Ríkisendurskoðun haggast ekki í afstöðu sinni þrátt fyrir gagnrýni

„Ekki er um neinn misskilning af hálfu Ríkis­endur­skoðunar að ræða,“ segir í tilkynningu stofn­un­ar­innar, sem gagnrýnd hefur verið undan­farna daga fyrir skýrslu um einka­væðingu 22,5 prósenta hlutar í Íslands­banka.

Salan skoðuð
Salan skoðuð Rík­is­end­ur­skoðun gerði fjöl­margar athuga­semdir við sölu­ferli Banka­sýslu rík­is­ins á 22,5 pró­senta hlutar í Íslands­banka. Mynd: Heiða Helgadóttir

Ríkis­endurskoðun segir skýrslu sína um einka­væðingu á 22,5 prósenta hlutar í Íslands­banka standa óhaggaða, þrátt fyrir gagnrýni forsvars­manna Banka­sýslunnar og tiltekinna fjölmiðla undan­farna daga. Þetta kemur fram í tilkynningu frá stofnuninni. 

Þar talar Ríkis­endurskoðun um aðdróttanir ákveðinna fjölmiðla, sem hafi gefið til kynna að annarleg sjónarmið hafi ráðið för við úttektar­vinnu embættisins á einka­væðingu Íslands­banka, að umfjöllun Ríkis­endur­skoðunar um tilboðabók sölu­ferlisins byggi á misskilningi embættisins. „Það er rangt,“ segir í tilkynningunni. 

Málið snýst aðalega um excel-skjal sem notað var til að safna tilboðum frá ólíkum sölu­aðilum í útboðinu. Eins og rakið er í skýrslu Ríkis­endur­skoðunar voru send út skjöl sem sölu­aðilar fylltu út í og sendu til baka. Þeim var síðan steypt saman í eitt stórt excel-skjal, vistuðu á Microsoft Teams drifi í Íslands­banka, og það notað til grund­vallar mats á eftir­spurn eftir ríkis­hlutum í bankanum. 

„Ekki er um neinn mis­skiln­ing af …
Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár