Verið að taka peninga fram yfir lífsgæði í Helguvík

Björt Ólafs­dóttir segir að það verði að spyrja sig að því hvort ekki sé skynsamlegt að hætta stóriðju­starfsemi í Helguvík áður en að vandræði þar verði enn meiri. Þetta kemur fram í nýjasta sjónvarps­þætti Kjarnans á Hringbraut sem sýndur verður í kvöld.

Björt Ólafs­dóttir, umhverfis- og auðlinda­ráðherra, segir að það sé verið að taka peninga fram yfir heilsu og lífsgæði íbúa í Reykja­nesbæ þegar kemur að uppbyggingu stóriðju í Helguvík. 

Hún gagnrýnir ívilnunar­samninga sem síðasta ríkis­stjórn gerði við stór­iðju­fyrirtæki harðlega. „Þetta er alls ekki boðlegt. Þetta eru byrðar á herðum okkar sem við verðum að takast á við, og við gerum það ekki nema að taka erfiðar ákvarðanir hvað varðar fjár­magnið.“ Þetta kemur fram í nýjasta þætti Kjarnans á Hringbraut þar sem staða United Silicon og frekari stóriðju­uppbygging í Helguvík er til umfjöllunar. Þáttur er á dagskrá í kvöld klukkan 21.

Björt segir þar að stjórn­málamenn, bæði á sveitar­stjórnar­stigi og við ríkis­stjórnar­borðið, þurfi að fara að spyrja sig hvort sé mikil­vægara heilsa og velferð almennings eða það að verja „vitlausar fjár­festingar“ sem ráðist hefur verið í á kostnað almennings. „Ég held að fólk verði að spyrja sig hvort ekki sé komið nóg og hvort ekki sé skynsamlegra að hætta núna áður en við erum komin í dýpri súpu og í meiri vandræði.“

Kjartan Már Kjartansson, bæjar­stjóri í Reykja­nesbæ, er einnig gestur þáttarins. Hann tekur undir með Björt um að umræðan um þessa uppbyggingu hafi verið nokkuð föst í fjárhags­lega anga hennar í von um að hlutirnir muni lagast. „Ef það gerir það ekki þá munu menn láta líðan og heilsu íbúanna ganga fyrir. Það þarf enginn að velkjast í vafa um það.“

Aðspurður um hvort það sé forsvaranlegt að halda starfsemi Unites Silicon áfram þá segir Kjartan svo ekki vera nema að forsendur breytist.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár