Konum líður verr í faraldrinum en körlum

Samkvæmt talna­brunni Land­lækn­is­emb­ætt­is­ins er tölu­verður munur á lík­am­legri og and­legri líðan karla og kvenna í COVID-19 far­aldr­inum. Á heild­ina litið líður körlum betur í ár en í fyrra en konum líður verr.

Land­lækn­is­emb­ættið birti nýlega talna­brunn þar sem farið er yfir líðan Íslend­inga á tímum COVID-19 far­ald­urs­ins frá tíma­bil­inu jan­úar til ágúst 2020. Þegar litið er yfir gögnin má sjá tölu­verðan mun á lík­am­legri og and­legri líðan karla og kvenna, bæði á tímum COVID-19 en einnig árið áður.  

Líkamleg heilsa

Þegar fólk var beðið um að meta lík­am­lega heilsu sína í mars og apríl á þessu ári mátu um það bil 75 pró­sent karl­manna hana góða eða mjög góða. Fleiri karlar mátu lík­am­lega heilsu sína góða á þessum tíma í ár en á sama tíma í fyrra. Það má þó sjá að eftir því sem leið á árið fór fjölda þeirra fækk­andi sem töldu lík­am­lega heilsu sína góða, en aldrei færri en árið áður. 

Færri konur  mátu lík­am­lega heilsu sína góða í mars og apríl 2020, eða 63,6 pró­sent, og er þar um að ræða aukn­ingu frá sama tíma­bili árið áður, eða um 1,6 pró­sent. Þegar fór hins vegar að líða á árið fækk­aði þeim konum sem mátu lík­am­lega heilsu sína góða og þær urðu færri en árið áður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár