Varanleg hækkun á endurgreiðslum vegna nýsköpunar kostar þrjá milljarða á ári

Áætlað er að kostnaður ríkis­sjóðs vegna endur­greiðslna kostnaðar sem fellur til við rannsókn og þróun verði 11,8 milljarðar á næsta ári. Endur­greiðslurnar voru rúmlega tvöfaldaðar í faraldrinum. Nú á að gera það fyrir­komulag varanlegt.

Mikil áhersla hefur verið lögð á að auka fjárframlög til nýsköpunar síðustu misseri, sérstaklega eftir að kórónuveirufaraldurinn skall á. Skatturinn hefur áhyggjur af því að verið sé að misnota nýsköpunarstyrkjakerfið.
Mikil áhersla hefur verið lögð á að auka fjár­fram­lög til nýsköp­unar síð­ustu miss­eri, sér­stak­lega eftir að kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn skall á. Skatt­ur­inn hefur áhyggjur af því að verið sé að mis­nota nýsköp­un­ar­styrkja­kerfið. Mynd: Pexels.com

Fjármála- og efnahags­ráðuneytið hefur kynnt til umsagnar í samráðs­gátt stjórn­valda frumvarp sem felur í sér ýmsar breytingar á lögum um skatta og gjöld. Á meðal þess sem frum­varpið felur í sér er að tíma­bundið endur­greiðslu­hlutfall vegna kostnaðar sem fellur til við rann­sóknir og þróun verður gert varanlegt. Í skjali sem sýnir mat á áhrifum frum­varpsins kemur fram að kostnaður ríkis­sjóðs sem fellur til vegna þessarar breytingar geti numið um þremur milljörðum króna á ári frá því sem annars hefði orðið.

Í fjár­laga­frumvarpi næsta árs er gengið út frá því að endur­greiðslu vegna rann­sóknar og þróunar verði 11,8 milljarðar króna. Upphæðin hækkar um 69 milljónir króna milli ára og er því afar svipuð því sem hún er áætluð í ár.

Ákveðið var að hækka þakið á end­ur­greiðslum vegna rann­sókna og þró­unar á árinu 2020 og í stjórn­ar­sátt­mála nýrrar rík­is­stjórna Vinstri grænna, Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks var til­kynnt að sú tíma­bundna hækkun yrði gerð var­an­leg.

End­ur­greiðslu­hlut­fallið er 35 pró­sent í til­viki lít­illa og með­al­stórra fyr­ir­tækja, en 25 pró­sent í til­viki stórra fyr­ir­tækja. Hámark skatta­frá­dráttar er 385 millj­ónir króna hjá litlum og með­al­stórum fyr­ir­tækjum og 275 millj­ónir króna hjá stórum fyr­ir­tækj­u­m.

264 fyr­ir­tæki fengu end­ur­greiðslur árið 2021

End­­­ur­greiðslur rík­­­is­­­sjóðs vegna rann­­­sókna- og þró­un­­­ar­­­kostn­aðar voru alls 10.431 millj­­­ónir króna árið 2021 vegna þess­­arar hækk­­un­­ar. Það er rúm­­­lega tvö­­­falt meira en end­­­ur­greiðsl­­­urnar voru árið áður þegar þær námu sam­tals 5.186 millj­­­ónum króna. End­ur­greiðsl­urnar voru um 2,1 millj­arður króna árið 2016 og 1,3 millj­arður króna 2015.

Árið 2021 skiptu alls 264 fyr­ir­tæki end­ur­greiðsl­unum á milli sín og þeim fjölg­aði um 63 milli ára.

Tölvu­leikja­fyr­ir­tækið CCP fékk mest end­ur­greitt í fyrra, alls 550 millj­­ónir króna. CCP, sem er skil­­greint sem stórt fyr­ir­tæki, hefur fengið allt að tvö­­falda end­­ur­greiðslu frá Skatt­inum á síð­­­ustu árum, þar sem fyr­ir­tækið skiptir rann­­sókn­­ar- og þró­un­­ar­­kostn­að­inum af starf­­semi sinni upp í tvö félög. Á síðasta ári fékk CCP fær 275 millj­­óna króna frá­­­drátt í gegnum félagið CCP ehf. og aðra jafn­­háa upp­­hæð í gegnum félagið CCP Plat­­form ehf.

Að CCP und­an­­skildu fékk upp­­lýs­inga­­tækn­i­­fyr­ir­tækið Origo mesta skatta­frá­­drátt­inn í ár, en hann nam alls 372 millj­­ónum króna, ef tal­inn var með 44,5 pró­­senta eign­­ar­hlutur þess í fyr­ir­tæk­inu Tempo. LS Retail var svo með þriðja mesta skatta­frá­­drátt­inn í ár, en hann nam alls 317 millj­­ónum króna. Þar á eftir komu Össur og Alvotech, sem hvort um sig fékk 275 millj­­ónir króna í skatta­af­­slátt vegna nýsköp­un­­ar.

Sögðu ýmsa telja fram rekstr­ar­kostnað sem nýsköpun

Í fyrravor var frum­varp sem Viðreisn lagði fram um að gera end­ur­greiðsl­urnar var­an­legar til umfjöll­unar á þingi. Á meðal þeirra sem skil­uðu umsögn um það var Skatt­ur­inn. Hann hafði ýmis­legt við áformin að athuga. Í um­sögn­inni sagði að fram­­kvæmd sú sem snerti nýsköp­un­­ar­­styrki væri afar flókin þar sem erfitt geti verið að skilja á milli venju­bund­ins rekstr­­ar­­kostn­aðar og kostn­aðar vegna nýsköp­un­­ar­verk­efna. Á stundum þurfi sér­­hæfða þekk­ingu til að skilja þar á milli.

Reynslan af úthlutun nýsköp­un­­ar­­styrkja úr rík­­is­­sjóði hafi sýnt „að ekki er van­þörf á eft­ir­liti með þessum mála­­flokki þar sem nokkur brögð hafa verið að því að við skatt­skil hafi almennur rekstr­­ar­­kostn­aður og kostn­aður sem telja verður að til­­heyri frekar eðli­­legum end­­ur­­bótum á fyr­ir­liggj­andi afurð sem við­kom­andi fyr­ir­tæki hefur tekjur af verið færður undir kostnað vegna stað­­festra nýsköp­un­­ar­verk­efna.“

Skatt­ur­inn benti á að ekki hafi verið sett með lögum ákvæði um beit­ingu álags eða ann­­arra refsi­við­­ur­laga til að bregð­­ast við eða skapa varn­að­­ar­á­hrif vegna „hátt­­semi sem sam­­rým­ist ekki lögum þessum [...] Ekki ætti að þurfa að árétta að mis­­­notkun á þessum stuðn­­ingi með órétt­­mætum kostn­að­­ar­­færslum getur leitt til veru­­legra útgjalda af hálfu hins opin­bera, í formi órétt­­mætra end­­ur­greiðslna, auk þess að raska sam­keppni á mark­að­i.“

Í ljósi alls þessa taldi Skatt­ur­inn „óvar­­legt að gera ráð­staf­­anir sem ljóst þykir að muni leiða til auk­ins umfangs mála­­flokks­ins til fram­­búð­­ar, og auk­inna end­­ur­greiðslna úr rík­­is­­sjóði, án þess að hugað sé að því hvernig styrkja megi við­eig­andi reglu­verk í því skyni að ein­falda og styrkja umrædda fram­­kvæmd. Slíkar breyt­ingar væru jafn­­framt til þess fallnar að auka gagn­­sæi og fyr­ir­­sjá­an­­leika gagn­vart skatt­að­il­u­m.“

Frum­varpið hlaut ekki brautar­gengi á síðasta kjör­tímabili.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár