Búa sig undir átök um fjárlög Evrópusambandsins

Leiðtogar fjögurra ríkja sem vilja meira aðhald innan Evrópu­sambandsins komu saman í Þýska­landi í dag, til þess að búa sig undir umræður um fjárlög sambandsins.

Christian Stocker, kanslari Austurríkis, Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, Friedrich Merz, kanslari Þýskalands, og Petteri Orpo, forsætisráðherra Finnlands, stilla sér upp í kanslarahöllinni í Berlín.
Christian Stocker, kansl­ari Aust­ur­ríkis, Mette Frederik­sen, for­sæt­is­ráð­herra Dan­merkur, Friedrich Merz, kansl­ari Þýska­lands, og Petteri Orpo, for­sæt­is­ráð­herra Finn­lands, stilla sér upp í kansl­ara­höll­inni í Berlín. Mynd: AFP

Þýski kanslarinn Friedrich Merz tók í dag á móti leiðtogum þriggja annarra aðildar­ríkja Evrópu­sambandsins sem teljast til svokallaðra „aðhalds­ríkja“, Austur­ríkis, Danmerkur og Finnlands, til viðræðna í Berlín.

Fundurinn fer fram á sama tíma og 27 aðildar­ríki Evrópu­sambandsins búa sig undir erfiðar samninga­viðræður um sameiginleg fjárlög sambandsins fyrir sjö ára tímabil frá 2028 til 2034.

Merz hefur krafist þess að framkvæmda­stjórn Evrópu­sambandsins skeri niður nærri tveggja billjóna evra fjárlaga­tillögu sína um hundruð milljarða evra og hefur sagt áætlunina „óviðráðanlega“.

Til að móta sameiginlega afstöðu mun hann funda með Christian Stocker, kanslara Austur­ríkis, og forsætis­ráðherrunum Mette Frederiksen frá Danmörku og Petteri Orpo frá Finnlandi.

„Aðhalds­ríki“ ESB, en til þeirra teljast einnig Holland og Svíþjóð, hafa tilhneigingu til að krefjast meiri aga í ríkis­útgjöldum. Hefur það jafnan sett þau upp á móti ríkjum á borð við Ítalíu, Spán og Pólland, sem styðja stærri fjárlög.

Reyna að ná …

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Horft til Evrópu

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár