Allir séu að leggjast á eitt til að Miklubrautarstokkur verði tilbúinn 2025-26

Skipulags- og samgönguráð Reykja­víkurborgar samþykkti í gær val á tillögum til að vinna áfram með varðandi stokka undir bæði Miklubraut og Sæbraut. Borgar­stjóri boðar að Miklubrautar­stokkur gæti verið tekinn í notkun ekki síðar en 2025-2026.

Að setja Miklubraut í stokk á að skapa pláss undir nýja byggð á svæðinu. Þessi mynd úr tillögu Yrkis arkitekta o.fl. sýnir „nýja Snorrabraut“.
Að setja Miklu­braut í stokk á að skapa pláss undir nýja byggð á svæð­inu. Þessi mynd úr til­lögu Yrkis arki­tekta o.fl. sýnir „nýja Snorra­braut“. Mynd: Yrki arkitektar o.fl.

Skipulags- og samgönguráð Reykja­víkurborgar samþykkti í gær val á tillögum sem áfram verður unnið með í skipulags­vinnu varðandi bæði Miklubrautar­stokk og Sæbrautar­stokk, en á báðum stöðum er stefnt að því að leiða bíla­umferð ofan í jörðina á næstu árum. Framkvæmdirnar eru báðar hluti af samgöngu­sáttmála höfuð­borgar­svæðisins.

Hvað Miklubrautina varðar varð tillaga Yrkis arkitekta, Dagný Land Design og Hnit verkfræði­stofu hlut­skörpust, en hvað Sæbrautina varðar verður áfram unnið með tillögu Arkís arkitekta, Landslags og Mannvits, en þó gætu hugmyndir allra teyma sem tóku þátt í hugmynda­leit vegna stokkanna verið nýttar við áfram­haldandi skipulags­vinnu að einhverju leyti.

Dagur B. Eggertsson borgar­stjóri boðar í færslu á Facebook í dag að stefnt sé að því að Miklabraut verði komin í stokk samhliða því sem nýr Land­spítali verði tilbúinn, eða árin 2025-2026. Hann kynnti áformin á opnum íbúafundi í Hlíða­hverfi í gærkvöldi.

„Fjár­mögnun framkvæmdarinnar er hluti af samgöngu­sáttmála höfuð­borgar­svæðisins. Vega­gerðin er að undirbúa útboð á hönnun stokksins en Reykja­víkurborg leiðir skipulags­vinnuna á yfirborði. Eigum frábært samstarf við Betri samgöngur, Vega­gerðina og síðast en ekki síst íbúa. Þetta er sannarlega flókið verkefni um leið og það er spennandi,“ segir borgar­stjóri á Facebook.

Fulltrúar Viðreisnar, Samfylkingar og Pírata í samgöngu- og skipulags­ráði sögðu í bókun sinni á fundi ráðsins í gær að af þeirra hálfu væri lögð áhersla á að „við áfram­haldandi vinnu verði lögð áherslu á forgang gangandi og hjólandi og Borgar­línu á svæðunum tveimur.“

„Þannig verði litið til lausna þar sem vegir á Miklubrautar­stokk séu einungis vegna Borgar­línu en ekki hugsaðir fyrir gegnumaksturs­umferð. Loks ber að huga að því að Borgar­lína sé ávallt höfð í hæsta gæða­flokki, liggi í sérrými og að borgar­línustöðvar veiti farþegum fullt skjól fyrir veðri og vindum,“ sagði í bókun fulltrúa meirihlutans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár