Frumvarp til laga um þungunarrof lagt fram á haustþingi

Lagt er til í frum­varp­inu að konu verði veitt fullt ákvörð­un­ar­vald um það hvort hún elur barn fram að lokum 18. viku þung­unar, óháð því hvaða ástæður liggja að baki þeim vilja kon­unnar.

Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra.
Svandís Svav­ars­dóttir, heil­brigð­is­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra hyggst leggja fram á haust­þingi frum­varp til laga um ný heild­ar­lög um þung­un­ar­rof. Drög að frum­varpi eru til umsagnar á sam­ráðs­gátt stjórn­valda. 

Í frum­varp­inu segir að mark­miðið sé að tryggja að sjálfs­for­ræði kvenna verði virt með öruggum aðgangi að heil­brigð­is­þjón­ustu fyrir þær konur sem óska eftir þung­un­ar­rofi. Lagt er til að konu verði veitt fullt ákvörð­un­ar­vald um það hvort hún elur barn fram að lokum 18. viku þung­unar, óháð því hvaða ástæður liggja að baki þeim vilja kon­unnar.

Þá er lagt til að sér­stak­lega verði kveðið á um rétt kvenna á full­komn­ustu heil­brigð­is­þjón­ustu sem á hverjum tíma eru tök á að veita í tengslum við þung­un­ar­rof og að tryggja skuli aðgang að þung­un­ar­rofi í öllum heil­brigð­is­um­dæmum lands­ins, sbr. lög um heil­brigð­is­þjón­ustu.

Einnig er lagt til ákvæði um fram­kvæmd þung­un­ar­rofs þar sem fram kemur að þung­un­ar­rof með lækn­is­að­gerð skuli fram­kvæmt á sjúkra­húsi undir hand­leiðslu læknis sem sé sér­fræð­ingur á sviði kven­lækn­inga en einnig skuli heim­ilt að fram­kvæma þung­un­ar­rof með lyfja­gjöf á starfs­stöðvum lækna sem sæta eft­ir­liti land­læknis.

Landlækni skuli tilkynnt um þungunarrof eftir 18. viku

Enn fremur er lagt til að ákvæði gild­andi laga um að fóst­ur­eyð­ing skuli ætíð fram­kvæmd eins fljótt og auðið er og helst fyrir lok 12. viku þung­unar standi áfram í nýjum lögum til að und­ir­strika mik­il­vægi þess að þung­un­ar­rof skuli fram­kvæmt eins snemma og mögu­legt er. Eftir lok 18. viku þung­unar er lagt til að ein­ungis verði heim­ilt að fram­kvæma þung­un­ar­rof ef lífi þung­aðrar konu er stefnt í hættu við áfram­hald­andi þungun eða ef fóstur telst ekki líf­væn­legt til fram­búðar.

Lagt er til að krafa verði gerð um stað­fest­ingu tveggja lækna fyrir því að fóstur telj­ist ekki líf­væn­legt til fram­búðar og að land­lækni skuli til­kynnt um þau þung­un­ar­rof sem fram­kvæmd eru eftir lok 18. viku þung­unar, ástæðu þess og stað­fest­ingu þeirra lækna sem að ákvörð­un­inni komu.

Synjun verði kæranleg

Þá er lagt til að gerð verði krafa um fræðslu um áhættu sam­fara aðgerð­inni sem og að konu skuli boðið upp á stuðn­ings­við­tal vegna þung­un­ar­rofs bæði fyrir og eftir að það er fram­kvæmt.

Loks er lagt til að til­kynna beri synj­anir um þung­un­ar­rof til Embættis land­læknis og synjun verði kær­an­leg til úrskurða­nefndar um þung­un­ar­rof sem starfi innan Embættis land­læknis og skuli nefndin skila úrskurði innan viku frá því kæra berst nefnd­inni. Í nefnd­inni skuli eiga sæti þrír ein­stak­lingar, land­læknir sem verði for­maður nefnd­ar­innar og lög­fræð­ingur og sér­fræð­ingur í fæð­ingar- og kven­sjúk­dóma­lækn­ingum sem skipuð verði án til­nefn­ingar. Þá er lagt til að Embætti land­læknis haldi skrá á raf­rænu formi yfir öll þung­un­ar­rof sem fram­kvæmd eru. Lagt er til að við­ur­laga­á­kvæði lag­anna verði þess efnis að um brot gegn ákvæðum lag­anna fari sam­kvæmt ákvæðum almennra hegn­ing­ar­laga og laga um heil­brigð­is­starfs­menn, eftir því sem við eigi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár