Ingvar Smári leysir Teit Björn af hólmi hjá Jóni

Lög­fræð­ing­ur­inn Ingvar Smári Birg­is­son hefur verið ráð­inn nýr aðstoð­ar­maður dóms­mála­ráð­herra, í kjöl­far þess að Teitur Björn Ein­ars­son var ráð­inn yfir í stöðu aðstoð­ar­manns rík­is­stjórn­ar­innar.

Ingvar Smári Birgisson er nýr aðstoðarmaður Jóns Gunnarssonar.
Ingvar Smári Birg­is­son er nýr aðstoð­ar­maður Jóns Gunn­ars­sonar. Mynd: Af vef Stjórnarráðsins

Ingvar Smári Birg­is­son hefur verið ráð­inn aðstoð­ar­maður Jóns Gunn­ars­sonar dóms­mála­ráð­herra, en frá þessu var sagt í til­kynn­ingu frá dóms­mála­ráðu­neyt­inu í dag. Áður hafði verið greint frá því að Teitur Björn Ein­ars­son sem hafði verið Jóni til aðstoðar frá því í febr­úar hefði verið ráð­inn aðstoð­ar­maður rík­is­stjórn­ar­innar.

Síðast starf­aði Ingvar sem lög­fræð­ingur hjá Íslensku lög­fræði­stof­unni, en hann lauk meist­ara­prófi í lög­fræði frá Háskóla Íslands árið 2019 og fékk mál­flutn­ings­rétt­indi fyrir hér­aðs­dómi árið 2019.

Áður var Ingvar blaða­maður á Morg­un­blað­inu á árunum 2014-2016 og full­trúi hjá Nordik lög­fræði­þjón­ustu árin 2016-2019.

Fyrr á þessu ári tók Ingvar sæti í stjórn Rík­is­út­varps­ins.

Fyrrverandi formaður SUS

Ingvar hefur tekið þátt í starfi Sjálf­stæð­is­flokks­ins árum saman. Hann var for­maður Heimdallar, félags ungra sjálf­stæð­is­manna í Reykja­vík árin 2013-2015 og for­maður Sambands ungra sjálf­stæð­is­manna frá 2017-2019.

Í for­mann­s­tíð sinni hjá SUS vakti hann nokkra athygli fyrir að setja fram lög­banns­kröfu á vef­inn Tekjur.is, sem birti upp­lýs­ingar um tekjur allra skatt­greið­enda á árinu 2017. Lög­banns­beiðn­inni var hafnað.

Ingvar mun starfa við hlið Brynjars Níels­sonar sem aðstoð­ar­maður Jóns Gunn­ars­sonar og verður hann sá þriðji sem kemur til aðstoðar Jóni frá því að hann tók við dóms­mála­ráðu­neyt­inu undir lok síð­asta árs.

Hreinn Loftsson sagði sig frá starf­inu skömmu eftir að hann tók við því og svo tók Teitur Björn við í febr­úar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár