Mynd: Bára Huld Beck

Lokunarstyrkir, bónus til framlínufólks og fjölmiðlagreiðslur í aðgerðapakka 2.0

Lok­un­ar­styrkir til fyr­ir­tækja sem ríkið lét loka með boð­valdi, bón­us­greiðslur til fram­línu­starfs­manna og óút­færðar styrk­veit­ingar upp á 350 millj­ónir króna til einka­rek­inna fjöl­miðla eru á meðal aðgerða sem mynda nýjasta pakka íslenskra stjórn­valda.

Lok­un­ar­styrkir verða greiddir til fyr­ir­tækja sem þurftu að loka vegna lög­boðs stjórn­valda í tengslum við bar­átt­una við útbreiðslu COVID-19, einka­reknir fjöl­miðlar munu fá 350 millj­ónir króna í sér­tæka styrki sem enn á eftir að ákveða hvernig verður útdeilt og fram­línu­starfs­menn munu skipta með sér bón­us­greiðslu upp á einn millj­arð króna fyrir þeirra fram­lag í bar­átt­unni sem nú stendur yfir, og hefur gert meira og minna í á annan mánuð.

Ráðist verður í marg­hátt­aðar aðgerðir til að mæta stöðu náms­manna, meðal ann­ars með sum­ar­námi og sum­ar­störfum, og í aðgerðir til að styðja við nýsköpun og sprota­starf­semi.

Þetta er uppi­staðan í aðgerð­ar­pakka stjórn­valda númer 2.0. sem kynntur var af leið­togum rík­is­stjórn­ar­flokk­anna í Safna­hús­inu við Hverf­is­götu í dag. Þar sagði Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra, við lok kynn­ing­ar­innar að „þetta verður ekki síð­asti aðgerð­ar­pakk­inn.“

Stjórn­völd meta heild­ar­um­fang aðgerð­anna sem nálægt 60 millj­örðum króna.

Fyrsti hluti: Aðgerðir fyrir lítil fyrirtæki

Aðgerða­pakki stjórn­valda númer tvö er þrí­þættur og mun kosta á bil­inu nokkra tugi millj­arða króna. Í fyrsta lagi er um stuðn­ing­s­pakka að ræða fyrir fyr­ir­tæki. Í honum felst að fyr­ir­tæki eða ein­yrkjar sem þurftu að loka starf­semi sinni vegna lög­boðs stjórn­valda í tengslum við sótt­varn­ar­að­gerðir vegna útbreiðslu veirunnar sem veldur COVID-19 sjúk­dómnum munu geta fengið svo­kall­aða lok­un­ar­styrki. Styrkirnir verða í boði fyrir þau fyr­ir­tæki sem geta sýnt fram á að minnsta kosti 40 pró­sent tekju­fall og að þau séu með opin­ber gjöld í skilum. Hver aðili mun geta fengið allt að 800 þús­und krónur fyrir hvern starfs­mann en 2,4 millj­óna króna styrk að hámarki en styrkirnir geta náð til allt að 14 þús­und fyr­ir­tækja. Viðbúið er þó að ein­hver þeirra fyr­ir­tækja muni ekki upp­fylla skil­yrði um tekju­fall og skil á opin­berum gjöldum.

Sérstök lán til lít­illa fyr­ir­tækja voru einnig kynnt til leiks. Til að telj­ast til slíkra fyr­ir­tækja þarf að vera með tekjur undir 500 millj­ónum króna á ári. Lánin, sem munu njóta 100 pró­sent rík­is­á­byrgðar, standa ein­ungis fyr­ir­tækjum sem hafa orðið fyrir að minnsta kosti 40 pró­sent tekju­falli til boða, sem er sama skil­yrði og gildir fyrir hin svoköll­uðu brú­ar­lán til stærri fyr­ir­tækja sem kynnt voru til leiks fyrir mán­uði síðan en hafa enn ekki komið til fram­kvæmda. Lánin til fyr­ir­tækj­anna verður hægt að sækja um með ein­földum hætti á Island.is en þau verða sex millj­ónir krónur á hvert fyr­ir­tæki. Heild­ar­um­fang lán­anna eiga að geta orðið allt að 28 millj­arðar króna í heild, að mati stjórn­valda.

Fyr­ir­tæki sem ættu að greiða tekju­skatta í ár, vegna hagn­aðar í fyrra, munu geta að skil­yrðum upp­fylltum frestað þeim skatt­greiðslum. Umfang þess­arar aðgerðar er metin á tólf millj­arða króna.

Þá verða einka­reknir fjöl­miðlar styrktir um 350 millj­ónir króna. Grunnur þeirrar upp­hæðar var fund­inn út með því að skoða launa­kostnað og greidd trygg­ing­ar­gjöld fjöl­miðla á síð­asta ári og svo bætt við 50 millj­ónum króna. Enn á eftir að útfæra hvernig styrkirnir verði greiddir út en Lilju D. Alfreðs­dóttur, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, verður falið að gera reglu­gerð um hvernig því verði háttað. Þótt hún fái víð­tækar heim­ildir til að ákvarða skipt­ing­una þá eru sett ákveðin skil­yrði. Ráð­herr­anum er gert að líta meðal ann­ars til kostn­aðar við laun og verk­taka­greiðslur vegna miðl­unar frétta og frétta­tengds efnis. Enn­fremur verði litið til þess að minni aðilar hljóti hlut­falls­lega meiri stuðn­ing og að til­tekið hámark verði á stuðn­ingi við ein­staka aðila. Í til­kynn­ingu frá mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neyt­inu sem send var út eftir fund­inn segir að gert sé ráð fyrir því að fjöl­miðlar sæki um stuðn­ing með form­legum hætti og stuðn­ing­ur­inn taki mið af launa­kostn­aði fjöl­miðla vegna frétta­miðl­unar. Þak verður sett á fjár­hæð styrkja til ein­stakra fjöl­miðla, svo stuðn­ing­ur­inn nýt­ist bæði stórum og litlum miðlum.

Stjórn­völd segja að gripið sé til aðgerð­anna til að styðja við fjöl­ræði og fjöl­breytni á fjöl­miðla­mark­aði. Það þurfi að tryggja einka­reknum fjöl­miðlum sér­stakan rekstr­ar­stuðn­ing „á yfir­stand­andi ári, en þeir hafa tapað miklum tekjum á sama tíma og eft­ir­spurn eftir þjón­ustu þeirra hefur auk­ist.“

Annar hluti: Félagslegar aðgerðir

Í öðru lagi var kynntur félags­legur pakki. Í honum felst meðal ann­ars að bjóða upp á sum­ar­nám fyrir fólk sem stundar nám á fram­halds- og háskóla­stigi auk þess sem fjár­munum verður veitt í að skapa sum­ar­störf fyrir náms­menn. Heilsu­gæsla verður efld, sér­stak­lega geð­heil­brigð­is­hluti hennar, og félags­leg úrræði, meðal ann­ars staf­ræn úrræði, verða styrkt. Þá verður um 600 millj­ónum króna veitt í verk­efni sem heitir íþrótta- og tóm­stunda­starf barna. Auk þess verða nokkur hund­ruð millj­ónir krona settar í ýmis konar verk­efni tengd við­kvæmum hópum. Innan þeirra marka falla til dæmis þolendur heim­il­is­fo­beldis, þeir sem eru í félags­legri ein­angrun og fleiri.

Þá verður ráð­ist í sér­tækan stuðn­ing við sveit­ar­fé­lög með ýmsum hætti. 

Stóra breytan í þessum hluta snýst um að 1,5 millj­arðar króna verða settir inn í svo­kall­aðan fast­eigna­sjóð Jöfn­un­ar­sjóðs sveit­ar­fé­laga sem nýta á til að bæta aðgengi fyrir fatlað fólk og lag­færa bygg­ingar. Vert er þó að benda á að áætlað tekju­fall Jöfn­un­ar­sjóðs sveit­ar­fé­laga er áætlað um 4,5 millj­arðar króna þannig að staðan hans verður nettó nei­kvæð innan árs­ins 2020 vegna yfir­stand­andi ástands.

Kynntar voru ein­skipt­is­greiðslur til fram­línu­starfs­manna sem staðið hafa vakt­ina í bar­átt­unni við COVID-19 und­an­farnar vikur.

Þeir framlínustarfsmenn sem hafa staðið vaktina síðustu vikur munu skipta með sér einum milljarði króna.
Þeir fram­línu­starfs­menn sem hafa staðið vakt­ina síð­ustu vikur munu skipta með sér einum millj­arði króna.

Hún mun nema einum millj­arði króna.

Þriðji hluti: Nýsköpun og sprotar

Í þriðja lagi verður ráð­ist í aðgerðir til að örva nýsköpun og sprota­starf­semi. End­ur­greiðslur vegna rann­sókna og þró­unar verða hækk­aðar úr 20 í 25 pró­sent, en Kjarninn hefur heim­ildir fyrir því að þrýst­ingur hafi verið frá hags­muna­sam­tökum um að þær yrðu hækk­aðar í allt að 50 pró­sent. Alls verður þakið á kostn­aði sem má telja fram til frá­dráttar úr 600 í 900 millj­ónir króna.

Þá verður bætt við greiðslum í nýsköp­un­ar­sjóð náms­manna sem verða sér­stak­lega eyrna­merktar sprota­fyr­ir­tækjum.

Framlög í Kríu frum­kvöðla­sjóð, íslenskan hvata­sjóð nýsköp­un­ar­drif­ins frum­kvöðla­starfs sem kynntur var til leiks í lok nóv­em­ber í fyrra, verða hækkuð um 1,1 millj­arð króna. Kría á að verða hvata­sjóður sem fjár­festir í vís­i­sjóðum (Venture Capital) og mun auka aðgengi að fjár­magni og tryggja sam­fellu í fjár­mögn­un­ar­um­hverfi frum­kvöðla og nýsköp­un­ar. Í gild­andi fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar, sem nú er orðin með öllu úr sér gengin, var gert ráð fyrir að sam­tals 2,5 millj­arðar króna myndu fara í að fjár­magna sjóð­inn á næstu þremur árum. Auk þess verður heim­ild líf­eyr­is­sjóða til að fjár­festa í vís­i­sjóðum aukin. Í dag mega þeir eiga allt að 20 pró­sent í slíkum sjóðum og þarf því aðkomu að lág­marki fimm líf­eyr­is­sjóða til að stofna vís­i­sjóð. Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir, ráð­herra ferða­mála- iðn­aðar og nýsköp­unar, hafði boðað frum­varp sem átti að auka heim­ild líf­eyr­is­sjóða upp í 35 pró­sent í lok síð­asta árs. Því er um aðgerð að ræða sem þegar hafði verið boðuð. Hún mun einnig leggja fram frum­varp um breyt­ingar á logum um pakka­ferðir og sam­tengda ferða­til­högun sem felur í sér heim­ild til að geta end­ur­greitt við­skipta­vinum ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tækja með inn­eign­arnótu í stað pen­inga.

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir stendur í ströngu þessa daganna. Stærstu málaflokkar hennar ráðuneytis eiga verulega undir högg að sækja vegna COVID-19.
Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir stendur í ströngu þessa dag­anna. Stærstu mála­flokkar hennar ráðu­neytis eiga veru­lega undir högg að sækja vegna COVID-19.

Þriðja frum­varpið kall­ast svo „frum­varp til laga um fjár­stuðn­ing til rekstr­ar­að­ila vegna heims­far­ald­urs kór­ónu­veiru“ og fjallar um beinu greiðsl­urnar til þeirra fyr­ir­tækja sem hafa þurft að loka vegna ákvarð­ana sem stjórn­völd hafa tekið til að berj­ast við útbreiðslu veirunn­ar. 

Þá voru afgreidd frum­vörp Sig­urðar Inga Jóhanns­son­ar, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, um Mat­væla­sjóð og Þórdísar Kol­brúnar um breyt­ingu á lögum um pakka­ferðir og sam­tengda ferða­til­högun.

Aðgerða­pakk­inn var í kjöl­far rík­is­stjórn­ar­fund­ar­ins kynntur fyrir þing­flokkum stjórn­ar­flokk­anna og svo fyrir for­ystu­fólki stjórn­ar­and­stöð­unnar í gegnum fjar­fund­ar­búnað á fundi sem hófst í kringum klukkan 13 síð­degis í dag.

Sigurður Ingi Jóhanns­son, sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra, fær að stofna svo­kall­aðan Mat­væla­sjóð og 500 millj­ónir króna verða settir í það verk­efni. Þá verða 250 millj­ónir króna settar í lista­manna­laun í við­bót við það sem ætlað var.

Kynnt í ríkisstjórn í morgun

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, kynnti þrjú ný frum­vörp á rík­is­stjórn­ar­fundi í morgun sem mynda grunn­inn af lög­fest­ingu aðgerð­anna. Hann fór auk þess yfir upp­færðar sviðs­myndir um efna­hags­horf­ur. Fyrstu tvö frum­vörpin eru ann­ars vegar band­ormur til að lög­festa þær aðgerðir sem kynntar voru í dag og hins vegar nýtt fjár­auka­laga­frum­varp svo hægt verði að fjár­magna þær aðgerðir.

Þriðja frum­varpið kall­ast svo „frum­varp til laga um fjár­stuðn­ing til rekstr­ar­að­ila vegna heims­far­ald­urs kór­ónu­veiru“ og fjallar um beinu greiðsl­urnar til þeirra fyr­ir­tækja sem hafa þurft að loka vegna ákvarð­ana sem stjórn­völd hafa tekið til að berj­ast við útbreiðslu veirunn­ar. 

Þá voru afgreidd frum­vörp Sig­urðar Inga Jóhanns­son­ar, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, um Mat­væla­sjóð og Þórdísar Kol­brúnar um breyt­ingu á lögum um pakka­ferðir og sam­tengda ferða­til­högun.

Aðgerða­pakk­inn var í kjöl­far rík­is­stjórn­ar­fund­ar­ins kynntur fyrir þing­flokkum stjórn­ar­flokk­anna og svo fyrir for­ystu­fólki stjórn­ar­and­stöð­unnar í gegnum fjar­fund­ar­búnað á fundi sem hófst í kringum klukkan 13 síð­degis í dag.

Árétting:

Í upp­haf­legri útgáfu stóð að greiðslur til fram­línu­starfs­manna ættu að ein­skorð­ast við þá sem hafa klæðst hlífð­ar­bún­aði. Var þar stuðst við upp­lýs­ingar úr gögnum sem voru kynnt fyrir ýmsum fyrr í dag. Þessi tak­mörkun er þó ekki hluti af end­an­legri útgáfu pakk­ans og skýr­ing­unni hefur verið breytt í takti við það.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið undanfarið ár