Teitur Björn ráðinn aðstoðarmaður ríkisstjórnarinnar

Aðstoð­ar­maður dóms­mála­ráð­herra hefur verið ráð­inn aðstoð­ar­maður rík­is­stjórn­ar­innar á sviði sjálf­bærni og þjóðar­ör­ygg­is­mála. Aðstoð­ar­menn rík­is­stjórn­ar­innar eru þar með orðnir þrír tals­ins.

Teitur Björn Einarsson hefur verið ráðinn aðstoðarmaður ríkisstjórnarinnar. Hann starfaði áður sem aðstoðarmaður Jóns Gunnarssonar dómsmálaráðherra.
Teitur Björn Ein­ars­son hefur verið ráð­inn aðstoð­ar­maður rík­is­stjórn­ar­innar. Hann starf­aði áður sem aðstoð­ar­maður Jóns Gunn­ars­sonar dóms­mála­ráð­herra. Mynd: Aðsend

Teitur Björn Ein­ars­son, aðstoð­ar­maður dóms­mála­ráð­hhera, hefur verið ráð­inn aðstoð­ar­maður rík­is­stjórn­ar­innar. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá for­sæt­is­ráðu­neyt­inu en ráðn­ing Teits var til umfjöll­unar á rík­is­stjórn­ar­fundi í morgun.

Hann mun meðal ann­ars sinna verk­efnum á sviði sjálf­bærni og þjóðar­ör­ygg­is­mála auk þess að vinna að sam­hæf­ingu mála ásamt öðrum aðstoð­ar­mönnum.

Teitur Björn var aðstoð­ar­maður dóms­mála­ráð­herra frá febr­úar síð­ast­liðnum en áður starf­aði hann sem lög­maður hjá Íslensku lög­fræði­stof­unni og sem aðstoð­ar­maður fjár­mála­ráð­herra. Þá var hann kjör­inn á þing fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn í Norð­vest­ur­kjör­dæmi árið 2016, en hann hefur verið vara­þing­maður flokks­ins frá árinu 2017. Í síð­ustu kosn­ingum var hann í þriðja sæti á lista flokks­ins í Norð­vest­ur­kjör­dæmi.

Jón Gunn­ars­son tók við sem dóms­mála­ráð­herra þegar rík­is­stjórn­ar­sam­starf Sjálf­stæði­flokks, Vinstri grænna og Fram­sókn­ar­flokks var end­ur­nýjað eftir síð­ustu kosn­ingar. Vera hans í dóms­mála­ráðu­neyt­inu mun hins vegar brátt líða undir lok þegar Guðrún Haf­steins­dóttir, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, tekur við emb­ætti dóms­mála­ráð­herra. Þegar rík­is­stjórnin var kynnt í lok nóv­em­ber í fyrra kom fram að Guðrún myndi taka við af Jóni eftir að hámarki 18 mán­uði.

Guðrún hefur gefið það út að hún reikni með að velja sína aðstoð­ar­menn sjálf. „Þannig hefur það alltaf verið,“ sagði Guðrún í sam­tali við Frétta­blaðið í des­em­ber, eftir að Hreinn Loftsson hætti sem aðstoð­ar­maður Jóns eftir tvær vikur í starfi. Ásamt Teiti hefur Brynjar Níelsson starfað sem aðstoð­ar­maður dóms­mála­ráð­herra.

Teitur Björn verður þriðji aðstoð­ar­maður rík­is­stjórn­ar­innar. Henný Hinz er aðstoð­ar­maður rík­is­stjórn­ar­innar á sviði vinnu­mark­aðs-, efna­hags- og lofts­lags­mála og Dagný Jóns­dóttir aðstoð­ar­maður rík­is­stjórn­ar­innar um sam­hæf­ingu mála.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár