Mynd: Pexels.com

Stuðningur við rannsókn og þróun verður hækkaður enn frekar

Hlutfall end­ur­greiðslu vegna rann­sóknar og þró­unar hjá litlum og með­al­stórum fyr­ir­tækjum verður hækkað upp í 35 pró­sent. Þak á kostn­aði sem telja má fram til frá­dráttar verður hækkað í 1,1 millj­arð króna.

Efnahags- og við­skipta­nefnd leggur til í áliti sínu um svo­kall­aðan band­orm, frum­varp sem lög­leiðir þær aðgerðir sem rík­is­stjórnin kynnti í öðrum aðgerð­ar­pakka sínum, að gera breyt­ingar á hlut­falli skatt­frá­dráttar og hámarks­fjár­hæða vegna end­ur­greiðslu rann­sóknar- og þró­un­ar­kostn­aðar.

Þegar aðgerð­ar­pakk­inn var kynntur 21. apríl síð­ast­lið­inn stóð til að end­ur­greiðslur vegna rann­sókna og þró­unar yrðu hækk­aðar úr 20 í 25 pró­sent og þakið á kostn­aði sem má telja fram til frá­dráttar átti að hækka úr 600 í 900 millj­ónir króna.

Í áliti nefnd­ar­innar kemur fram að með það að mark­miði að styðja enn frekar við íslenskt nýsköp­un­ar­um­hverfi og leggi hún fram nokkrar breyt­ingar á þessum stuðn­ings­greiðslum. Við útreikn­ing skatt­frá­dráttar verði til að mynda aðeins miðað við eina hámarks­fjár­hæð, sem verði 1,1 millj­arður króna, við álagn­ingu áranna 2021 og 2022 vegna rann­sóknar- og þró­un­ar­kostn­aðar. Þar af verði nýsköp­un­ar­fyr­ir­tækjum heim­ilt, en ekki skylt, að telja til rann­sóknar- og þró­un­ar­kostn­aðar allt að 200 millj­ónum króna vegna aðkeyptrar þjón­ustu.

Þá verði komið á þrepa­skipt­ingu sem feli í sér að lítil og með­al­stór félög geti átt rétt á skatt­frá­drætti sem nemur allt að 35 pró­sent af útlögðum kostn­aði vegna stað­festra verk­efna á gild­is­tíma bráða­birgða­á­kvæð­is­ins. Hækkun á end­ur­greiðslu til stórra fyr­ir­tækja verður þó áfram í takti við fyrri áform rík­is­stjórn­ar­innar, þ.e. að þær verða hækk­aðar úr 20 í 25 pró­sent.

Aukin skattafsláttur til einstaklinga

Í álit­inu segir að við umfjöllun nefnd­ar­innar um frum­varpið hafi komið fram til­lögur um að aukið yrði við hvata ein­stak­linga til að fjár­festa í nýsköp­un­ar­fyr­ir­tækjum.

Í umsögnum Samtaka íslenskra leikja­fram­leið­enda og Samtaka sprota­fyr­ir­tækja hafi til að mynda verið lögð áhersla á mik­il­vægi slíkrar fjár­mögn­unar fyrir lítil félög í þró­un­ar­starf­semi. „Fyrir liggur að hækkun skatta­af­sláttar til ein­stak­linga í þessum efnum hefði óveru­leg áhrif á rík­is­sjóð. Með vísan til fram­greinds leggur nefndin til að skatt­afsláttur til ein­stak­linga vegna fjár­fest­inga í hluta­fé­lagi eða einka­hluta­fé­lagi[...]hækki tíma­bundið úr 50 pró­sent í 75 pró­sent af fjár­hæð fjár­fest­ingar að teknu til­liti til ann­arra ákvæða lag­anna.“

Jafn­framt vill nefndin hækka fjár­hæð­ar­mörk heild­ar­fjár­fest­ingar ein­stak­lings tíma­bundið úr tíu millj­ónum króna í 15 millj­ónir króna.

Lengja gildistíma heimildar lífeyrissjóða

Í frum­varpi rík­is­stjórn­ar­innar var lagt til að heim­ild líf­eyr­is­sjóða til að fjár­festa í svoköll­uðum vís­i­sjóðum yrði aukin. Í dag mega þeir eiga allt að 20 pró­sent í slíkum sjóðum og þarf því aðkomu að lág­marki fimm líf­eyr­is­sjóða til að stofna vís­i­sjóð. Frum­varpið gerði ráð fyrir að það hlut­fall yrði hækkað í 35 pró­sent. Fyrir efna­hags- og við­skipta­nefnd komu fram sjón­ar­mið um að almenn til­vísun til laga um stuðn­ing við nýsköp­un­ar­fyr­ir­tæki væri til þess fallin að tak­marka heim­ildir líf­eyr­is­sjóða til fjár­fest­ingar í nýsköp­un­ar­starf­semi og auka flækju­stig. Æski­legra væri að vísa til skil­grein­ingar á litlum og með­al­stórum fyr­ir­tækjum. Slík afmörkun væri betur til þess fallin að styðja fyr­ir­tæki sem gætu orðið kjör­inn vett­vangur fyrir vöxt og nýsköpun. Nefndin tók undir þessi sjón­ar­mið og leggur til í áliti sínu breyt­ingar þess efnis.

Auk þess komu fram sjón­ar­mið fyrir nefnd­inni þess efnis að heim­ild sjóð­anna til að auka fjár­fest­ingu í vís­is­sjóðum ætti að vera lengri en til þriggja ára, og jafn­vel ótíma­bund­inn. Það gæti til að mynda tekið tíma að stofna slíka sjóði. Efnahags- og við­skipta­nefnd ákvað að koma til móts við þau sjón­ar­mið og lagði til að gild­is­tími heim­ild­ar­innar yrði til 1. jan­úar 2025.

Sumir nefndarmenn vildu meira

Sumir nefnd­ar­menn vildu ganga enn lengra en gert var. Jón Steindór Valdi­mars­son, þing­maður Við­reisnar, gerði til að mynda sér­stak­lega grein fyrir fyr­ir­vara sínum við und­ir­skrift álits­ins með því að fjalla um stuðn­ing við nýsköpun. Þar kom fram vilji hans til að hækka end­ur­greiðslu­hlut­fall lít­illa og með­al­stórra fyr­ir­tækja enn frekar, eða upp í 45 pró­sent. „Á sama tíma er þörf á auk­inni hækkun á hámarki end­ur­greiðslna kostn­aðar vegna rann­sóknar og þró­unar. Leggur Viðreisn því til að það verði 1.500 millj. kr. í stað 1.100 millj. kr. Jafn­framt að tíma­bind­ing úrræð­anna verði afnumin, enda eru breyt­ing­ar­til­lögur Við­reisnar til þess fallnar að styðja við verð­mæta- og atvinnu­sköpun til fram­tíðar. Með sömu rökum er einnig lagt til að tíma­bind­ing heim­ildar líf­eyr­is­sjóða til fjár­fest­ingar í nýsköp­un­ar­sjóðum sé felld brott.“


Smári McCarthy, þing­maður Pírata, var á svip­uðum slóðum þegar hann gerði grein fyrir sínum fyr­ir­vara. Hann taldi líka til bóta ef að end­ur­greiðslu­hlut­fallið fyrir lítil fyr­ir­tæki yrði hækkað upp í 45 pró­sent. „Kostn­aður lít­illa fyr­ir­tækja við að sækja fé í opin­bera sjóði er vit­an­lega hærri sem hlut­fall af heild­ar­veltu en hjá stærri fyr­ir­tækjum, og því hefði verið gott að koma til móts við þau þar.“

Hugverkarisar hvöttu til „stórsóknar“

Kjarninn greindi frá því um liðna helgi að for­svars­menn fjög­urra af stærstu hug­verka­fyr­ir­tækjum sem orðið hafa til á Íslandi, Mar­el, Öss­ur, Origo og CCP, hefðu í sam­eig­in­legri umsögn um frum­varpið fagnað þeim aðgerðum sem rík­is­stjórnin hefði boðað til að styðja frekar við nýsköpun á Íslandi. Þau hvöttu hins vegar Alþingi til að „stíga skref­inu lengra og ráð­ast þannig í stór­sókn í nýsköp­un, það mun skila sér marg­falt til baka til rík­is­sjóðs og í fleiri eft­ir­sóttum störfum á Ísland­i.“

Undir umsögn­ina skrif­uðu Guð­björg Heiða Guð­munds­dótt­ir, fram­kvæmda­stjóri hjá Mar­el, Jón Sig­urðs­son, for­stjóri Öss­ur­ar, Finnur Odds­son, for­stjóri Origo og Hilmar Veigar Pét­urs­son, for­stjóri CCP.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið undanfarið ár