Meta hvort aðstoðarmanni ráðherra sé heimilt að sitja í stjórn Ríkisútvarpsins

Aðstoð­ar­maður dóms­mála­ráð­herra sem hóf störf í vik­unni situr einnig í stjórn Rík­is­út­varps­ins. Hann hefur til­kynnt for­sæt­is­ráðu­neyt­inu stjórn­ar­set­una sem mun meta hvort honum verði áfram heim­ilt að sitja í stjórn félags­ins.

Ingvar Smári Birgisson, aðstoðarmaður Jóns Gunnarssonar dómsmálaráðherra, á einnig sæti í stjórn RÚV.
Ingvar Smári Birg­is­son, aðstoð­ar­maður Jóns Gunn­ars­sonar dóms­mála­ráð­herra, á einnig sæti í stjórn RÚV. Mynd: Af vef Stjórnarráðsins

Ingvar Smári Birg­is­son, aðstoð­ar­maður dóms­mála­ráð­herra, hefur til­kynnt for­sæt­is­ráðu­neyt­inu um stjórn­ar­setu sína í Rík­is­út­varp­inu og „hafið sam­tal“ um hvort honum sé heim­ilt að sitja í stjórn félags­ins. Hann gerir ráð fyrir að boða vara­mann í sinn stað á stjórn­ar­fundi hjá Rík­is­út­varp­inu á meðan beiðnin er til með­ferðar hjá ráðu­neyt­inu.

Ingvar tók við af Teiti Birni Ein­ars­syni sem aðstoð­ar­maður Jóns Gunn­ars­sonar dóms­mála­ráð­herra fyrir helgi. Teitur Björn, sem hefur verið Jóni til aðstoðar frá því í febr­úar hefur verið ráð­inn aðstoð­ar­maður rík­is­stjórn­ar­innar, sem eru þá orðnir þrír tals­ins.

Síð­ast starf­aði Ingvar sem lög­fræð­ingur hjá Íslensku lög­fræði­stof­unni, en hann lauk meist­ara­prófi í lög­fræði frá Háskóla Íslands árið 2019 og fékk mál­flutn­ings­rétt­indi fyrir hér­aðs­dómi árið 2019. Fyrr á þessu ári tók Ingvar sæti í stjórn Rík­is­út­varps­ins, til­nefndur af Alþingi.

Forsætisráðuneytið kannar hvort stjórnarsetan stangist á við lög um varnir gegn hagsmunaárekstrum

Í sam­þykktum fyrir Rík­is­út­varpið er fjallað um skyldur stjórnar og stjórn­ar­manna þar sem segir að stjórn­ar­menn skuli „forð­ast hvers kyns hags­muna­á­rekstra.“ Ingvar segir að ákvæðið meini honum ekki að sitja í stjórn Rík­is­út­varps­ins en til skoð­unar sé hvort stjórn­ar­seta hans stang­ist á við lög um varnir gegn hags­muna­á­rekstrum í Stjórn­ar­ráði Íslands. Í lög­unum, sem tóku gildi í upp­hafi síð­asta árs, segir að störf æðstu stjórn­enda og aðstoð­ar­manna ráð­herra telj­ist full störf. Þeim sé óheim­ilt að sinna auka­störfum sam­hliða störfum í Stjórn­ar­ráði Íslands.

Ingvar segir í sam­tali við Kjarnann að hann verði í leyfi frá störfum sem lög­maður á meðan hann gegnir starfi aðstoð­ar­manns dóms­mála­ráð­herra. Þá hefur hann til­kynnt for­sæt­is­ráðu­neyt­inu um stjórn­ar­setu sína í Rík­is­út­varp­inu og mun skila inn beiðni um und­an­þágu til ráðu­neyt­is­ins á næstu dögum.

Samkvæmt lögum um varnir gegn hags­muna­á­rekstrum í Stjórn­ar­ráði Íslands getur for­sæt­is­ráð­herra veitt und­an­þágu „ef fyr­ir­hugað auka­starf telst til mann­úð­ar­starfa, kennslu- eða fræði­starfa, vís­inda­rann­sókna, list­sköp­unar eða ann­arra og til­fallandi starfa svo fremi að það hafi ekki áhrif á störf við­kom­andi í Stjórn­ar­ráði Íslands og greiðslur fyrir auka­störfin telj­ast innan hóf­legra marka“.

Beiðni um und­an­þágu skal afgreiða innan 30 daga frá því að hún berst. Ingvar segir í sam­tali við Kjarnann treysta for­sæt­is­ráðu­neyt­inu vel fyrir því að meta það gaum­gæfi­lega hvort seta hans í stjórn Rík­is­út­varps­ins flokk­ist sem hags­muna­á­rekstur. Þar til nið­ur­staða liggi fyrir gerir hann ráð fyrir því að boða vara­mann í sinn stað á stjórn­ar­fundi hjá Rík­is­út­varp­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár