Landsvirkjun hagnaðist um 13,6 milljarða króna í fyrra

Lágt álverð á heims­markaði, sem tryggir minni tekjur af raforku­sölu til stærsta viðskipta­vinar Lands­virkjunar, og stöðvum á kerskála Rio Tinto í Straumsvík, drógu úr hagnaði Lands­virkjunar í fyrra. Eigið fé ríkis­fyrir­tækisins er um 271 milljarður króna.

Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar.
Hörður Arnarson, for­stjóri Lands­virkj­unar. Mynd: Bára Huld Beck

Hagnaður Lands­virkjunar var 13,6 milljarðar króna á síðasta ári, sem er svipaður hagnaður í íslenskum krónum og árið 2018. Þegar hagnaðurinn er skoðaður í Bandaríkja­dölum dróst hann þó saman um tæp sjö prósent.

Þetta kemur fram í ársreikningi Lands­virkjunar sem birtur var í dag.

Lands­virkjun, sem er að öllu leyti í eigu íslenska ríkisins, hagnaðist um 21 milljarð króna á síðasta ári fyrir óinnleysta fjármagns­liði. Það er 5,9 prósent minni hagnaður en árið 2018 og spilar tekjutap vegna stöðvunar á kerskála þrjú hjá Rio Tinto í Straumsvík þar megin­rullu. Það tekjutap er metið á 16 milljónir dala, eða um 1,9 milljarð króna.

Auk þess var afurða­verð stórra viðskipta­vina Lands­virkjunar, sem eru að uppistöðu þrjú stór álver, lágt og hafði það neikvæð áhrif á tekjur. Þar skiptir mestu máli að stærsti orku­sölu­samningur Lands­virkjunar, við Alcoa Fjarðarál, er enn bundinn við þróun álverðs á heims­markaði, sem lækkaði mikið í fyrra. Alls er um að ræða 33 prósent af raforku­sölu Lands­virkjunar.

Rekstrar­tekjur Lands­virkjunar lækkuðu um 4,6 prósent milli ára og voru 61,7 milljarðar króna. Alls greiddi fyrir­tækið um 7,2 milljarða króna í tekju­skatt á síðasta ári. 

Eigið fé um 271 milljarður króna

Skuldir Lands­virkjunar hafa lækkað hratt undan­farin ár og engin breyting varð þar á í fyrra. Nettó lækkuðu þær um 23,4 milljarða króna á árinu og voru í árslok 204,7 milljarðar króna, eða 1.691 milljón Bandaríkja­dala. Mats­fyrirtækið Moody's hækkaði lánshæfis­einkunn fyrir­tækisins á árinu og S&P Global Ratings breytti horfum á sinni einkunn úr stöðugum í jákvæðar.

Eigið fé Lands­virkjunar var 2.235 milljónir Bandaríkja­dala í árslok 2019, eða um 271 milljarðar króna. Flestir sérfræðingar telja reyndar að eignir Lands­virkjunar séu verulega vanmetnar – þær voru 531 milljarður króna um síðustu áramót – þar sem enn eigi eftir að uppfæra virði virkjana í eigu fyrir­tækisins að raunvirði.

Í fyrra greiddi Lands­virkjun um 4,3 milljarða króna í arð til eiganda síns vegna frammistöðu ársins 2018. Stjórn félagsins mun á komandi aðalfundi gera tillögu um arðgreiðslu til eigenda. Í nán­ustu fram­tíð er áætlað að hægt verði að greiða 10 til 20 millj­arða króna á ári úr Lands­virkjun í arð til eig­anda síns. Til stendur að þessar arð­greiðslur myndi grunn fyrir Þjóð­ar­sjóð sem í á að vera um 500 millj­arðar króna eftir tæpa tvo ára­tugi. Frumvarp um Þjóðar­sjóð er þó enn ósamþykkt og er sem stendur í þinglegri meðferð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár