Bjarni: Góð lífskjör meðal annars krónunni að þakka

Bjarni Benediktsson fjármála­ráðherra bendir á að ríki sem hafa valið að deila mynt með öðrum ríkjum á stóru myntsvæði taka út efnahags­sveifluna í gegnum avinnuleysi.

Það er eðlilegt að íslenska krónan sveiflist í takt við þróun hagkerfisins og endur­spegli þannig aukinn hagvöxt og stór­felldan uppgang ferða­þjónustunnar. Þetta kom fram í máli Bjarna Benedikts­sonar fjármála­ráðherra í óundirbúnum fyrir­spurnar­tíma á Alþingi í dag.

Ágúst Ólafur Ágústsson, þingmaður Samfylkingarinnar, gerði sveiflur gjald­miðilsins að umtals­efni. „Að mínu mati er óskiljanlegt hvað atvinnu­rekendur eru lélegir í því að berjast fyrir stöðugum gjald­miðli. Það liggur fyrir að ekki er hægt að búa við stöðu á krónu þar sem hún er allt of lítill gjald­miðill í ólgusjó aðþjóða­viðskipta,“ sagði Ágúst og bætti við: „Gengis­fellingar krónunnar eru aðeins leið til að færa fé frá almenningi til sumra fyrir­tækja og skila engu nema hærri verðbólgu og lakari kjörum fyrir launafólk. Þess vegna hef ég oft furðað mig á málflutningi hv. fjármála­ráðherra þar sem þessi skelfi­legi gjald­miðill sem krónan er er varinn og gengis­fellingar eru jafnvel taldar til kosta hennar.“

Ágúst Ólafur Ágústs­sonþing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar hefur áhyggjur af krón­unni

Spurði hann Bjarna hvort honum þætti réttlætanlegt að íslenskur almenningur og þorri íslenskra fyrir­tækja þyrfti að búa við krónuna og fylgi­fiska hennar, háa vexti og verð­tryggingu. „ Telur fjármála­ráðherra að nú séu aðstæður til að hefja á ný umræðu um framtíðar­tilhögun gjaldmiðils­mála með hugsanlegri upptöku stöðugri gjald­miðils á borðinu í ljósi þess að núverandi stefna gengur ekki upp?“ sagði Ágúst Ólafur.

Bjarni sagði að í ljósi kaupmáttar­aukningar og launa­hækkana á Íslandi væri ekki nema von að á einhverjum tíma­punkti væri erfitt að halda sama hraða. „Það þýðir ekki að það sé eitthvað að gjald­miðlinum. Íslenska krónan hefur vissulega styrkst, en það er einmitt hlutverk gjald­miðilsins að sveiflast í takt við það sem er að gerast í hagkerfinu. Þannig má segja að sterkari króna endur­spegli það sem hefur verið að gerast hér, aukinn hagvöxt, stór­felldan uppgang ferða­þjónustunnar. Í stað þess að við tókum á móti hálfri milljón ferða­manna fyrir tíu árum síðan tökum við á móti tveimur og hálfri milljón,“ sagði hann. „Þetta eru breytingar. Það eru grundvallar­breytingar á samsetningu efnahags­lífsins á Íslandi. Við þær aðstæður er ekki við öðru að búast en að gjald­miðillinn styrkist — og það er einmitt hans hlutverk. Enda hefur Seðla­bankinn sagt: Það er ekki nema von að krónan styrkist, hún er að gera nákvæmlega það sem við ætlum henni að gera.“

Þá sagði Bjarni krónuna hafa sinnt hlutverki sínu vel, bæði í hruninu og núna. „Það hefði verið til skaða ef krónan hefði ekki styrkst við þær breytingar sem eru að verða.“

Ágúst gat ekki tekið undir þetta. „Hvað þarf til að hæstvirtur fjármála­ráðherra sjái að kostnaður vegna krónunnar er að sliga íslensk heimili og fyrirtæki? Af hverju vill fjármála­ráðherra koma í veg fyrir að íslenskur almenningur geti notið góðs af stöðugum gjald­miðli, lægri vöxtum og engri verð­tryggingu? Á sama tíma sér hann ekkert athuga­vert við það að stór­fyrirtæki og auðmenn geri upp sín mál í evrum,“ sagði hann. „Krónan er fyrir auðmenn en ekki almenning. Það er eins og maður sé að vega að lóunni þegar maður efast um gildi krónunnar. Svör hæstv. fjármála­ráðherra sýna svart á hvítu hvaða hagsmunum ríkis­stjórn Katrínar Jakobs­dóttur berst fyrir, það eru hagsmunir stór­fyrirtækja og banka og auðmanna en ekki almennings og venjulegra fyrir­tækja í landinu. Það er mikilvægt að það liggi fyrir þjóðinni hvað þetta varðar.“

„Þá taka menn efnahags­sveifluna út í gegnum avinnuleysi. Það gerðum við ekki hér á Íslandi“

Bjarni svaraði á þá leið að svo virtist sem þing­maðurinn tryði því að lífsgæði yrðu mæld í stöðug­leika gjald­miðils. „Þegar við skoðum alþjóð­lega mæli­kvarða um það hvernig okkur gengur að tryggja góð lífskjör á Íslandi þá skipum við okkur fremst meðal þjóða. Þannig er það. Það er ekki þrátt fyrir krónuna, það er meðal annars vegna þess að við höfum okkar eigin gjald­miðil,“ sagði Bjarni. „Ég er hins vegar enginn trúar­ofstækis­maður í þessum efnum. Sannarlega er það svo að sum lönd hafa valið að deila mynt með öðrum á stóru myntsvæði. Það er þeirra val en við höfum séð afleiðingar þess á undan­förnum árum. Þá taka menn efnahags­sveifluna út í gegnum avinnuleysi. Það gerðum við ekki hér á Íslandi þannig að það er alrangt sem hátt­virtur þingmaður segir að verið sé að níðast á íslenskum almenningi og hinum venjulega íslenska borgara með því að við höldum úti okkar eigin gjald­miðli. Þvert á móti hefur okkur tekist að koma fólki í skjól, tryggja því atvinnu og við höfum síðan á grund­velli okkar eigin gjald­miðils byggt upp fram­úrskarandi lífskjör.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórn Katrínar

FréttirRíkisstjórn Katrínar

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstrinu á Íslandi heldur en VG“

Drífa Snædal sagði eftir­minnilega árið 2017 að það yrði „eins og að éta skít í heilt kjör­tímabil“ fyrir Vinstri græn að fara í ríkis­stjórnar­samstarf með Sjálfstæðis­flokknum. Staða hennar gamla flokks í dag kemur henni ekki á óvart. „Fyrir vinstrið í fram­tíðinni þá þarf það nátt­úrlega að hafa afleiðingar fyrir flokk að miðla málum svo hressilega að það er ekkert eftir af hugsjónunum,“ segir Drífa.
GreiningRíkisstjórn Katrínar

Sambúðin sem sært hefur VG nánast til ólífis

Vinstri græn sungu hástöfum á lands­fundi sínum fyrir rúmu ári: „Það gæti verið verra.“ Nú hefur það raungerst. Flokkurinn skrapar botninn í fylgis­mælingum og hefur ekki sammælst um nýja forystu eftir brott­hvarf eins vinsælasta stjórn­málamanns landsins og flokkurinn skrapar botninn í fylgis­mælingum. Hvort flokkurinn sé nægilega sterkur til að spyrna sér upp og forða sér frá útrýmingu á eftir að koma í ljós.

21 mín. lestur

GreiningRíkisstjórn Katrínar

Róttækur hugsjóna­flokkur verður að borgara­legum valda­flokki

Vinstri græn hafa á síðustu fimm og hálfu ári tapað trausti og trúverðug­leika, gefið afslátt af mörgum helstu stefnu­málum sínum og varið hegðun og aðgerðir sem flokkurinn talaði áður skýrt á móti. Samhliða hefur róttækt fólk úr gras­rótinni yfirgefið Vinstri græn, kjósenda­hópurinn breyst, hratt gengið á pólitíska inneign Katrínar Jakobs­dóttur og fylgi flokksins hrunið. Þetta er fórnar­kostnaður þess að komast að völdum með áður yfir­lýstum pólitískum andstæðingum sínum.

10 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár