Efast um gildi aldurstakmarks og þungra refsinga við ölvun á rafskútum

Rafhlaupa­hjólaleigan Hopp og yfir­læknir á bráða­mótt­töku Land­spítala eru sammála um að ekki sé ástæða til að kveða á um allt að tveggja ára refsingar við því að aka rafskútu undir áhrifum áfengis, eins og lagt er til í drögum að breyttum umferðar­lögum.

Á undraskömmum tíma hafa rafhlaupahjól, svokallaðar rafskútur, orðið vinsæll ferðamáti. Í umsögn frá Hopp segir að 11 þúsund ferðir hafi verið eknar á deilirafskútum fyrirtækisins á hverjum degi að meðaltali í septembermánuði.
Á undra­skömmum tíma hafa raf­hlaupa­hjól, svo­kall­aðar raf­skútur, orðið vin­sæll ferða­máti. Í umsögn frá Hopp segir að 11 þús­und ferðir hafi verið eknar á deiliraf­skútum fyr­ir­tæk­is­ins á hverjum degi að með­al­tali í sept­em­ber­mán­uði. Mynd: Mynd: Hopp

Áform Sigurðar Inga Jóhanns­sonar innviða­ráðherra um að banna börnum 13 ára og yngri að nota rafskútur og láta allt að tveggja ára fangelsis­refsingu liggja við því að nota slík farartæki undir áhrifum áfengis eru gagnrýnd nokkuð í umsögnum sem bárust inn í samráðs­gátt stjórn­valda. Frumvarps­drög frá ráðherra voru sett fram þar í síðasta mánuði.

Rafskútu­leigan Hopp er á meðal þeirra sem sendu inn umsögn um fyrir­hugaðar laga­breytingar og segir fyrir­tækið að í greinar­gerð með frumvarps­drögunum hafi „engar ástæður“ verið gefnar fyrir þeirri „íþyngjandi aðgerð“ að banna yngri en 13 ára með öllu að nota smáfarartæki. Hopp segir að tillagan sé sérstak­lega „furðuleg“ í því ljósi að í sömu grein umferðar­laganna sé börnum 9 ára og yngri bannað að hjóla á reiðhjóli á akbraut nema undir eftirliti.

„Hopp telur miklu vænlegra til árangurs að hið opinbera tryggi umferðar­fræðslu fyrir börn og ungmenni sem taki mið af nýjum ferða­venjum og hvetji til notkunar þeirra á öruggan hátt. Öruggar og umhverfis­vænar ferða­venjur þarf að rækta frá unga aldri, ekki banna,“ segir í umsögn fyrir­tækisins. Einnig er vikið að því að rafskútur hafi haft jákvæð áhrif á „skutlið“, akstur foreldra á börnum og unglingum í tómstundir og á viðburði.

Yrðu reiðhjól bönnuð börnum, ef þau væru fundin upp í dag?

Að hinu sama véku nokkrir einstaklingar, sem sendu inn umsagnir um málið. Faðir 10 ára barns sem notar rafhlaupahjól til þess að komast í íþrótta­starf segir ekki augljósan samfélags­legan ávinning af því að banna börnum yngri en 13 ára að nota rafhlaupahjól. Mörg börn á þessum aldri noti rafhlaupahjól daglega til þess að komast ferða sinna, sérstak­lega í hæðóttum úthverfum höfuð­borgar­svæðisins. Hann segir að bera þurfi slysa­tíðni á rafhlaupahjólum saman við slysa­tíðni á hefð­bundnum reið­hjólum, og segir að spyrja megi „hvort börnum væri bannað að nota reiðhjól ef þau væru fundin upp í dag“.

Kópa­vogsbúi sem sendir inn umsögn bendir á að börn á aldrinum 10-15 ára í hans heimabæ séu „til fyrir­myndar við akstur á rafhlaupahjólum“ og að ferða­mátinn sé mikið nýttur við ferðalög á íþrótta­æfingar og félags­starf. Segir hann að það séu miklu frekar ungmenni á aldrinum 16-22 ára sem ekki kunni sig nógu vel, á þessum farar­skjótum.

Faðir þriggja barna segir svo í sinni umsögn að það sé „fullkomlega óraunsætt“ að setja 13 ára aldurs­takmark á hjólin. „Hvað með reiðhjól, gírahjól sem komast mun hraðar? Á að setja aldurs­takmörk á þau líka? Hvað hraða varðar er enginn munur á gíra­hjólum og rafknúnum hlaupa­hjólum. Vinsamlegast athugið að skutl­ferðum með börnin hefur snar­fækkað hjá mörgum foreldrum sem sparar peninga og hefur jákvæð umhverfis­áhrif. Við eigum líka að treysta börnunum fyrir hjólunum sem langsamlega flest kunna að nota þau á réttan hátt,“ segir í umsögn þessa föðurs, sem leggur til að aldurs­takmörk á rafknúnum hlaupa­hjólum verði 11 ár, en ekki 13 ár.

Bráðalæknir telur ekkert vit í 2 ára refsiramma

Hjalti Már Björnsson, yfir­læknir á bráða­móttöku Land­spítala og lektor í bráða­lækningum við HÍ, ritaði umsögn við frumvarps­drögin, þar sem hann segir að það hljómi skyn­samlega að grípa til tæknilegra lausna við að takmarka þann hraða sem unnt er að koma rafhlaupahjólum á.

„Það er þó sérkennilegt að löggjafinn skuli hér taka fyrir eina tegund vélknúinna ökutækja og setja reglur um tæknilegar lausnir til hraða­takmörkunar. Tæknilega ætti ekkert að vera því til fyrir­stöðu að setja einnig takmarkanir á það hversu hratt er unnt að keyra bíla, enda fráleitt að leyfa bíla á götum og vegum landsins sem unnt er að aka langt yfir þeim 90 km/klst sem er hámarks­hraði á landinu. Að aka rafhlaupahjóli á 40 km/klst er hættulegt, mest þó fyrir þann sem er á hjólinu. Að aka bíl á 130 km/klst hraða er enn hættulegra, sérstak­lega fyrir aðra í umferðinni,“ skrifar Hjalti Már.

Hann segir að með sömu rökum og teflt sé fram í frumvarps­drögunum skyldi ætla „að það ætti að vera stefna löggjafans að innleiða búnað í öll vélknúin samgöngu­tæki sem takmarkar hversu hratt er hægt að fara, ekki bara rafhlaupahjól“.

„Þar sem flestir nýir bílar eru með stað­setningar­búnað ætti að vera hægt að takmarka hámarks­hraða ökutækja við leyfðan hámarks­hraða þeirrar götu sem ökutækinu er ekið á hverju sinni. Með vísan til hættu­eiginleika bifreiða fyrir aðra en þann ökumann sem brýtur gegn umferðar­lögum, ætti að vera meiri ástæða til að grípa til slíkra aðgerða og lagðar eru til í frum­varpinu, gagnvart bifreiðum frekar en rafhlaupahjólum,“ ritar bráða­læknirinn.

Að sama skapi segir hann að hættan sem ölvunar­akstur á rafhlaupahjólum skapar fyrir aðra vegfarendur sé engan veginn nægilega mikil til að hún réttlæti að við liggi refsirammi í lögum upp á allt að tveggja ára fangelsi.

„Að ferðast á rafhlaupahjóli ölvaður er afar óskynsamlegt. Hið sama má segja um að klifra upp í tré, valhoppa tröppur niður í kjallara eða nota borvél undir áhrifum áfengis. Reyndar má færa rök fyrir því að það sé almennt óskynsamlegt að verða ölvaður, því fylgir umtals­verð slysa­hætta,“ skrifar Hjalti Már og segir það sitt mat að hættan af notkun á rafhlaupahjólum undir áhrifum áfengis sé „að langmestu leyti fyrir þann sem er á rafhlaupahjólinu“.

Þannig sé „mikil­vægur grundvallar­munur á að aka bíl undir áhrifum áfengis eða að vera á rafhlaupahjóli“ – akstur bifreiðar undir áhrifum áfengis sé „stór­hættulegt athæfi“, ekki bara fyrir ökumanninn heldur fylgi ölvunar­akstri sennilega enn meiri hætta fyrir óvarða vegfarendur. „Því er eðlilegt að þung refsing liggi við því að stefna öðrum í hættu með ölvunar­akstri,“ skrifar Hjalti.

Hopp segir í sinni umsögn að notkun á rafhlaupahjólum undir áhrifum áfengis sé vandamál sem þarf að taka á, en segir að forvarnir og fræðsla sé betri leið til þess að takast á við vandann en þungar refsingar.

Fyrir­tækið gagnrýnir, rétt eins og yfir­læknir bráða­móttökunnar, að refsiramminn sem stefnt er að sé sá sami og fyrir ölvunar­akstur á bifreið og bendir á að afleiðingar slysa og óhappa sem ökumenn bíla valdi séu „margfalt meiri en nokkur notandi smáfarartækis getur orðið valdur að“.

„Smáfarartæki eru flest innan við 50 kg, komast aðeins í 25 km hámarks­hraða og bjóða fæst upp á að hafa farþega. Þyngd bíla er hins vegar mæld í tonnum og hámarks­hraði þeirra einskorðast aðeins við afl vélarinnar og loft­mótstöðu. Bílar eru einnig margfalt líklegri til að valda alvarlegum slysum eða dauða annarra vegfarenda. Þess má geta að refsiramminn er einnig tvö ár fyrir að sigla farþega­skipi undir áhrifum áfengis, kynferðis­lega áreitni og peninga­fals, svo fátt eitt sé 3 nefnt. Því er morgun­ljóst að tveggja ára refsirammi nær langt út fyrir það sem eðlilegt gæti talist miðað við þann skaða sem mögulega gæti hlotist af refsiverða athæfinu,“ segir í umsögninni frá Hopp, en fyrir­tækið telur einnig að það skjóti skökku við að „gera mun stífari kröfur til notenda smáfarartækja en annarra virkra ferðamáta“ eins og reiðhjóla og hesta, hvað ölvun varðar.

Takmarka útleigu um helgar fremur en að setja stífar reglur um áfengisnotkun

Lands­samtök hjólreiða­manna, LHM, senda sömuleiðis inn umsögn þar sem fram kemur að samtökin hafi ekki talið rétt að setja stífar reglur um notkun smáfarartækja undir áhrifum áfengis, heldur talað fyrir þeirri leið að setja hömlur á útleigu smáfara­tækja í miðborginni um helgar á milli 21 á kvöldin og til 6 á morgnana.

„Í því fælust betri forvirkar aðgerðir heldur en að sekta fólk eftir á þegar slys hefur þegar orðið. Það er nefnilega hætt við því að lögregla muni ekki sinna þessu verkefni í forvarnar­skyni heldur munu áhrifin fyrst og fremst verða að lögregla muni sekta þá ökumenn sem hafa lent í slysi undir áhrifum á rafhlaupahjóli. Það gæti jafnvel orðið til þess að fólk muni forðast það að kalla á aðstoð þegar það lendir í slysum til að forðast sektar­greiðslur,“ segir í umsögn LHM, sem benda reyndar einnig á það að sá sem aki smáfarartæki undir áhrifum sé „fyrst og fremst hættu­legur sjálfum sér, en ekki öðrum; ólíkt ökumanni á tveggja tonna bíl á miklum hraða“.

Lands­samtök hjólreiða­manna leggja áherslu á það í umsögn sinni að frumvarp innviða­ráðherra nái „ekki utan um þann alvarlega vanda sem tengist lagningu á deiliraf­skútum í þéttbýli“. „Skýrt þarf að vera hvar og hvernig eigi að ganga frá smáfarartækjum, sérstak­lega svokölluðum deiliraf­skútum. Rafskútum frá leigum er illa lagt á stígum og gangstéttum um allan bæ og getur stafað hætta af þeim fyrir þá sem hjóla um stígana,“ segir í umsögn LHM, en samtökin kalla eftir því að ákvæði um lagningu smáfarartækja verði færð inn í lög.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár