Dómari sem Orban vék úr embætti kjörinn forseti Ungverjalands

Andras Baka, fyrr­verandi forseti hæstaréttar og gagn­rýnandi Viktors Orban, hefur verið kjörinn forseti Ungverja­lands. Fjórtán ár eru síðan honum var vikið úr embætti á valdatíma Orbans.

Kjörinn
Kjörinn Andras Baka er nýr for­seti Ung­verja­lands eftir að hafa verið kjör­inn með miklu meiri­hluta greiddra atkvæða á ung­verska þing­inu. Embættið er þó að mestu leyti tákn­rænt. Mynd: ATTILA KISBENEDEK / AFP

Ungverskir þingmenn samþykktu í dag Andras Baka, fyrr­verandi forseta hæstaréttar, sem næsta þjóð­höfðingja landsins. Baka hefur verið gagn­rýninn á Viktor Orban, fyrr­verandi forsætis­ráðherra landsins, og var rekinn á valdatíma forsætis­ráðherrans fyrr­verandi.

Embætti forseta losnaði í síðasta mánuði eftir umdeilda brott­vikningu fyrri forseta, banda­manns Orbans. Þær breytingar voru hluti af aðgerðum Peter Magyar, forsætis­ráðherra sem velti Orban úr stóli í síðustu þing­kosningum, sem eiga að miða að því að losa um lang­varandi tök forvera síns á ríkis­stofnunum.

Þingið, þar sem stjórnar­flokkurinn Tisza hefur tvo-þriðju hluta meirihluta, kaus Baka – sem starfaði í 17 ár sem dómari við Mann­réttinda­dómstól Evrópu (MDE) – með 140 atkvæðum gegn sex.

Tisza-flokkurinn tilnefndi Baka, 73 ára, á laugardag í embættið, sem er að mestu leyti táknrænt.

Magyar sagði að líf Baka væri „dæmi um skuld­bindingu við lýðræðislegt réttar­ríki og stjórnar­skrár­bundnar megin­reglur“ þar sem þetta Mið-Evrópu­land þyrfti að „leiða aftur á braut …

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár