Forsvarsmenn fjögurra af stærstu hugverkafyrirtækjum sem orðið hafa til á Íslandi, Marel, Össur, Origo og CCP, fagna þeim aðgerðum sem ríkisstjórnin hefur boðað til að styðja frekar við nýsköpun á Íslandi. Þau hvetja hins vegar Alþingi til að „stíga skrefinu lengra og ráðast þannig í stórsókn í nýsköpun, það mun skila sér margfalt til baka til ríkissjóðs og í fleiri eftirsóttum störfum á Íslandi.“
Þetta kemur fram í umsögn um annan aðgerðarpakka ríkisstjórnarinnar sem þau Guðbjörg Heiða Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri hjá Marel, Jón Sigurðsson, forstjóri Össurar, Finnur Oddsson, forstjóri Origo og Hilmar Veigar Pétursson, forstjóri CCP, skrifa sameiginlega.
Í aðgerðarpakkanum var boðað að ráðast í sérstakar aðgerðir til að örva nýsköpun og sprotastarfsemi. Endurgreiðslur vegna rannsókna og þróunar (R&Þ) verða hækkaðar úr 20 í 25 prósent og þakið á kostnaði sem má telja fram til frádráttar fer að óbreyttu úr 600 í 900 milljónir króna.
[adspot]Þá verður bætt við greiðslum í nýsköpunarsjóð námsmanna sem verða sérstaklega eyrnamerktar sprotafyrirtækjum. Framlög í Kríu frumkvöðlasjóð, íslenskan hvatasjóð nýsköpunardrifins frumkvöðulsstarfs sem kynntur var til leiks í lok nóvember í fyrra, verða hækkuð um 1,1 milljarð króna. Auk þess verður heimild lífeyrissjóða til að fjárfesta í vísisjóðum aukin. Í dag mega þeir eiga allt að 20 prósent í slíkum sjóðum og þarf því aðkomu að lágmarki fimm lífeyrissjóða til að stofna vísisjóð.
Skortur á burðugum hugverka- og hátæknifyrirtækjum
Í umsögn fjórmenninganna kemur fram að ítrekað hafi verið bent á það á undanförum árum að ekki nægilega mörg burðug hugverka- og hátæknifyrirtæki komist á laggirnar hér á landi. Aðgerðirnar sem hafa verið boðaðar muni án efa auka líkurnar á að svo verði. Þrátt fyrir það hvetja þau efnahags- og viðskiptanefnd, sem er með frumvarp um aðgerðirnar til umfjöllunar, eindregið til að gera „breytingar á frumvarpinu og ganga lengra bæði hvað varðar endurgreiðsluhlutfall og þak vegna R&Þ. Það mun hafa jákvæð áhrif á atvinnusköpun til skemmri og lengri tíma og skipta sköpum fyrir viðspyrnu íslensks atvinnulífs á þessum óvissutímum.“
Þau segja að aðgerðirnar nú séu að mörgu leyti rökrétt framhald á þeim stefnumálum sem fram koma í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar. Þar var meðal annars kynnt að stefnt væri að afnámi þaks vegna endurgreiðslu á R&Þ á kjörtímabilinu. Ríkisstjórnin hafi stigið sitt fyrsta skref í átt að þessu markmiði þegar ákveðið var að tvöfalda þakið vegna R&Þ fyrir árið 2019. Sú breyting hafi þýtt að fyrirtækin fjögur gátu sótt fram af meiri krafti en ella á starfsstöðvum sínum á Íslandi.
Telja fyrri breytingar hafa skipt sig sköpum
Breytingin hafi til að mynda mikil áhrif á þá ákvörðun CCP að stækka þróunarteymi sitt á tölvuleiknum EVE Online á skrifstofu fyrirtækisins í Reykjavík úr um 80 starfsmönnum í 130.
Marel hefur nýtt sér endurgreiðslukerfið fyrir fjölbreytt og umfangsmikil rannsókna- og þróunarverkefni síðastliðin tíu ár sem krefjast mikillar sérfræðiþekkingar á hinum ýmsu fagsviðum. Á þessum áratug hefur stöðugildum í vöruþróunareiningu Marel á Íslandi fjölgað um rúmlega 100 prósent, eða úr 87 í 180.
Össur starfrækir þróunarstarf á fimm starfsstöðvum í Bandaríkjunum og víðs vegar um Evrópu og þar á meðal í löndum þar sem veittur er fjárhagslegur stuðningur við rannsóknir og þróun. Öflug sóknarstefna til stuðnings nýsköpunar á Íslandi muni auka talsvert við samkeppnishæfni landsins og hvetja til uppbyggingar hér. „Þróunarstarf fyrirtækisins á Íslandi hefur skilað flestum af þeim vörum sem staðið hafa undir vexti í starfsemi fyrirtækisins síðustu tvo áratugi og hefur haft gríðarlega jákvæð áhrif á stoðtækjaiðnaðinn á heimsvísu. Virkni stoðtækja sem og aðgengi að þeim hefur fleygt fram og hefur Össur þar verið í fararbroddi. Þegar kemur að fjárfestingum í þróun á tölvustýrðum stoðtækjum, sem samsvara u.þ.b. fjórðungi af þróunarstarfi á Íslandi, hafa stöðugildi hér á landi tvöfaldast á síðustu 5 árum og kostnaður aukist um 136% á því tímabili. Fjárfesting í þróun á þeim vörum á þessu tímabili hefur numið 2,6 milljörðum kr. en árleg endurgreiðsla vegna þróunarstarfs í heild sinni verið á bilinu 60-120 milljónir kr. Með tilkomu hærri endurgreiðslna vegna þróunarstarfs hefur Össur tækifæri til að tryggja þróunarstarf á Íslandi, sækja enn frekar fram og nýta þann mannauð og þekkingu sem hefur búsetu hér á landi.“
[adspot]Hjá Origo hafi auknar endurgreiðslur vegna rannsókna og þróunar stuðlað að því að fyrirtækið leggur nú verulega meira í þróunarstarf á ári hverju, eða tæplega einn milljarð hvert ár. „Fyrir Origo breytir aukin endurgreiðsla núna ákvörðunum sem verið er að taka þessa dagana, gerir fyrirtækinu kleift að halda fleiri störfum við, mildar aðgerðir í viðbragði við COVID og kemur vonandi í veg fyrir uppsagnir. Þá viðheldur þessi breyting einnig hraða í þróunarstarfi og um leið verðmætasköpun sem annars hefði verið hægt á. Mikilvægur þáttur í rekstrarsögu Origo undanfarin ár var uppbygging og sala Tempo en framangreindir hvatar skiptu þar miklu máli. Töluverðir möguleikar eru á því að sú saga verði endurtekin í sumum þeirra verkefna sem nú eru í vinnslu hjá Origo og er þeim möguleikum hraðað vegna áherslna stjórnvalda á þróunarstarf.“
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.



















































Athugasemdir