Amazon opnar fyrstu verslun sína í raunheimum

Amazon, stærsta internet­fyrirtæki Banda­ríkjanna og eitt það stærsta í heiminum, ætlar að opna verslun í New York fyrir komandi jól. Það þykir, vægast sagt, sæta tíðindum enda snérist upprunalegt viðskipta­módel Amazon, bókabúð á netinu, um að neytendur ættu að geta pantað sér allar bækur sem þeim þyrstir í heim að dyrum fyrir lægra verð en smásalinn rukkar þá. Verslunin, sem verður staðsett á 34. stræti, milli flaggskips­verslunar Macy´s í borginni og Empire State-byggingarinnar, verður fyrsta verslunin í raun­heimum sem netrisinn opnar. Frá þessu er greint í The Wall Street Journal.

Amazon hefur auðvitað vaxið gríðar­lega síðan að vefsíða fyrir­tækisins, sem stofnað var af Jeff Bezos árið 1994, var sett í loftið fyrir 19 árum. Fyrir­tækið fram­leiðir nú meðal annars ýmsar vörur á borð við snjall­síma og lestrar­tölvur undir vöru­línu­heitunum Fire og Kindle og rekur eitt háþróaðasta vöruhúsa- og heimsendinga­kerfi heimsins. Það er líka orðið ansi langt síðan að Amazon seldi bara bækur. Velta fyrir­tækisins á árinu 2013 nam 75,5 milljörðum dala, eða rúmlega 9.100 milljarðar króna. Það er rúmlega fimm sinnum þjóðar­framleiðsla Íslands í fyrra.

Forsvars­menn Amazon segja að opnun verslunarinnar sé einungis tilraun og að ekki sé um stefnu­breytingu að ræða. Verslunin muni þjóna hlutverki lítils vöruhúss, viðskipta­vinir fyrir­tækisins muni geta sótt pantanir þangað og skilað vörum líkt og þeir geta nú þegar í vöruhúsum Amazon sem staðsett eru víðsvegar um heiminn. Auk þess verði verslunin notuð til að sýna Kindle og Fire vörulínur fyrir­tækisins. Erlendir frétta­miðlar virðast hins vegar margir vera á þeirri skoðun að opnunin sé einungis fyrsta skrefið af mörgum í innreið Amazon í raun­heima­verslun til að keppa við samkeppnis­aðila á borð við Apple, sem rekur verslanir með vörur sínar út um allan heim. Vöruþróun fyrir­tækisins undan­farin misseri (tæki til að auðkenna varning, korta­lesari til að kaupa varningin osfr.) undir­striki þá kenningu.

Verslunin á að opna fyrir jóla­vertíðina.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár