Fylgi Vinstri grænna fellur og stuðningsfólk vill síst Sjálfstæðisflokkinn í ríkisstjórn

Ný könnun sýnir að 40 prósent þeirra sem kusu VG í alþingis­kosningunum ætla ekki að gera það aftur. Meirihluti þeirra sem þó styðja VG vilja síst að Sjálfstæðis­flokkurinn sé í ríkis­stjórn. Katrín Jakobs­dóttir leiðir hins vegar viðræður um að mynda ríkis­stjórn með flokknum.

Katrín Jakobsdóttir
Katrín Jak­obs­dóttir Leiðir stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður við Sjálf­stæð­is­flokk og Fram­sókn­ar­flokk. Mynd: Morgunblaðið / Eggert Jóhannesson

40 prósent þeirra sem kusu Vinstri græn í alþingis­kosningunum í lok október segjast ekki myndu gera það aftur ef kosið væri nú. Þetta kemur fram í nýrri skoðana­könnun MMR, sem sýnir að fylgi VG hefur fallið um 4 prósent ef miðað er við kosningarnar.

Vinstri græn fengu 16,9 prósent stuðning í yfir­stöðnum alþingis­kosningum, en einungis 13 prósent segjast myndu kjósa flokkinn í dag. Á móti segjast 16 prósent nú ætla að kjósa Samfylkinguna, en flokkurinn fékk aðeins 12,1 prósent stuðning í kosningunum.

Hátt í hundrað meðlima VG hafa sagt sig úr flokknum eftir að þing­flokkur VG, með stuðningi níu af ellefu þing­mönnum flokksins, hóf stjórnar­myndunar­viðræður við Sjálfstæðis­flokkinn og Framsóknar­flokkinn. Á móti hafa 20 til 25 skráð sig í flokkinn. Alls eru meðlimir í flokknum tæp sex þúsund.

Í könnun MMR kemur fram að 57 prósent kjósenda VG vilja síst að Sjálfstæðis­flokkurinn sé í ríkis­stjórn. Píratar eru hins vegar óvin­sælastir hjá kjósendum Sjálfstæðis­flokksins, en 63 prósent þeirra vilja síst að Píratar séu í stjórn. 40 prósent kjósenda Samfylkingarinnar vilja síst af öllu Sjálfstæðis­flokkinn í stjórn og 68 prósent Pírata. Því er ljóst að erki­fjendur íslenskra stjórn­mála eru Sjálfstæðis­flokkurinn og Píratar. 

Kjósendur Samfylkingarinnar, VG, Pírata og Viðreisnar eru að öðru leyti mest andvígir því að Miðflokkurinn sé í ríkis­stjórn, en 46 prósent kjósenda Miðflokksins vilja síst af öllu Pírata í stjórn.

Fylgi VG hefur hrunið á einum og hálfum mánuði. Þannig mældist VG stærsti stjórn­mála­flokkurinn í könnun 365 sem birt var 11. október, með 29,9 prósent fylgi.

Hlé er nú á stjórnarmyndunarviðræðurm Vinstri grænna, Sjálfstæðis­flokks og Framsóknar­flokks á meðan miðstjórn Framsóknar­flokksins fundar í dag og á morgun.

Hverja vilja stuðnigs­menn síst?Aðeins 6 pró­sent stuðn­ings­fólks Sjálf­stæð­is­flokks­ins vill síst VG í rík­is­stjórn, en 57 pró­sent þeirra sem styðja VG vilja síst Sjálf­stæð­is­flokk­inn.

Fylgi flokka í dag samanborið við kosningar:

24,4% Sjálfstæðis­flokkurinn - 25,3% í kosningum

16% Samfylkingin - 12,1% í kosningum

13% Vinstri græn - 16,9% í kosningum

10,5% Miðflokkurinn - 10,9% í kosningum

9,9% Píratar - 9,2% í kosningum

9,5% Framsóknar­flokkurinn - 10,7% í kosningum

8,4% Flokkur fólksins - 6,9% í kosningum

6,5% Viðreisn - 6,7% í kosningum

1,8% Annað - 1,5% í kosningum 

Nið­ur­stöður könn­un­ar­innarFylgi við flesta flokka er svipað og í síð­ustu alþing­is­kosn­ingum, en Vinstri grænir falla mikið og fylgi bæt­ist við Sam­fylk­ing­una.

 

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár