Launamunur kynjanna eykst milli ára

Tölur Hagstofunnar sýna að óleið­réttur launa­munur kynjanna hefur aukist frá síðustu mælingu.

Karlar og konur
Karlar og konur sitja ekki alltaf við sama borð Mynd: Shutterstock

Samkvæmt nýjum tölum sem birtar voru á vef Hagstofunnar í dag voru konur með tæplega 30% lægri atvinnu­tekjur en karlar árið 2015. Þá er átt við allar tekjur af atvinnu án tillits til vinnutíma. Saman­burður á meðal­launum karla og kvenna í fullu starfi árið 2015 sýnir hins vegar um 20% mun á heildar­launum en um 14% mun á reglu­legum launum án yfirvinnu. Óleið­réttur launa­munur mældist 17% árið 2015 en hann byggir á reglulegu tímakaupi með yfirvinnu í samræmi við aðferð evrópsku hagstofunnar Eurostat.

Mikill munur á árstekjum í öllum aldurshópum

Helmingur kvenna var með lægri atvinnu­tekjur en 3,7 milljónir króna á árið árið 2015 en helmingur karla var með minna en 5 milljónir. Meðal­tekjur af atvinnu taka til allra atvinnu­tekna án tillits til vinnutíma en karlar vinna að jafnaði fleiri klukku­stundir í viku en konur, 44,1 klukku­stund á móti 35,5 hjá konum. 

Hæstar eru tekjurnar á aldurs­bilinu 45 til 49 ára hjá báðum kynjum. Á þeim aldri voru karlar með mun hærri tekjur en konur, eða 8,1 milljón á ári saman­borið við 5,5 milljónir hjá konum.

Konur
Konur er launa­lægri í öllum aldurs­flokkum, nema þær séu 85 ára og eldri

Munur á atvinnu­tekjum eftir kyni eykst með hverjum launa­flokki, og var efsti flokkurinn hjá körlum með 12 milljónir króna í árstekjur á móti 8,5 milljónum hjá konunum. 

Vinnutími útskýrir muninn aðeins að hluta til

Helmingur kvenna í fullu starfi var með heildar­laun yfir 490 þúsund krónur á mánuði meðan helmingur karla var með heildar­laun yfir 586 þúsund krónur. Dreifing heildar­launa var ólík eftir kyni og voru karlar fleiri í hæstu launa­bilunum.

Vinnutími skýrir að hluta til hærri heildar­laun karla en kvenna fyrir fullt starf. Karlar í fullu starfi unnu að jafnaði meira en konur í fullu starfi og voru greiddar stundir karla að meðaltali 189 á mánuði árið 2015 en greiddar stundir kvenna 179,7 samkvæmt launa­rannsókn Hagstofunnar. Þannig var minni munur á launum eftir kyni ef horft er til reglulegra launa án yfirvinnu árið 2015. Konur í fullu starfi voru þá að meðaltali með 458 þúsund krónur á mánuði en karlar 534 þúsund krónur og var launa­munurinn því um 14%. Ef skoðuð voru regluleg laun með yfirvinnu var munurinn um 18%.

Karlar
Karlar eru fleiri í hæstu launa­bilum, konur fleiri í þeim lægstu

Dreifing heildar­launa fyrir fullt starf var mismun­andi eftir atvinnu­grein. Sem dæmi má nefna að í heil­brigðis- og félags­þjónustu var dreifingin meiri meðal karla en kvenna og heildar­laun þeirra hærri. Störf kynjanna voru ólík í þeirri grein, meðal sérfræðinga störfuðu til dæmis tæplega 60% kvenna við hjúkrun en tæplega 70% karla við lækningar. Þá voru sjúkra­liðar fjölmennir í þeirri atvinnu­grein og fáir karlar í því starfi.

Karlastörf betur launuð
Karla­störf betur launuð Karla­störf eru mun betur launuð en hefð­bundin kvenna­störf

Skýring: Rétt­hyrningurinn afmarkar neðri og efri fjórðungs­mörk og miðgildið skiptir honum í tvennt. Strikin marka 10/90 mörkin. Fram­leiðsla (C), rafmagns-, gas- og hita­veitur (D), heild- og smásölu­verslun, viðgerðir á vélknúnum ökutækjum (G), flutningur og geymsla (H), upplýsingar og fjar­skipti (J), fjármála- og vátrygginga­starfsemi (K), opinber stjórn­sýsla og varnarmál; almanna­tryggingar (O), fræðslu­starfsemi (P), heil­brigðis- og félags­þjónusta (Q).

Fjármála- og vátrygginga­starfsemi sker sig einnig úr hvað varðar dreifingu heildar­launa eftir kyni árið 2015 og voru konur að meðaltali með um 37% lægri heildar­laun en karlar í þeirri grein. Skrifstofu­fólk í fullu starfi var að jafnaði með lægstu launin en rúmlega 30% kvenna í atvinnu­greininni tilheyrðu þeim hópi og einungis 6% karla. Meðal sérfræðinga í fjármála­starfsemi voru konur með um 16% lægri heildar­laun að meðaltali en karlar.

Munurinn mestur á almennum vinnumarkaði, minnstur hjá sveitarfélögum

Óleið­réttur launa­munur kynjanna, reiknaður samkvæmt aðferð evrópsku hagstofunnar Eurostat, var 17% árið 2015 og hafði hækkað lítillega frá fyrra ári þegar hann var 16,4%. Á almennum vinnu­markaði var launa­munurinn 16,7% en 14,6% hjá opinberum starfs­mönnum, þar af var munurinn 14,9% hjá ríki og 7,2% hjá sveitar­félögum.

Launamunur jókst
Launa­munur jókst Munurinn hefur aukist frá síðustu mælingum

Upplýsingar fengnar frá Hagstofunni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár