Lítið gerst í úttekt á Heilsustofnun í Hveragerði og óvíst hvort henni verði haldið áfram

Fyrir rúmum tveimur árum var gerður nýr þjón­ustu­samn­ingur við Heilsu­stofn­un­ina í Hvera­gerði. Skömmu síðar var upp­lýst um rekstr­ar­kostnað sem vakti upp spurn­ingar. Ráðist var í úttekt á starf­sem­inni í kjöl­farið. Hún hefur engu skilað.

Sjúkratryggingar Íslands greiða stærstan hluta af þjónustu sem veitt er á Heilsustofnuninni í Hveragerði.
Sjúkra­trygg­ingar Íslands greiða stærstan hluta af þjón­ustu sem veitt er á Heilsu­stofn­un­inni í Hvera­gerði. Mynd: Úr safni

Úttekt Sjúkra­trygg­inga Íslands á starf­semi Heilsu­stofn­un­ar­innar Nátt­úru­lækn­inga­fé­lags Íslands í Hvera­gerði hefur litið þok­ast frá því í byrjun árs í fyrra, þegar ráð­ist var í hana. Þetta kemur fram í svari frá Maríu Heim­is­dóttur, for­stjóra Sjúkra­trygg­inga, við fyr­ir­spurn Kjarnans um málið.

Þar segir enn fremur að úttektin sé „á bið og ekki hefur verið tekin afstaða til þess hvort því verður haldið áfram.“ Ástæðan séu annir, meðal ann­ars í tengslum við COVID-19.

Sjúkra­trygg­ingar end­ur­nýj­uðu þjón­ustu­samn­ing sinn við Heilsu­stofn­un­ina 1. apríl 2019 til þriggja ára. Hann tryggði 875,5 millj­óna króna fjár­veit­ingu til starf­sem­innar úr rík­is­sjóði á árinu 2019 og 901 milljón króna í fyrra.

Sá samn­ing­ur, sem skrifað var undir eftir þriggja ára við­ræður og níu fram­leng­ingar fyrri þjón­ustu­samn­ings, felur í sér ákvæði um hvernig sé heim­ilt að ráð­stafa fé sem greitt er vegna samn­ings­ins. Ríkið greiðir alls um 67 pró­sent að heild­ar­rekstr­ar­kostn­aði stofn­un­ar­innar en hitt sem upp á vantar er greitt með inn­heimtu sér­tekna, þar á meðal sala stofn­un­ar­innar á vörum og þjón­ustu til ann­arra.

Samkvæmt rekstr­ar­reikn­ingi Heilsu­stofn­unar Nátt­úru­lækn­inga­fé­lags Íslands, sem er að finna í árs­reikn­ingi hennar fyrir árið 2018, jókst kostn­aður við rekstur stjórnar félaga­sam­tak­anna um 43,3 pró­sent á því ári, fór úr 12,8 millj­ónum króna í 18,4 millj­ónir króna. Í frétt Stund­ar­innar frá því í júlí 2019 kom fram að Gunn­laugur K. Jónsson, stjórn­ar­for­maður Heilsu­stofn­un­ar­innar, hefði fengið 1,2 millj­ónir króna á mán­uði í greiðslur á því ári.

Vildu ekki upplýsa um greiðslur

Kjarninn sendi síðla árs 2019 fyr­ir­spurn til Brynjars Þórs­sonar, fram­kvæmda­stjóra rekstrar hjá Heilsu­stofnun, og spurði meðal ann­ars um auk­inn kostnað við rekstur stjórnar á árinu 2018.

Í svörum hans sagði meðal ann­ars að laun stjórnar stofn­un­ar­innar væru ákveðin af stjórn Nátt­úru­lækn­inga­fé­lags Íslands, eig­anda Heilsu­stofn­un­ar­innar. Forseti þess félags er líka stjórn­ar­for­maður Heilsu­stofn­un­ar­innar, Gunn­laugur K. Jónsson. Hann starfar einnig sem aðstoð­ar­yf­ir­lög­reglu­þjónn hjá lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Stofn­andi heilsu­stofn­un­ar­innar, Jónas Krist­jáns­son, var langafi hans.

Gunn­laugur tekur því sjálfur þátt í að ákveða laun sín. Auk þess er vara­for­seti Nátt­úru­lækn­inga­fé­lags­ins, Geir Jón Þórisson, fyrr­ver­andi vara­þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og fyrr­ver­andi yfir­lög­reglu­þjónn, vara­maður í stjórn Heilsu­stofn­unar. Aðrir í stjórn eru Inga Dóra Sig­fús­dóttir pró­fessor og Bryndís Björk Ásgeirs­dóttir dós­ent. Þórir Har­alds­son lög­fræð­ingur sat í stjórn­inni árið 2018 í stað Bryn­dísar. Þá situr Baldvin Jónsson verk­efna­stjóri með Geir Jóni í vara­stjórn.

Erfið samskipti

Í svörum fram­kvæmda­stjór­ans kom einnig fram að greiðslur fyrir stjórn­ar­setu í Heilsu­stofnun Nátt­úru­lækn­inga­fé­lags Íslands á árinu 2018 hafi verið á á bil­inu 17 – 170 þús­und krónur á mán­uði. Í rekstr­ar­stjórn­inni sitja þrír aðal­menn auk þess þess sem tveir sitja í vara­stjórn. Jafnvel þótt allir fimm hefðu fengið hæstu mögu­leg mán­að­ar­laun allt árið 2018 þá hefði heild­ar­kostn­aður samt sem áður ekki verið nema 10,2 millj­ónir króna. Þær greiðslur útskýra því ekki þann kostn­að­ar­auka sem varð við rekstur stjórnar á árinu 2018.

Samkvæmt rekstr­ar­reikn­ingi Heilsu­stofn­unar Nátt­úru­lækn­inga­fé­lags Íslands, sem er að finna í árs­reikn­ingi hennar fyrir árið 2018, jókst kostn­aður við rekstur stjórnar félaga­sam­tak­anna um 43,3 pró­sent á því ári, fór úr 12,8 millj­ónum króna í 18,4 millj­ónir króna. Í frétt Stund­ar­innar frá því í júlí 2019 kom fram að stjórn­ar­for­maður Heilsu­stofn­un­ar­innar hefði fengið 1,2 millj­ónir króna á mán­uði í greiðslur á því ári.

Í svörum Brynjars við fyr­ir­spurn Kjarnans vegna þessa sagði að upp hefði komið „verk­efni sem stjórn þurfti að grípa inn í, umfram það sem áður hefur verið. Þar var meðal ann­ars um að ræða samn­inga­mál við Sjúkra­trygg­ingar Íslands og erfið sam­skipta­vanda­mál innan stofn­un­ar­innar þar sem meðal ann­arra aðgerða þurfti að kalla til aðstoð vinnu­staða­sál­fræð­ings. Þungi þeirrar vinnu var unnin af stjórn­ar­for­manni.“ Þá sagði Brynjar að vegna mis­taka hefðu 2,5 millj­ónir króna verið færðar á þennan lið í árs­reikn­ingi, en það hafi ekki komið í ljós fyrr en eftir gerð hans.

Trúnaður um stjórnarlaun

Kjarninn spurði stofn­un­ina einnig hvernig greiðslur skipt­ust niður á ein­stak­linga en fram­kvæmda­stjóri rekstrar neit­aði að svara þeirri fyr­ir­spurn og sagði greiðslur til ein­stak­linga trún­að­ar­mál.

Þegar spurn­ingin var ítrekuð, með vísun í að starf­semi Heilsu­stofn­unar væri að uppi­stöðu fjár­mögnuð með opin­beru fé, og óskað skýr­inga á því hvaða hags­munir krefð­ust þess að um stjórn­ar­laun ríkti trún­aður, þá barst ekk­ert svar.

Í árs­reikn­ingi Heil­stofn­un­ar­innar fyrir árið 2018 kom fram að kostn­aður vegna umsjónar og rekst­urs fast­eigna/lausa­fjár­muna hafi auk­ist um 64,2 pró­sent á árinu 2018 , úr 119,1 millj­ónum króna í 195,6 millj­ónir króna.

Brynjar svar­aði því til að á árinu 2018 hafi verið ráð­ist í „við­halds­fram­kvæmdir sem höfðu setið á hak­anum und­an­farin ár, m.a. skipti á þakjárni, end­ur­nýjun gól­f­efna og lag­fær­ing á her­bergja­álmum sem skýrir hækkun á liðnum milli ára.“

Árs­reikn­ingur fyrir árin 2019 og 2020 er ekki aðgengi­legur á heima­síðu Heilsu­stofn­un­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár