Vill að frumvarp um aukinn gjaldfrjálsan aðgang að gögnum verði endurskoðað

Þingmenn þriggja flokka hafa lagt fram frum­varp um að allar upp­lýs­ingar sem safnað er saman í hluta­fé­laga­skrá verði aðgengi­legar öllum án gjalds. Rík­is­skatt­stjóri er ekki hrif­inn af breyt­ing­unni.

Ýmiskonar gögnum umfram ársreikninga um fyrirtæki landsins er safnað saman í hlutafélagaskrá. Í dag er hægt að kaupa þau gögn af einkaaðilum. Nokkrir þingmenn vilja gera það aðgengi gjaldfrjálst.
Ýmis­konar gögnum umfram árs­reikn­inga um fyr­ir­tæki lands­ins er safnað saman í hluta­fé­laga­skrá. Í dag er hægt að kaupa þau gögn af einka­að­ilum. Nokkrir þing­menn vilja gera það aðgengi gjald­frjálst. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Rík­is­skatt­stjóri vill að frum­varp um auk­inn gjald­frjáls aðgang að gögnum sem safnað er saman í hluta­fé­laga­skrá verði tkið til end­ur­skoð­unar. Að mati hans hefur ekki verið lagt fram full­nægj­andi kostn­að­ar­mat vegna breyt­ing­anna né lagt mat á þá hækkun fjár­veit­inga til Skatts­ins sem lækkun þjón­ustu­gjalda muni óhjá­kvæmi­lega hafa í för með sér. „Námu þjón­ustu­gjöld vegna hluta­fé­laga um það bil 79 millj­ónum kr. á árinu 2020 en óform­legt mat á kostn­aði vegna ein­skiptis tækni­breyt­inga bendir til þess að hann myndi nema um 8 millj­ónum kr. Samkvæmt fram­an­sögðu verður að telja æski­legt að frum­varpstext­inn verði tek­inn til end­ur­skoð­unar, og hugað verði frekar að afmörkun þeirra upp­lýs­inga sem birta skal með raf­rænum hætti.“

Þetta kemur fram í umsögn rík­is­skatt­stjóra um frum­varpið sem skilað var inn fyrir rúmri viku síðan.

Hægt er að kaupa umræddar upp­lýs­ingar frá einka­að­ilum á borð við Creditinfo og Kelduna í dag.

Ársreikningar loks aðgengilegir án greiðslu

Frum­varpið var lagt fram af þing­mönnum þriggja stjórn­ar­and­stöðu­flokka: Pírata, Við­reisnar og Flokks fólks­ins, í jan­úar. Björn Leví Gunn­ars­son, þing­maður Pírata, er fyrsti flutn­ings­maður þess. Með frum­varp­inu er lagt til að upp­lýs­ingar hluta­fé­laga­skrár verði aðgengi­legri fyrir almenn­ing, að ekki skuli taka gjald fyrir raf­ræna upp­flett­ingu í skránni og að sömu upp­lýs­ingar séu þar aðgengi­legar þar og ef greitt væri fyrir ein­tak af gögnum úr henni. Þessar upp­lýs­ingar geta ekki talist aðgengi­legar almenn­ingi miðað við núver­andi lög­gjöf þar sem greiða þarf fyrir þær.

Björn Leví lagði árum saman fram frum­vörp á Alþingi sem fólu í sér gjald­frjálsan aðgang að árs­reikn­ingum fyr­ir­tækja á Íslandi en þau náðu aldrei að kom­ast úr nefnd. Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir, nýsköp­unar- og ferða­mála­ráð­herra, lagði svo fram eigið frum­varp um efnið í apríl í fyrra sem var sam­þykkt síðar á því ári. Lögin tóku gildi í byrjun þessa árs. Hér er hægt að nálg­ast upp­lýs­ingar um hvernig hægt er að finna árs­reikn­inga fyr­ir­tækja án end­ur­gjalds.

Embætti rík­is­skatt­stjóra, sem nú til­heyrir Skatt­inum, lagð­ist gegn frum­varp­inu og sagði það kippa fót­unum undan rekstri þess. Enn fremur líkti emb­ættið afnámi gjald­tök­unnar við það að gera aðgang að söfnum lands­ins ókeyp­is. Ekki var tekið mark á þessum aðfinnslum þá.

Segja um grundvallarbreytingu að ræða

Upp­lýs­ingar um fyr­ir­tæki eru aðgengi­legar almenn­ingi í nágranna­löndum Íslands, að uppi­stöðu án end­ur­gjalds. Þar eru starf­ræktar sér­­­stakar vef­­­síður þar sem hægt er að nálg­­­ast grunn­­­upp­­­lýs­ingar um fyr­ir­tæki á borð við eig­end­­­ur, stjórn­­­endur og lyk­il­­­tölur úr rekstri fyr­ir­tækj­anna.

Vef­­­síð­­an Alla­bolag í Sví­­­þjóð þjónar til að mynda þessum til­­­­­gangi, en þar er að finna helstu upp­­­lýs­ingar um fyr­ir­tæki þar í landi. Hægt er að nálg­­­ast grunn­­­upp­­­lýs­ingar án kostn­­­aðar en ef þörf er á þá er hægt að greiða fyrir frek­­­ari upp­­­lýs­ing­­­ar. Sam­­­kvæmt síð­­­unni er hún upp­­­­­færð dag­­­lega með upp­­­lýs­ingum frá yfir­­­völdum þar í landi.

Sam­­­bæri­­­legar síður eru í Dan­­­mörku og Nor­egi, þar sem hægt er að fletta upp grunn­­­upp­­­lýs­ingum um dönsk og norsk fyr­ir­tæki.

Rík­is­skatt­stjóri telur að sú fram­kvæmd sem verið er að reyna að koma á fót hér­lendis sé mun yfir­grips­meiri en tíðk­ist ann­ars staðar. Í því sam­bandi bendir emb­ættið á á að upp­lýs­ingar um hluta­fé­lög í Danmörku sem eru birtar og aðgengi­legar séu, að því er virð­ist, að mestu sam­bæri­legar við þær sem nú þegar er hægt að nálg­ast í fyr­ir­tækja­skrá án end­ur­gjalds. Vænt­an­lega eigi almenn­ingur á Íslandi þó þegar til­tek­inn rétt til aðgangs að þeim gögnum sem hér um ræðir á grund­velli upp­lýs­inga­laga. „Um grund­vall­ar­breyt­ingu er hins vegar að ræða eigi stjórn­valdið að birta öll þessi gögn að eigin frum­kvæði á opin­beru vef­svæði. Almennt mun það við­haft við laga­setn­ingu að gætt sé með­al­hófs þegar skyldur eru lagðar á. Hvað varðar öflun stjórn­valda á upp­lýs­ingum, þá er ekki gengið lengra en að hún mið­ist við nauð­syn­legar upp­lýs­ingar sem hæfa til­efni upp­lýs­inga­öfl­unar hverju sinni. Hvað snertir aðgengi almenn­ings að upp­lýs­ingum hjá stjórn­völdum er miðað t.d. við fyr­ir­liggj­andi upp­lýs­ingar með nauð­syn­legum og mál­efna­legum tak­mörk­unum, þar sem m.a. er tekið til­lit til almanna­hags­muna, frið­helgi einka­lífs eða virkra við­skipta­hags­muna fyr­ir­tækja.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár