Veðsetning hlutabréfa hefur aukist um tugi milljarða á einu ári

Hlutfall þeirra hluta­bréfa í skráðum félögum sem eru veðsett hefur ekki verið hærra eftir bankahrun. Á einu ári hefur markaðs­virði þeirra aukist um 63 milljarða króna.

Í lok ágúst síðastliðins voru 16,98 prósent allra hluta­bréfa í félögum sem skráð eru í Kauphöll Íslands veðsett. Það er hæsta hlutfall veðsettra hluta­bréfa sem sést hefur frá því að íslenskur hlutabréfa­markaður var endur­reistur á árunum eftir banka­hrunið.

Upphæð veðsettra hluta­bréfa náði sínu hæsta marki eftir banka­hrunið í júlí síðastliðnum, þegar markaðs­virði veðsettra hluta var 177,4 milljarðar króna. Á einu ári hafði markaðs­virði veðsettra hluta­bréfa aukist um 64,2 milljarða króna, eða um 56,7 prósent.

Markaðs­virði þeirra bréfa sem voru veðsett dróst lítillega saman í krónum talið milli júlí og ágúst­mánaða, alls um fjóra milljarða króna, en heildar­markaðs­virði þeirra félaga sem eru skráð í Kauphöll Íslands gerði það líka. Það var 1.096 milljarðar króna í lok júlí en 1.021 milljarðar króna í lok ágúst. Hlutfall veðtöku jókst því úr 14,84 prósentum í 16,98 prósent, og hefur ekki verið hærra eftir hrun.

Þetta kemur fram í markaðs­tilkynningu frá Kauphöll Íslands sem birt var í dag.

Mikil veðsetning á árunum fyrir hrun

Veðsetning hluta­bréfa var mjög algeng á árunum fyrir hrun, og bjó meðal annars til mikla kerfis­lega áhættu hérlendis. Stór fjár­festingar­félög, sem áttu meðal annars stóra hluti í bönkum, fengu þá lánaðar háar fjárhæðir með veði í bréfum, til að kaupa önnur hlutabréf. Þegar eitthvað súrnaði varð keðjuverkun vegna kross­eignarhalds.

Auk þess lánuðu íslenskir bankar fyrir hlutabréfa­kaupum í sjálfum sér með veði í bréfunum sjálfum. Með því var öll áhættan hjá bönkunum sjálfum ef illa færi. Tilgangurinn var að skapa markað fyrir bréf sem engin eðlileg eftir­spurn var eftir, og þar með til að hafa áhrif á eðlilega verð­myndun. Hæstiréttur Íslands hefur komist að þeirri niður­stöðu í málum gegn öllum gömlu stóru bönkunum þremur að þetta atferli hafi falið í sér markaðs­misnotkun.

Tekið hefur verið fyrir þessa hegðun með laga­breytingum á undan­förnum árum.

Aukist hratt á þessu ári

Veðsett hlutabréfa­kaup hafa ekki verið jafn algengt tísku­fyrirbrigði síðastliðinn áratug og þau voru áður, þótt vissulega séu undan­tekningar þar á. Í lok árs 2014 var markaðs­virði veðsettra hluta 11,25 prósent af heildar­markaðs­virði félaga í Kauphöll Íslands.

Eftir að heildar­markaðs­virðið skreið aftur yfir eitt þúsund milljarða króna árið 2015 og fram á haustið 2018 var markaðs­virði veðsettra hluta nokkuð stöðugt í lengri tíma, frá um 105 milljörðum kóna og upp í 123 milljarða króna. Hlutfall veðtöku af heildar­markaðs­virði skráðra félaga á þessu tímabili var frá um tíu prósent og upp í tæplega 14 prósent.

Þá virðist hafa átt sér stað einhver breyting. Síðastliðið ár hefur markaðs­virði veðsettra hluta aukist mjög hratt, eða alls um 64,2 milljarða króna. Stærstu stökkin voru tekin frá síðastliðnum áramótum og fram til dagsins í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár