Ríkisstjórnin setur 450 milljónir króna í aðgerðir fyrir tónlist og sviðslistir

Viðbótar­listamanna­laun verða að stóru leyti eyrna­merkt tónlistar- og sviðslistar­fólki undir 35 ára aldri og fjármunir verða settir í að styðja við ýmis konar viðburðar­hald til að mæta miklum samdrætti í tekjum í kórónu­veiru­faraldrinum.

Lilja Alfreðsdóttir er ráðherra menningarmála.
Lilja Alfreðs­dóttir er ráð­herra menn­ing­ar­mála. Mynd: Bára Huld Beck

Ríkis­stjórn Íslands hefur ákveðið að setja 450 milljónir króna í viðspyrnu­aðgerðir í þágu tónlistar- og sviðslista­geiranna vegna heims­faraldurs kórónu­veiru.

Í tilkynningu sem birt hefur verið á vef stjórnar­ráðsins vegna þessa kemur fram að þeir sem hafa helst tekjur af viðburðar­haldi hafi séð þær skreppa gríðar­lega saman á þeim 22 mánuðum sem liðnir eru frá því að faraldurinn skall á. Þannig voru greiðslur til rétthafa í tónlist vegna tónleika­halds á árinu 2021 til að mynda 87 prósent lægri en samsvar­andi tekjur árið 2019. Auk þess hafi sjálfstæð leikhús og leikhópar farið verulega illa út úr faraldrinum vegna sótt­varnar­aðgerða og lokanna.

Á meðal aðgerða sem gripuð verður til er að eyrna­merkja fólki undir 35 ára aldri listamanna­laun í fyrsta sinn. Það er gert annars vegar þannig að 75 milljón króna viðbótar­framlag, alls 150 mánaðar­laun lista­manna, verður sett í starfs­laun lista­manna í gegnum launasjóð tónlistar­flytjenda. Þar af verður úthlutun 50 mánaðar­launa bundin því skilyrði að ungt tónlistar­fólk undir 35 ára aldri njóti góðs af þeim. Hins vegar verða 50 milljónir króna, alls 100 mánaðar­laun lista­manna, settar í starfs­laun lista­manna í gegnum launasjóð sviðs­listafólks og 50 mánaðar­laun verða „bundin því skilyrði að ungt sviðs­listafólk undir 35 ára aldri njóti góðs af þeim.“

Fyrr í þessum mánuði úthlutaði Launa­sjóður lista­manna alls 1.600 mánaðar­launum til lista­manna. Kostnaður vegna þeirra er 785 milljónir króna. Alls fengu 236 listamenn úthlutað launum en 1.117 einstaklingar eða hópar sóttu um. Því er ljóst að mun fleiri sóttust eftir að fá slík en fengu. Starfs­laun lista­manna eru 490.920 krónur á mánuði samkvæmt fjárlögum 2022. Um verktaka­greiðslur er að ræða.

Þá mun ríkis­sjóður standa að 150 milljón króna greiðslu til tónhöfunda, sem hafa séð tekjur sínar af tónleika­haldi rýrna um 80 prósent milli 2019 og 2020 og álíka mikið milli 2020 og 2021. Tekjur af dansleikja­haldi rýrnuðu einnig um 82 prósent milli áranna 2019 og 2021. „Með fram­laginu er hægt að styrkja rétthafa beint í gegnum STEF samtökin, en þeim verður falið að setja viðmið um úthlutun fjárins sem næðu hvorutveggja til þeirra sem höfðu tekjur af höfunda­réttar­gjöldum fyrir heims­faraldurinn og þeirra sem hafa komið nýir inn á markaðinn undan­farið.“

Tónlistar­sjóður fær 50 milljón króna viðbótar­framlag til að styðja við viðburða­hald á árinu 2022, Hljóðrita­sjóður fær 40 milljónir króna og ÚTON fær tíu milljónir króna til að koma til móts við íslenskt tónlistar­fólk sem sækir fram á erlendri grundu. Þá fær Tónverka­miðstöðin tíu milljónir króna.

Sviðslista­sjóður fær svo 25 milljónir króna til að styðja við viðburðar­hald á árinu 2022.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár