Stórir skjálftar ríða yfir Reykjanesið og höfuðborgarsvæðið

Skjálftar um og yfir 5 á Richter hafa riðið yfir Reykjanesið. Stað­setningin er í kringum Fagradals­fjall. Sá fyrsti mældist 5,7 að stærð, 3,3 kíló­metrum suðsuðvestur af Keili. Skjálftarnir teygja sig í átt að höfuð­borgar­svæðinu, samkvæmt frum­niðurstöðum Veður­stofunnar.

Fyrsti skjálftinn
Fyrsti skjálft­inn Veð­ur­stofan stað­festir að fyrsti skjálft­inn var 5,7 á Richterskvarða.

Öflugir jarð­skjálftar finnast nú á höfuð­borgar­svæðinu og Reykjanesinu. 43 skjálftar yfir 3 að stærð hafa fundist síðan í morgun og enn heldur hrinan áfram.

Fyrsti skjálftinn er stað­festur 5,7 að stærð, stað­settur 3,3 kílómetra suðsuðvestur af Keili. Óttast er að enn stærri skjálfti sé ókominn.

Skjálfta­hrinan teygir sig til höfuð­borgar­svæðisins. Þannig er einn þeirra, 3,6 að stærð á slaginu hálfellefu, samkvæmt frum­niðurstöðum stað­settur 4,6 kílómetra aust-suðaustur af Straumsvík.

Vefur Veður­stofunnar liggur niðri með hléum. Samkvæmt vef Veður­stofunnar dreifast stórir skjálftar yfir Reykjanesið. Stað­setning þeirra er í kringum Keili og Fagradals­fjall, þar sem órói hefur verið undan­farin misseri.

Fregnir eru af því að myndir hafi dottið niður í Vestur­bænum. Í Hlíðunum þótti íbúa sem bíll hefði keyrt á húsið. Skjálftarnir fundust vel á Seltjarnarnesi og í Hvera­gerði. Mest finna þó íbúar í Grindavík og nágrenni fyrir skjálftunum.

Enn annar jarð­skjálfti reið yfir klukkan 10.16. Samkvæmt frum­niðurstöðum Veður­stofunnar voru þeir tveir með mínútu millibili, 3,5 á Richter.

Fyrstu tveir sjálftarnir eru metnir 4,5 og 4,7 að stærð klukkan 10.05 með fimmtán sekúndna millibili. 

Klukkan 10.20 mældist skjálfti upp á 4,9, samkvæmt frum­niðurstöðum Veður­stofunnar. Annar kom mínútu síðar, 4,3 og enn annar 10.23, 4,6 að stærð.  Enn halda skjálftarnir áfram og eru þeir samkvæmt frum­niðurstöðum stað­settir í kringum Fagradals­fjall.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fagradalsfjall

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár