Leggja til skýrari reglur um tjáningarfrelsi og þagnarskyldu opinberra starfsmanna

Mark­miðið með nýju frum­varpi er að kveða á um að meg­in­reglan sé sú að opin­berir starfs­menn njóti tján­ing­ar­frelsis og að það verði aðeins tak­markað þegar þörf krefur og þá sam­kvæmt skýrum og fyr­ir­sjá­an­legum laga­á­kvæðum.

Nýtt frum­varp liggur nú fyrir þar sem lagt er til að settar verði skýrar reglur um tján­ing­ar­frelsi og þagn­ar­skyldu opin­berra starfs­manna í sér­stökum kafla sem bæt­ist við stjórn­sýslu­lögin. Mark­miðið er að kveða á um að meg­in­reglan sé sú að opin­berir starfs­menn njóti tján­ing­ar­frelsis. Það verði aðeins tak­markað þegar þörf krefur og þá sam­kvæmt skýrum og fyr­ir­sjá­an­legum laga­á­kvæðum. Frum­varpið hefur einnig að geyma nýmæli um það hvenær stjórn­völdum er heim­ilt að miðla per­sónu­upp­lýs­ingum sem þagn­ar­skylda ríkir um til ann­arra stjórn­valda.

Frum­varpið er komið í sam­ráðs­gátt stjórn­valda en umsagn­ar­frestur er til 12. nóv­em­ber næst­kom­andi.

Í frum­varp­inu segir að mark­mið þess sé ekki að auka við þagn­ar­skyldu eða leggja á frek­ari þagn­ar­skyldu. Með frum­varp­inu sé fyrst og fremst stefnt að því að þagn­ar­skyldu­reglur verði skýr­ari, sam­ræmd­ari og ein­fald­ari. Flóknar og óljósar þagn­ar­skyldu­reglur geti gert opin­berum starfs­mönnum erfitt um vik að nýta tján­ing­ar­frelsi sitt og eru skýrar þagn­ar­skyldu­reglur því mik­il­væg for­senda tján­ing­ar­frelsis.

Frelsi til að tjá sig opinberlega

Lagt er til að hver sá, sem starfar á vegum ríkis eða sveit­ar­fé­laga, hafi frelsi til að tjá sig opin­ber­lega um atriði er tengj­ast starfi hans, svo fremi sem þagn­ar­skylda eða trún­aðar- og holl­ustu­skyldur standi því ekki í vegi. Undir þagn­ar­skyldu falli ekki upp­lýs­ingar um lög­brot eða aðra ámæl­is­verða hátt­semi starfs­manna stjórn­valda.

Enn fremur er lagt til að hver sá, sem starfar á vegum ríkis eða sveit­ar­fé­laga, sé bund­inn þagn­ar­skyldu um upp­lýs­ingar sem auð­kenndar eru sem trún­að­ar­mál á grund­velli laga eða ann­arra reglna, eða þegar það er að öðru leyti nauð­syn­legt að halda þeim leyndum til að vernda veru­lega opin­bera- eða einka­hags­muni.

Fimm frumvörpum skilað til forsætisráðherra

Fimm frum­vörpum til laga um umbætur á lög­gjöf á sviði tján­ingar-, fjöl­miðla- og upp­lýs­inga­frelsis hefur verið skilað til Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra en sér­stök nefnd sem vann að mál­unum kynnti afrakstur vinnu sinnar í fyrri áfanga nefnd­ar­starfs­ins á blaða­manna­fundi í dag í Þjóð­minja­safn­inu.

Nefndina skipa:

  • Eiríkur Jónsson, pró­fessor, for­maður.
  • Páll Þór­halls­son, skrif­stofu­stjóri í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu, vara­for­maður.
  • Birgitta Jóns­dóttir, stjórn­ar­for­maður International Modern Media Ini­ti­ative.
  • Hjálmar Jónsson, for­maður Blaða­manna­fé­lags Íslands.
  • Sigríður Rut Júl­í­us­dóttir, hæsta­rétt­ar­lög­maður.
  • Elísabet Gísla­dóttir, lög­fræð­ingur í dóms­mála­ráðu­neyt­inu.
  • Þröstur Freyr Gylfason, sér­fræð­ingur í fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu.
  • Elísabet Pét­urs­dóttir, lög­fræð­ingur í mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neyt­inu.

Var nefnd­inni meðal ann­ars falið að vinna frekar afurðir stýri­hóps sem skip­aður var í kjöl­far þings­á­lykt­unar um að Ísland skapi sér afger­andi laga­lega sér­stöðu varð­andi vernd tján­ingar- og upp­lýs­inga­frelsis. Þá skyldi nefndin fara yfir fyr­ir­liggj­andi til­lögur á þessu sviði, auk þess að meta hverjar aðrar laga­breyt­ingar kunni að vera æski­legar.

Gert var ráð fyrir því að nefndin skil­aði einkum af sér í formi laga­frum­varpa og eftir atvikum ann­arra und­ir­bún­ings­skjala laga­setn­ingar. Var henni falið að skila af sér í tveimur skrefum. Þannig skyldi til­teknum þáttum lokið fyrir 1. októ­ber á þessu ári en öðrum fyrir 1. mars á því næsta. Þann 26. sept­em­ber síð­ast­lið­inn skil­aði nefndin af sér fyrri hluta vinnu sinnar. Meðal afurð­anna var frum­varp til laga um tján­ing­ar­frelsi og þagn­ar­skyldu opin­berra starfs­manna.

Vildu huga að vernd heimildamanna

Mat flutn­ings­manna fyrr­nefndrar þings­á­lykt­un­ar­til­lögu var að nauð­syn­legt væri að gera til­teknar laga­breyt­ingar til að hrinda efni til­lög­unnar í fram­kvæmd, þar á meðal að huga að vernd heim­ild­ar­manna, sem er eitt af grund­vall­ar­skil­yrðum þess að fjöl­miðlar geti lagt sitt af mörkum til lýð­ræð­is­þjóð­fé­lags­ins og einn af horn­steinum tján­ing­ar­frelsis þeirra.

Enn fremur var lagt til að gerðar yrðu til­lögur um vernd afhjúpenda en fyr­ir­mynd að slíkri lög­gjöf sé að finna í ýmsum nágranna­ríkjum Íslands. Til­gang­ur­inn með slíkri vernd er að vernda afhjúpendur þegar þeir koma fram með upp­lýs­ingar sem eiga erindi til alls almenn­ings. Tóku flutn­ings­menn fram að til greina kæmi að breyta ákvæðum um þagn­ar­skyldu í lögum um rétt­indi og skyldur starfs­manna rík­is­ins í því skyni.

„Skýrar reglur um þagn­ar­skyldu opin­berra starfs­manna eru mik­il­vægur liður í því að tryggja fram­an­greind atriði og stöðu afhjúpenda og brýnt er að afmarka nánar til hvaða atriða þagn­ar­skylda opin­berra starfs­manna nær hverju sinni,“ segir í frum­varp­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár