Finna þarf jafnvægi í birtu og rými á milli húsa

Reykja­víkurborg vinnur að leið­beiningum um birtu­skilyrði og gæði á dvalar­stöðum og í íbúðar­húsnæði.

Mikil uppbygging stendur til á Heklureitnum.
Mikil upp­bygg­ing stendur til á Heklu­reitnum. Mynd: Skjáskot úr deiliskipulagi

Reykja­víkurborg vinnur nú að leið­beiningum um birtu­skilyrði til að bæta samræmi milli rýmis og birtu á uppbyggingar­svæðum borgarinnar. Skilgreind eru viðmið og leiðir til útfærslu dvalar­svæða sem eiga þátt í að móta umgjörð daglegs lífs með nákvæmari hætti en áður. Tilgangurinn er að auðvelda uppbyggingar­aðilum að gæta að gæðum bæði íbúða sem og rýmisins milli húsanna.

Fjallað er um málið í Torginu, frétta­bréfi Skipulags­stofnunar. Þar segir að tilgangur verk­efnisins rími vel við markmið Aðal­skipulags Reykja­víkur um að stuðla að vellíðan íbúa, efla virkni og félagslegt samneyti íbúa og virkja og styrkja grænar tengingar borgarinnar.

Ásta Loga­dóttir, verk­fræðingur, og Anna María Boga­dóttir, arkitekt, hafa unnið að leið­beiningunum. Leiðar­ljósið er að draga fram skýra mynd af kröfum um skugga­varp og lágmark birtu á dvalar­svæðum. Þannig á hinn almenni borgari að hafa betri tilfinningu fyrir því hvernig rýmið milli húsa verður og hönnuðir hvar er heppilegast að hafa leiksvæði fyrir börn og svalir á byggingum, svo eitthvað sé nefnt.

Ásta sagði í samtali við RÚV í maí að hún hefði áhyggjur af byggingar­magni á svokölluðum Heklureit en þar á að reisa allt að 463 íbúðir. Húsin yrðu hæst sjö hæðir. Þröngar götur yrðu á milli sumra háhýsanna.

„Ég er alveg með áhyggjur af bygginga­magninu. Og við erum að sjá að það er að þéttast og hækka. Þannig að þetta er eitthvað sem við þurfum að taka alvarlega og við þurfum að finna okkur aðferðir til þess að passa upp á gæðin í umhverfinu okkar,“ sagði Ásta við RÚV. Doktors­verkefni hennar fjallaði um lýsingu og hefur hún veitt ráðgjöf í þeim efnum.

Byggt til langrar framtíðar

Borghildur Sturlu­dóttir, deildar­stjóri deili­skipulags hjá Reykja­víkurborg, hefur haft umsjón með birtu­verkefninu sem nú er í vinnslu. „Við þurfum að finna jafnvægið eða gæðin saman, sem ríki og borg og sem borgarar og uppbyggingar­aðilar,“ segir hún í Torginu. „Jafnvægi í birtu og rými á milli húsa svo eitthvað sé nefnt. Því við erum að byggja til 100 ára, mögulega lengur og því þurfum við að vanda til verka. Annað væri óábyrgt gagnvart umhverfinu, borginni okkar og komandi kynslóðum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár