Engri beiðni um fóstureyðingu synjað á síðasta ári

Samkvæmt svari heil­brigð­is­ráð­herra við fyr­ir­spurn á Alþingi var þrettán ein­stak­lingum heim­ilað að rjúfa þungun eftir 16. viku með­göngu árið 2017.

Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra.
Svandís Svav­ars­dóttir, heil­brigð­is­ráð­herra. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Engri beiðni um fóst­ur­eyð­ingu var synjað á síð­asta ári en þrettán ein­stak­lingum var heim­ilað að rjúfa þungun eftir 16. viku með­göngu. Engri beiðni um fóst­ur­eyð­ingu var synjað á árinu.

Þetta kemur fram í svari Svan­dísar Svav­ars­dóttur heil­brigð­is­ráð­herra við fyr­ir­spurn frá Olgu Margréti Cilia um þung­un­ar­rof sem birt­ist á vef Alþingis í dag.

Eins og fram hefur komið í fréttum þá hyggst ráð­herra leggja fram frum­varp til laga um þung­un­ar­rof á yfir­stand­andi þingi. Í svar­inu kemur fram að við gerð þess hafi verið höfð hlið­sjón af skýrslu nefndar um heild­ar­end­ur­skoðun lag­anna. Áætlað er að frum­varpið verði lagt fram í októ­ber, segir í svar­inu.

Olga spurði jafn­framt hverjar helstu ástæður þess væru að úrskurð­ar­nefnd um fóst­ur­eyð­ingar og ófrjó­sem­is­að­gerðir synjar ein­stak­lingum um að rjúfa þungun. Ráðherra segir að í lögum komi fram að fóst­ur­eyð­ing sé leyfi­leg eftir 16 vikur séu miklar líkur á van­sköpun, erfða­göllum eða sköddun fóst­urs. Öllum málum er varða fóst­ur­eyð­ingu eftir 16 vikur sé vísað til úrskurð­ar­nefndar um fóst­ur­eyð­ingar og ófrjó­sem­is­að­gerðir og fjalli nefndin um hvort skil­yrði lag­anna séu upp­fyllt.

„Komist nefndin að þeirri nið­ur­stöðu að skil­yrði lag­anna séu ekki upp­fyllt er beiðni um fóst­ur­eyð­ingu synjað, en sam­kvæmt for­manni úrskurð­ar­nefnd­ar­innar hefur í gegnum árin helsta ástæða synj­unar verið þegar óskað hefur verið eftir fóst­ur­eyð­ingu vegna félags­legra ástæðna,“ segir í svar­inu.

Þungunarrof verði heimilt fram að 19. viku

Í frum­varp­inu, sem til stendur að leggja fram í haust, segir að mark­miðið sé að tryggja að sjálfs­for­ræði kvenna verði virt með öruggum aðgangi að heil­brigð­is­þjón­ustu fyrir þær konur sem óska eftir þung­un­ar­rofi. Lagt er til að konu verði veitt fullt ákvörð­un­ar­vald um það hvort hún elur barn fram að lokum 18. viku þung­unar, óháð því hvaða ástæður liggja að baki þeim vilja kon­unnar.

Þá er lagt til að sér­stak­lega verði kveðið á um rétt kvenna á full­komn­ustu heil­brigð­is­þjón­ustu sem á hverjum tíma eru tök á að veita í tengslum við þung­un­ar­rof og að tryggja skuli aðgang að þung­un­ar­rofi í öllum heil­brigð­is­um­dæmum lands­ins, sbr. lög um heil­brigð­is­þjón­ustu.

Einnig er lagt til ákvæði um fram­kvæmd þung­un­ar­rofs þar sem fram kemur að þung­un­ar­rof með lækn­is­að­gerð skuli fram­kvæmt á sjúkra­húsi undir hand­leiðslu læknis sem sé sér­fræð­ingur á sviði kven­lækn­inga en einnig skuli heim­ilt að fram­kvæma þung­un­ar­rof með lyfja­gjöf á starfs­stöðvum lækna sem sæta eft­ir­liti land­læknis.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár