Ýmsir telja almennan rekstrarkostnað fram sem nýsköpun til að fá styrki úr ríkissjóði

Veittir nýsköp­un­ar­styrkir úr rík­is­sjóði juk­ust um 145 pró­sent milli 2019 og 2020. Rík­is­skatt­stjóri segir að mis­notkun á stuðn­ingnum, í formi órétt­mætra end­ur­greiðslna, geti leitt leitt til veru­legra útgjalda af hálfu hins opin­bera og raskað sam­keppni.

Mikil áhersla hefur verið lögð á að auka fjárframlög til nýsköpunar síðustu misseri, sérstaklega eftir að kórónuveirufaraldurinn skall á. Skatturinn hefur áhyggjur af því að verið sé að misnota nýsköpunarstyrkjakerfið.
Mikil áhersla hefur verið lögð á að auka fjár­fram­lög til nýsköp­unar síð­ustu miss­eri, sér­stak­lega eftir að kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn skall á. Skatt­ur­inn hefur áhyggjur af því að verið sé að mis­nota nýsköp­un­ar­styrkja­kerfið. Mynd: Pexels

Hækkun á nýsköp­un­ar­styrkjum úr rík­is­sjóði hefur leitt til auk­innar ásóknar í styrk­ina, og frá 2011 til loka síð­asta árs jókst veit­ing þeirra um 817,14 pró­sent. Í krónum þýðir það að árið 2011 voru veittir nýsköp­un­ar­styrkir upp á 634,6 millj­ónir króna en í fyrra námu styrkirnir 5.185,5 millj­ónum króna. Á milli áranna 2019 og 2020 hækk­aði veittur stuðn­ingur um 145 pró­sent og félögin sem sóttu um stuðn­ing fóru úr því að vera 163 í 201.

Ástæðan er sú að stuðn­ingur við nýsköp­un­ar­fyr­ir­tæki var aukin sem hluti af ráð­stöf­unum til að mæta efna­hags­legum áhrifum heims­far­ald­urs kór­ónu­veiru í fyrra. Breyt­ing­arnar sem þá röt­uðu í lög fólu í sér að við útreikn­ing skatt­frá­dráttar verði aðeins miðað við eina hámarks­fjár­hæð, sem verði 1,1 millj­arður króna, við álagn­ingu áranna 2021 og 2022 vegna rann­sóknar- og þró­un­ar­kostn­aðar. Þar af verði nýsköp­un­ar­fyr­ir­tækjum heim­ilt, en ekki skylt, að telja til rann­sóknar- og þró­un­ar­kostn­aðar allt að 200 millj­ónum króna vegna aðkeyptrar þjón­ustu.

[adspot]Þá var komið á þrepa­skipt­ingu sem felur í sér að lítil og með­al­stór félög geti átt rétt á skatt­frá­drætti sem nemur allt að 35 pró­sent af útlögðum kostn­aði vegna stað­festra verk­efna á gild­is­tíma bráða­birgða­á­kvæð­is­ins. End­ur­greiðslu til stórra fyr­ir­tækja var líka hækkuð, úr 20 í 25 pró­sent.

Nú liggur fyrir Alþingi frum­varp frá þing­flokki Við­reisnar um að gera þessa hækkun var­an­lega. Málið hefur hlotið fram­gang. Búið er að mæla fyrir því og það er nú til með­ferðar hjá efna­hags- og við­skipta­nefnd. Hún hefur kallað eftir umsögnum um það og ein slík barst í gær, frá rík­is­skatt­stjóra.

Hann hefur ýmis­legt við frum­varpið að athuga.

Almennur rekstrarkostnaður sagður nýsköpun

Embætti rík­is­skatt­stjóra bendir á í umsögn sinni að fram­kvæmd sú sem snerti nýsköp­un­ar­styrki sé afar flókin þar sem erfitt geti verið að skilja á milli venju­bund­ins rekstr­ar­kostn­aðar og kostn­aðar vegna nýsköp­un­ar­verk­efna. Á stundum þurfi sér­hæfða þekk­ingu til að skilja þar á milli.

Áhyggjur rík­is­skatt­stjóra eru ekki úr lausu lofti gripnar. Samkvæmt því sem fram kemur í umsögn­inni hefur reynslan af úthlutun nýsköp­un­ar­styrkja úr rík­is­sjóði sýnt „að ekki er van­þörf á eft­ir­liti með þessum mála­flokki þar sem nokkur brögð hafa verið að því að við skatt­skil hafi almennur rekstr­ar­kostn­aður og kostn­aður sem telja verður að til­heyri frekar eðli­legum end­ur­bótum á fyr­ir­liggj­andi afurð sem við­kom­andi fyr­ir­tæki hefur tekjur af verið færður undir kostnað vegna stað­festra nýsköp­un­ar­verk­efna.“

Rík­is­skatt­stjóri bendir á að ekki hafi verið sett með lögum ákvæði um beit­ingu álags eða ann­arra refsi­við­ur­laga til að bregð­ast við eða skapa varn­að­ar­á­hrif vegna „hátt­semi sem sam­rým­ist ekki lögum þessum“.

Misnotkun kostnaðarsöm og raskar samkeppni

Í umsögn­inni segir að kostn­að­ar­grein­ar­gerðir fyr­ir­tækja sem sækj­ast eftir nýsköp­un­ar­styrkjum, og árit­aðar eru af end­ur­skoð­anda, skoð­un­ar­manni eða við­ur­kenndum bók­ara byggi almennt ein­ungis á nið­ur­stöðum bók­halds­reikn­inga og stað­hæf­ingum for­stöðu­manna við­kom­andi fyr­ir­tækja, um að til­tek­inn kostn­aður telj­ist rann­sóknar- og þró­un­ar­kostn­aður. Sjaldn­ast virð­ist því byggt á sjálf­stæðu mati og skoðun fag­að­ila, að sögn rík­is­skatt­stjóra. „Ekki ætti að þurfa að árétta að mis­notkun á þessum stuðn­ingi með órétt­mætum kostn­að­ar­færslum getur leitt til veru­legra útgjalda af hálfu hins opin­bera, í formi órétt­mætra end­ur­greiðslna, auk þess að raska sam­keppni á mark­aði.“

[links]Í ljósi alls þess telur rík­is­skatt­stjóri „óvar­legt að gera ráð­staf­anir sem ljóst þykir að muni leiða til auk­ins umfangs mála­flokks­ins til fram­búðar, og auk­inna end­ur­greiðslna úr rík­is­sjóði, án þess að hugað sé að því hvernig styrkja megi við­eig­andi reglu­verk í því skyni að ein­falda og styrkja umrædda fram­kvæmd. Slíkar breyt­ingar væru jafn­framt til þess fallnar að auka gagn­sæi og fyr­ir­sjá­an­leika gagn­vart skatt­að­ilum.“

Þá telur rík­is­skatt­stjóri sér­stak­lega æski­legt að sam­hliða fyr­ir­hug­aðri breyt­ingu lög­unum, verði af henni, þá verði látið liggja skýrt fyrir hvort aðkeyptur kostn­aður frá tengdum aðila skuli falla undir styrk­hæfan kostnað eða ekki. Í lög­unum eins og þau eru í dag ein­ungis tekið á því hvernig fari með kostnað vegna aðkeyptrar rann­sóknar- eða þró­un­ar­vinnu sem veitt er af ótengdum aðilum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár