Þorgerður Katrín tekur við af Benedikt – vikið frá kynjareglu

Benedikt Jóhannesson, stofnandi Viðreisnar, sagði af sér sem formaður flokksins.

Benedikt Jóhannesson er hættur sem formaður Viðreisnar og Þorgerður Katrín Gunnars­dóttir, þingkona flokksins og starfandi sjávar­útvegs- og land­búnaðar­ráðherra er tekin við forystu­hlutverkinu.

Þing­flokkur Viðreisnar kom sér saman um þetta í dag og var ákvörðunin „staðfest af ráðgjafar­ráði flokksins“ að því er fram kemur í frétta­tilkynningu. 

Benedikt ákvað sjálfur að stíga til hliðar sem formaður og tilkynnti ákvörðun sína á fundi með þing­flokki og stjórn flokksins. Á sama fundi var ákveðið að Þorgerður Katrín Gunnars­dóttir, oddviti framboðs Viðreisnar í Suðvestur­kjördæmi, tæki við hlutverki hans. 

Jóna Sólveig Elínar­dóttir mun áfram gegna vara­formanns­hlutverki í flokknum. Að þessu leyti er hin nýja skipan forystu Viðreisnar á skjön við 4. mgr. greinar 5.1. í samþykktum flokksins, en sú regla felur í sér að „formaður og vara­formaður skulu ekki vera af sama kyni“. Á fundinum í kvöld var tilkynnt sérstak­lega að gera þyrfti undanþágu frá umræddri reglu. 

Samkvæmt heimildum Stundarinnar eru ekki allir á eitt sáttir með formanns­skiptin og hvernig staðið var að þeim. Stundin hefur rætt við trúnaðar­menn í flokknum sem segja að sér hafi brugðið hvernig ákvarðana­tökunni var háttað. Eðlilegast hefði verið að fela Jónu Sólveigu, vara­formanni Viðreisnar, að taka við keflinu af fráfar­andi formanni. Í staðinn hafi þing­flokkurinn og stjórn flokksins tekið ákvörðun um formanns­skipti án samráðs við gras­rótina og falið ráðgjafa­ráðinu að staðfesta þá ákvörðun.

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arnfríður Einars­dóttir landsréttar­dómari starfaði sjálf sem vara­dómari með tveimur þeirra hæstaréttar­dómara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til meðferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Landsrétt í trássi við stjórn­sýslulög störfuðu einnig náið með hæstaréttar­dómurunum meðan Hæstiréttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dómara­störf fjór­menninganna í uppnám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár