Sóknargjöld lækka um 215 milljónir króna milli ára

Millj­arðar króna renna úr rík­is­sjóði til trú­fé­laga á hverju ári. Langmest fer til þjóð­kirkj­unnar og í fyrra var ákveðið að hækka tíma­bundið einn tekju­stofn trú­fé­laga um 280 millj­ónir króna. Nú hefur sú tíma­bundna hækkun verið felld niður.

Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, ásamt Agnesi M. Sigurðardóttur, biskup Íslands.
Guðni Th. Jóhann­es­son, for­seti Íslands, ásamt Agnesi M. Sig­urð­ar­dóttur, biskup Íslands. Mynd: Bára Huld Beck

Sókn­ar­gjöld, lög­boðið fram­lag til sókna þjóð­kirkj­unnar og ann­arra trú­fé­laga, munu verða 985 krónur á mán­uði fyrir hvern skráðan ein­stak­linga 16 ára og eldri á næsta ári.

Það mun lækka úr 1.080 krónum á þessu ári og sam­kvæmt fyr­ir­liggj­andi fjár­laga­frum­varpi munu sókn­ar­gjöld alls verða 2.757 millj­ónir króna á árinu 2022. Það er um 215 millj­ónum krónum lægri upp­hæð en á að fara í sókn­ar­gjöld í ár.

Ástæðan fyrir lækk­un­inni er að nú á að fast­setja fjár­hæð sókn­ar­gjalda, í 985 krónum fyrir hvern ein­stak­ling sem slík eru greidd fyrir. Það var reyndar líka gert í fjár­laga­frum­varpi árs­ins 2021, þegar upp­hæðin var 980 krónur.

Ástæða þess að end­an­leg sókn­ar­gjöld urðu hærri í ár er að efna­hags- og við­skipta­nefnd ákvað að gera til­lögu um 100 króna tíma­bundna hækkun sókn­ar­gjalda eftir umfjöllun sína um fjár­laga­frum­varpi fyrir um ári síðan. Sú til­laga var sam­þykkt og leiddi það til 280 millj­óna króna við­bót­ar­kostn­aðar vegna sókn­ar­gjalda í ár. Nú hefur þessi tíma­bundna hækkun verið felld niður.

Rúmlega 60 prósent eru í þjóðkirkjunni

Alls fara 7.951 millj­ónir króna í mála­flokk­inn trú­mál á næsta ári sam­kvæmt fjár­lögum. Í sam­ræmi við nýjan við­bót­ar­samn­ing um end­ur­skoðun á kirkju­jarð­ar­sam­komu­lag­inu frá 1997 og samn­ingi um rekstr­ar­kostnað kirkj­unnar frá 1998 sem var und­ir­rit­aður fyrir rúmum tveimur árum fær þjóð­kirkjan þorra þess­arar upp­hæðar. Árlega fær hún fram­lög frá rík­inu á grund­velli kirkju­jarða­sam­komu­lags­ins sem og fram­lög sem renna til Kirkju­mála­sjóðs og Jöfn­un­ar­sjóðs sókna.

Í kirkju­jarða­sam­komu­lag­inu fólst að ríkið yfir­tók hund­ruð jarða sem kirkjan átti upp­haf­lega, gegn því að greiða laun presta.

Til við­bótar fær þjóð­kirkjan greidd sókn­ar­gjöld og ef miðað er við að 61,1 pró­sent íbúa lands­ins til­heyra henni sam­kvæmt nýj­ustu birtu tölum Þjóð­skrár þá má ætla að hlut­deild þjóð­kirkj­unnar í útgreiddum sókn­ar­gjöldum verði á næsta ári verði tæp­lega 1,7 millj­arðar króna. Önnur trú­fé­lög skipta svo á milli sín tæp­lega 1,1 millj­arði króna.

Rúmur helmingur vill aðskilnað

Kjarninn greindi frá því í síð­asta mán­uði að ein­ungis 15 pró­sent lands­manna eru ánægð með störf Agn­esar M. Sig­urð­ar­dótt­ur, bisk­ups Íslands, sam­kvæmt nýjum þjóð­ar­púlsi Gallup.

Þriðj­ungur lands­manna, alls 33 pró­sent, sögð­ust treysta þjóð­kirkj­unni en 36 pró­sent treystu henni ekki. Þetta eru svipuð hlut­föll og hafa verið á und­an­förnum árum þegar spurt hefur verið um traust til kirkj­unn­ar. 

Alls sögð­ust 51 pró­sent lands­manna að þeir vildu aðskilnað ríkis og kirkju. Hlut­fallið lækk­aði lít­il­lega frá árinu 2019 þegar 55 pró­sent sögð­ust á þeirri skoðun en það hefur verið yfir 50 pró­sent í næstum árlegum könn­unum Gallup frá árinu 2007.

Í þjóð­ar­púls­inum sást að fólk undir fer­tugu er helst hlynnt aðskiln­aði.

Telur samkomulagið kosta ríkið yfir 100 milljarða

Siggeir F. Ævarsson, fram­kvæmda­stjóri lífs­skoð­un­ar­fé­lags­ins Sið­menntar, skrif­aði grein á Vísifyrir tæpum mán­uði síðan þar sem hann færði rök fyrir því að kirkju­jarða­sam­komu­lagið frá 1997 væru óhag­stæð­ustu samn­ingar Íslands­sög­unnar. Hann sagði að þeir myndu að end­ingu kosta ríkið yfir 100 millj­arða króna og skila litlu sem engu til baka.

Í grein Siggeirs sagði að fast­eigna­mat þeirra kirkju­jarða sem væru enn í eigu rík­is­ins væri undir 2,8 millj­örðum króna. Upp­reiknað virði þeirra jarða sem hefðu verið seldar væri um 4,2 millj­arða króna. Því væri upp­reiknað heild­ar­viðir jarð­anna um sjö millj­arðar króna. Það er minna en sam­an­lagðar heild­ar­greiðslur rík­is­sjóðs til þjóð­kirkj­unnar á árunum 2021 og 2022.

Siggeir sagði í grein sinni að þegar sam­komu­lagið væri á enda runnið væri ríkið búið að greiða vel yfir 100 millj­arða króna fyrir jarð­irnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár