„Almennt má segja að skólastarf hafi gengið ágætlega frá skólabyrjun“

Ríkis­stjórnin ræddi skóla­starf í leik- og grunn­skólum haustið 2021 vegna COVID-19 á ríkis­stjórnar­fundi í morgun.

Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra.
Lilja Alfreðs­dóttir, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

„Almennt má segja að skóla­starf hafi gengið ágætlega frá skóla­byrjun. Áherslan hefur verið á sem eðlilegast skóla­starf eins og kostur er á öllum skóla­stigum, og almennt hefur ekki verið mikið um smit í mörgum leik- og grunn­skólum á landsvísu, þó vissulega hafi nokkrir skólar í Reykjavík og Akureyri þurft að glíma við endur­tekin smit.“

Þetta kemur fram í svari mennta- og menningar­mála­ráðuneytisins við fyrir­spurn Kjarnans en Lilja Alfreðs­dóttir ráðherra mennta­mála lagði fram minnis­blað á ríkis­stjórnar­fundi í morgun þar sem farið yfir hvernig skóla­starf í leik- og grunn­skólum hefði gengið í haust.

Í svarinu segir að nýlega hafi ráðuneytið óskað eftir upplýsingum frá stærstu sveitar­félögunum um hvernig framkvæmd skóla­starfs hafi verið til þessa hjá þeim.

„Af svörum þeirra að dæma er lagt mikið upp úr því að fara í einu og öllu eftir ráðleggingum smit­rakningar­teymis og að vinna eftir þeim leið­beiningum sem gefnar voru út í ágúst. Einnig hefur fram komið í máli sveitar­félaga að skapast hefur umtals­vert álag á stjórn­endur skóla í tengslum við ábyrgð á smit­rakningu innan hvers skóla en afar knappur tími hefur verið ætlaður í þá vinnu, og hefur hún oft farið fram á kvöldin,“ segir í svari ráðuneytisins.

Í kjölfarið átti sóttvarnar­læknir fund með fulltrúum mennta- og menningar­mála­ráðuneytis, heilbrigðis­ráðuneytis, almanna­vörnum, fulltrúum fræðslu­skrifstofa sveitar­félaga og rakninga­teymis í lok síðustu viku.

Samkvæmt ráðuneytinu var farið yfir stöðu mála með það að markmiði að draga úr álagi innan skólanna tengdu smit­rakningum. Fram kemur í svarinu að einnig sé samráð haft við forystu skóla­stjórnenda og kennara. Horft verði til þess að stytta sóttkví og einangrun, efla upplýsinga­miðlun og ráðgjöf af hálfu almanna­varna og smit­rakningar­teymis til skóla, og styðja frekar við smit­rakningu. Í samráði við skóla­samfélagið og sóttvarnar­lækni verði því áfram unnið að skilvirkari og einfaldari framkvæmd sóttvarna­ráðstafana og smit­rakningar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteins­dóttir meðal gesta

Enn ein matar­sýking er komin upp eftir þorrablót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jökulsár­hlíð á Fljótsdals­héraði á laugar­daginn. Guðrún Hafsteins­dóttir, formanns­efni Sjálfstæðis­flokksins sótti blótið. Samkvæmt Austur­frétt eru Heilbrigðis­eftirlit Austurlans (HAUST) og Heilbrigðis­stofnun Austur­lands (HSA) að vinna að því að rekja uppruna matar­sýkingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laugardags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár