Óljós mörk milli ríkisstarfsmanns og fyrirtækjaeigenda í rannsóknum á börnum

Almar Miðvík Halldórsson, verkefnis­stjóri hjá Námsmats­stofnun, er einn eigandi fyrir­tækis sem safnar, greinir og miðlar gögnum um grunn­skólabörn. Óljós mörk eru á milli starfs hans hjá ríkinu og einka­fyrir­tækisins.

Almar Miðvík Halldórsson, verkefnis­stjóri hjá Námsmats­stofnun, er einn eigandi félagsins Vísar rann­sóknir ehf. sem rekur meðal annars Skóla­púlsinn.

Samkvæmt heimasíðu félagsins er það „rannsóknar­fyrirtæki sem býður upp á sérhæfða söfnun, greiningu og miðlun gagna.“ Persónu­vernd gerði athuga­semdir við upplýsinga­söfnun félagsins árið 2010. Óskýr mörk eru milli fyrirtækja­rekstur Almars og starfs hans hjá ríkinu. Almar segir í samtali við Stundina að hann telur fyrirtækja­rekstur sinn ekki ósamræmanlegan við starf sitt hjá ríkinu.  

Þriðjungs eigandi

Almar á þriðjungs­hlut í félaginu og var skráður framkvæmda­stjóri í nýjasta ársreikningi félagsins sem er fyrir árið 2013. Á heimasíðu Vísar má sjá starfs­menn félagsins og var Almar þar til nýverið á þeim lista. Almar var fjar­lægður af þeim lista eftir blogg­færslu Ragnars Þórs Péturs­sonar um málið síðastliðinn miðvikudag. Almar er enn fremur ábyrgðar­aðili félagsins hjá Ríkis­skattstjóra. Auk þessa er Almar starfs­maður Námsmats­stofnun og er hann sagður á heimasíðu bera ábyrgð á alþjóð­legum rann­sóknum. Almar er þó iðulega kynntur sem verkefnis­stjóri PISA hjá stofnuninni. Námsmats­stofnun er stofnun sem heyrir stjórnar­fars­lega undir menntamála­ráðherra.

Heimsíða Skólapúlsins fyrir breytingu
Heimsíða Skóla­púlsins fyrir breytingu Hér má sjá skjáskot af vefsafni Lands­bókasafns Íslands frá 1. nóvember síðastliðnum. Almar var fjar­lægður í síðustu viku af listanum.
 

Almar segir að hann hafi hætt störfum hjá fyrirtæki sínu um áramótin, hann sé ekki lengur á launaskrá. Hann segir að hann hafi verið fjar­lægður af vefsíðunni að beiðni forstöðu­manns Námsmats­stofnunar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár