Boris Johnson boðar róttæka hjólreiðabyltingu í Bretlandi

Breska ríkis­stjórnin kynnti í gær stórhuga áform um lagningu hágæða hjóla­stíga í borgum og bæjum. Boris Johnson forsætis­ráðherra segir að allir græði á því er einn hjóli, líka þeir sem eru á bílum.

Nú þegar margir vilja ekki nota almenningssamgöngur vegna smithættu hefur breska stjórnin gengið á lagið og boðar umfangsmikla uppbyggingu hjólastíga í borgum og bæjum landsins.
Nú þegar margir vilja ekki nota almenn­ings­sam­göngur vegna smit­hættu hefur breska stjórnin gengið á lagið og boðar umfangs­mikla upp­bygg­ingu hjóla­stíga í borgum og bæjum lands­ins. Mynd: EPA

Breska ríkis­stjórnin kynnti í gær stórhuga áform um uppbyggingu hjóla­stíga, en til stendur að leggja þúsundir kílómetra af hágæða, öruggum hjóla­stígum á næstu árum. Boris Johnson forsætis­ráðherra segir að áætlunin sé upphafið að „róttækustu breytingum á borgunum okkar síðan að bílaöldin gekk í garð“. Þegar hafa tveir milljarðar punda, jafnvirði 350 milljarða íslenskra króna, verið eyrna­merktir verk­efninu.

Ítarlega er fjallað um málið í samgöngu­dálki viðskipta­blaðsins Forbes, og áformin eru þar sögð mjög lituð af áhrifum manns sem heitir Andrew Gilligan. Gilligan þessi er sérstakur samgöngu­mála­ráðgjafi breska forsætis­ráðherrans og starfaði einnig sem hjólreiða­fulltrúi Lundúna­borgar þegar Johnson var þar borgar­stjóri, en í borgar­stjóratíð hans var mikil áhersla lögð á bæta innviði fyrir reiðhjól.

Boris Johnson, sem sjálfur er vanur því að nýta reiðhjól sem farar­skjóta, segir að markmiðið með áætluninni sé að koma sem flestum á hjól svo breska þjóðin verði „heilbrigðari og aktívari“.

Það, segir Johnson, verður ekki gert án þess að réttir innviðir til hjólreiða séu til staðar, en einnig stendur til að veita fé í að þjálfa og styðja breska borgara til þess að veita fleirum tækifæri og sjálfs­öryggi til þess að byrja að ferðast um á reiðhjóli.

Gott fyrir alla að einn hjóli

„Kosturinn við hjól­reiðar er að þær gagnast ekki bara þér einum. Þær gera þig ekki bara hamingju­samari. Þær gera þig ekki bara heilbrigðari. Þær hjálpa nefnilega líka milljónum annarra, hvort sem að þeir ætla sér að setjast á hjól eða ekki. Þær þýða minni mengun og minni hávaða fyrir alla. Þær þýða meiri viðskipti fyrir búðirnar við göturnar. Þær þýða færri bíla fyrir framan þinn á umferðar­ljósum,“ ritar Johnson í formála kynningar­plaggs um áætlunina, sem ber hið táknræna heiti Gírskipting.

Stjórn Johnsons hyggst setja á fót sérstaka „rafhjóla­áætlun“, en samkvæmt Forbes er ekki alveg ljóst enn hvað mun felast í henni, hvort að um verði að ræða einhverskonar lánskerfi á landsvísu eða til dæmis kerfi eins og er á Ítalíu, þar sem rafhjól eru sérstak­lega niður­greidd.

Samgöngu­mála­ráðherra Bretlands, Grant Shapps, segir áformin „byltingar­kennd“ og að þau muni gera Englendinga að hjólreiða­þjóð. „Við höfum einstakt tækifæri til þess að breyta viðhorfum kynslóðum saman og til þess að fá fleiri til þess að gera hjól­reiðar eða göngu hluta af daglegri rútínu,“ segir Shapps, en undan­farna mánuði hefur breska stjórnin styrkt sveitar­félög og borgir til þess að auka pláss fyrir gangandi og hjólandi á götunum eftir að kórónu­veiru­faraldurinn gerði marga afhuga því að nota yfir­fullar almennings­samgöngur vegna smithættu.

Í umfjöllun Forbes segir að skipulags­fræðingar setji þó spurninga­merki við þær fjárhæðir sem þegar hafa verið eyrnar­merktar verk­efninu. Ef markmiðið sé að leggja þúsundir kílómetra af hjóla­stígum, eins og forsætis­ráðherra lofar, þurfi mun meira til en þá tvo milljarða punda sem þegar hefur verið heitið að leggja í verkefnið, ekki síst þar sem hluti fjár­munanna fari í aðra hluti en framkvæmdirnar. Þetta upphafsfé hljóti því að vera bara byrjunin.

Hágæðastígar, ekki bara málning á götur

Mikil áhersla verður lögð á að nýir hjólreiða­innviðir verði af háum gæðum, öruggir og aðskildir annarri umferð, en með Gírskiptingunni er verið að innleiða ný hönnunar­viðmið fyrir hjóla­stíga. Innviða­verkefni borga og sveitar­félaga sem ekki fara eftir þessum hönnunar­viðmiðum, til dæmis verkefni sem felast bara í því mála línur á umferðar­götur og kalla það hjóla­stíga, munu ekki verða styrkt.

Í Bretlandi er sérstakur ráðherra sem fer fyrir málefnum hjólreiða og göngu. Það er þingmaður Íhalds­flokksins, Chris Heaton-Harris. Hann segir brýnt að bæta gæði hjóla­stíga í landinu.

„Of mikið af innviðunum eru ófullnægjandi, veita litla vernd gegn umferð vélknúinna ökutækja og gefast upp á þeim stöðum þar sem mest þörf er á þeim. Sumir stígar eru jafnvel verri en ekkert, því þeir lokka til sín óreynda hjólreiða­menn með loforði um vernd en skilja þá svo eftir strand á mikil­vægustu stöðunum,“ ritar Heaton-Harris í formála skýrslu um ný hönnunar­viðmið stíga.

Þessu ætlar breska stjórnin að breyta og gera það auðveldara og öruggara að hjóla. Þá hjóla fleiri og á því græða allir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár