Börn Vigdísar Hauksdóttur stefna móður sinni

Fjöl­skyldu­mál sem verið er að leysa segir Vigdís. Sam­komu­lag milli aðila um að tjá sig ekki um málið.

Hyggst ekki tjá sig
Hyggst ekki tjá sig Vigdís segir að það hafi orðið að sam­komu­lagi milli máls­að­ila að tjá sig ekki um málið. Mynd: gunnarsvanberg.com

Börn Vigdísar Hauks­dóttur, borg­ar­full­trúa Mið­flokks­ins, hafa stefnt móður sinni fyrir dóm­stóla. Fyr­ir­taka var í mál­inu í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur í morgun. Samkvæmt heim­ildum Stund­ar­innar standa deil­urnar um arf. Það hefur þó ekki feng­ist stað­fest frá máls­að­ilum.

Lögmaður barn­anna sem Stundin ræddi við sagði að sam­komu­lag væri milli máls­að­ila um að tjá sig ekki um inni­hald stefn­unnar eða önnur máls­at­vik. Ekki væri komin dag­setn­ing á aðal­með­ferð fyrir dóm­stólum.

Vigdís sagði sömu­leiðis í sam­tali við Stundina að hún hyggð­ist ekki tjá sig um málið. „Það var ákveðið milli okkar lög­manna í morgun að þar sem þetta væri fjöl­skyldu­mál, sem verið væri að leysa og varðar ekki almenn­ing, þá myndi eng­inn tjá sig um málið.“

Vigdís eign­að­ist tvö börn með eig­in­manni sínum, sem hún skildi við árið 2002. Hann lést árið 2010. Börn þeirra, sem stefna Vigdísi, eru nú á full­orð­ins­aldri. Vigdís er sjálf lög­fræð­ingur, en lög­maður hennar í mál­inu er Guð­mundur Ágústs­son hæsta­rétt­ar­lög­maður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

5
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár