Starfsfólk Icelandair taki á sig 10 prósent launaskerðingu

Icelandair hefur óskað eftir því að starfs­fólk fyr­ir­tæk­is­ins taki á sig 10 pró­sent launa­skerð­ingu eða 10 pró­sent skert starfs­hlut­fall í júní og júlí. Laun for­stjóra og stjórnar munu skerð­ast sem og laun fram­kvæmda­stjóra.

Það starfs­fólk sem áfram starfar hjá Icelandair Group og flestum dótt­ur­fé­lögum fær­ist flest í fyrra starfs­hlut­fall frá og með 1. júní. Þó hefur verið óskað eftir því að það starfs­fólk taki á sig 10 pró­sent launa­skerð­ingu eða 10 pró­sent skert starfs­hlut­fall í júní og júlí. Laun for­stjóra og stjórnar munu áfram skerð­ast um 30 pró­sent og laun fram­kvæmda­stjóra um 25 pró­sent.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Icelandair sem send var út í dag.

„Icelandair Group hefur síð­ustu tvenn mán­aða­mót gripið til yfir­grips­mik­illa aðgerða sem fólu í sér veru­legar upp­sagnir og breyt­ingar á skipu­lagi félags­ins. Á sama tíma hefur félagið lagt ríka áherslu á að halda uppi grunn­starf­semi á öllum sviðum og tryggja þar með nauð­syn­legan sveigj­an­leika til að geta brugð­ist hratt við um leið og mark­aðir opn­ast á ný og eft­ir­spurn eftir flugi og ferða­lögum mynd­ast. Í maí­mán­uði hafa lang­flestir starfs­menn félags­ins verið í skertu starfs­hlut­falli í sam­ræmi við hluta­bóta­leið stjórn­valda. Aðrir hafa verið í fullu starfi með skert laun,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Eftir að hafa skoðað málið gaum­gæfi­lega sé nið­ur­staðan sú að hluta­bóta­leið stjórn­valda muni ekki eiga við lengur í starf­semi Icelandair Group frá og með 1. júní, nema hjá Iceland Travel. Mark­miðið með úrræði stjórn­valda sé skýrt – að við­halda ráðn­ing­ar­sam­bandi þar sem verk­efnum hafi fækkað veru­lega. Nú sé svo komið að félagið þurfi á meira vinnu­fram­lagi að halda en síð­ustu mán­uði.

[adspot]

Þurfa fleiri hendur

Bogi Nils Bogason, for­stjóri Icelandair Group, segir í til­kynn­ing­unni að til þess að geta und­ir­búið og hafið sókn af fullum krafti, þurfi félagið nú fleiri hendur á dekk. „Það er í mörg horn að líta enda krefst und­ir­bún­ingur fyrir opnun lands­ins mik­illar vinnu varð­andi flug­á­ætlun, sölu- og mark­aðs­mál, þjón­ustu og útfærslu sótt­varna. Á sama tíma hefur verið aukn­ing verk­efna í frakt- og leiguflugi, auk þess sem sinna þarf við­haldi á þeim hluta flug­flota félags­ins sem er kyrr­settur. Þar að auki koma margar deildir að þeirri vinnu sem er nú í fullum gangi vegna fjár­hags­legrar end­ur­skipu­lagn­ingar félags­ins. Við viljum hafa sem flesta í fullu starfi eftir því sem hægt er og von­umst til þess að starfs­menn komi til móts við beiðni okkar um skert launa- eða starfs­hlut­fall á meðan við komumst yfir erf­ið­asta hjall­ann.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár