfs­hlut­­fall í mars 2020. Í mars og apríl það ár fengu launa­menn hjá þeim félögum sem mynda Icelandair-­sam­stæð­una alls um 1,1 millj­arð króna í greiðslur frá Vinnu­mála­stofnun vegna minnk­aðs starfs­hlut­falls. Icelandair nýtti leið­ina lengur en tölur um heild­ar­greiðslur til sam­stæð­unnar vegna þessa hafa ekki verið birtar.

Félagið var líka í sér­flokki þegar kom að því að þiggja svo­kall­aða upp­sagn­ar­styrki. Styrkirnir hjálpa fyr­ir­tækjum að segja upp fólki án mik­ils kostn­aðar fyrir þau vegna greiðslu upp­sagn­ar­frests. Icelandair Group, og tengd félög, hafa fengið alls 4,7 millj­arða króna í slíka frá því í maí 2020. Alls hafa verið greiddir úr um 12,1 millj­arðar króna í upp­sagn­ar­styrki. Það þýðir að 39 pró­sent heild­ar­styrkj­anna hafa runnið til einnar fyr­ir­tækja­sam­stæðu, Icelandair Group.

Tekjufallsstyrkir, vaxtalaus lán og ríkisábyrgð

Í árs­reikn­ingi Icelandair Group vegna árs­ins 2021 segir að félagið hafi líka fengið 195,6 millj­ónir króna í tekju­falls­styrki auk þess sem sam­stæðan

hefur líka nýtt sér úrræði stjórn­valda um að fresta skatt­greiðslum og trygg­ing­ar­gjaldi sem félagið hefur dregið af starfs­fólki. Heild­ar­upp­hæðin sem félagið hefur frestað greiðslu á er 9,3 millj­ónir Banda­ríkja­dala, eða 1,2 millj­arðar króna. Þessi lán vera enga vexti en Icelandair Group reiknar þann vaxta­kostnað sem félagið sparar sér til tekna upp á alls 365 millj­ónir króna.

Vélar Icelandair fengu nýverið nýtt útlit.
Vélar Icelandair fengu nýverið nýtt útlit.

Til við­bótar hefur Icelandair Group aðgengi að lána­línum upp á 22,4 millj­arða króna. Uppi­staðan af þeirri upp­hæð var lána­lína hjá Íslands­banka, 65 pró­sent í eigu rík­is­ins, og Lands­bank­anum, að öllu leyti í eigu rík­is­ins, sem íslenska ríkið ábyrgð­ist að 90 pró­sent leyti. Aldrei hefur verið dregið á umræddar lána­línur og Icelandair Group til­kynnti í gær að það hefðisagt upp lána­lín­unni með rík­is­á­byrgð­inni.

Sótti sér tvisvar nýtt hlutafé upp á meira en 30 milljarða

Icelandair Group fór tví­vegis í hluta­fjár­aukn­ingu eftir að kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn skall á. Félagið safn­aði alls 23 millj­­örðum króna í útboði sem fór fram í sept­­em­ber 2020, en við það þynnt­ust hlut­hafar niður um meira en 80 pró­sent. Stærstir í þeim hópi voru íslenskir líf­eyr­is­sjóðir. Almenn­ingur tók mik­inn þátt í þess­ari aukn­ingu og hlut­höfum í Icelandair Group fjölg­aði um sjö þús­und. Hlut­höfum hefur haldi áfram að fjölga síðan og um síð­ustu ára­mót voru þeir orðnir 15.287, sem er 1.779 fleiri en árið áður.

Allir sem tóku þátt í útboð­inu haustið 2020 þynnt­ust svo niður sum­arið 2021 þegar Icelandair Group gerði bind­andi sam­komu­lag við banda­ríska fjár­­­fest­ing­­ar­­sjóð­inn Bain Capital um að hann keypti nýtt hlutafé í flug­­­fé­lag­inu. Sam­­kvæmt sam­komu­lag­inu greiddi Bain Capital 8,1 millj­­arð króna og eign­að­ist fyrir vikið 16,6 pró­­sent hlut í Icelandair Group. Bain Capital átti 15,7 pró­sent hlut í Icelandair Group um síð­ustu ára­mót og var lang stærsti eig­andi félags­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugmál

Mest lesið undanfarið ár