Boris Johnson stefnt fyrir ósannindi um Brexit

Boris Johnson, þing­maður breska Íhalds­flokks­ins, þarf að koma fyrir rétt vegna ásak­ana um að hafa farið með ósann­indi í aðdrag­anda þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­unnar um Brexit árið 2016.

Boris Johnson
Boris Johnson Mynd: EPA

Boris Johnson, fyrrverandi utanríkisráðherra Bretlands og borgarstjóri í Lundúnum, þarf að koma fyrir rétt vegna ásakana um villandi upplýsingar um útgöngu Breta úr Evrópusambandinu. Í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar um Brexit árið 2016 hélt Johnson því fram í herferð sinni að Bretar greiddu Evrópusambandinu 350 milljónir punda á viku. Frá þessu greint á vef breska miðilsins The Independent.

Marcus Ball, athafnamaður í Bretlandi, hefur höfðað mál á hendur Johnson fyrir misferli í opinberu starfi. Ball segir að Johnson hafi ítrekað sett fram villandi upplýsingar og þar af leiðandi logið að bresku þjóðinni um hvað aðild að Evrópusambandinu kosti.

Á sínum tíma gagnrýndi breska hagstofan þessi ummæli Johnsons og Nigel Farage, leiðtogi Brexit-flokksins, viðurkenndi eftir atkvæðagreiðsluna að fullyrðingar Johnsons hefðu verið rangar.

Sækist eftir því að taka við May

Johnson tilkynnti fyrr í maí að hann sækist eftir því að verða leiðtogi Íhaldsflokksins þegar Theresa May forsætisráðherra segir af sér. Theresa May hefur ekki enn gefið upp um hvenær hún lætur af embætti forsætisráðherra en hún kveðst fyrst vilja ljúka fyrsta áfanganum að Brexit.

Johnson sagði af sér embætti utanríkisráðherra í fyrra vegna andstöðu við stefnu Theresu May í Brexit.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár