Olíuverðið hækkar og hækkar

Olíuverð hefur hækkað mikið að undan­förnu. Það eru ekki góð tíðindi fyrir íslenska hagkerfið.

Verðið á tunnunni af hráolíu fór í gær upp fyrir 81 Bandaríkjadal og hefur ekki verið hærra í fjögur ár. Á undan­förnum tveimur vikum hefur það hækkað um tíu prósent og það sem af er ári um meira en 45 prósent.

Fastlega er búist við að verðið muni jafnvel hækka upp í þær hæðir sem það var í árið 2014, áður en það tók snögga dýfu niður á við. Þá fór það úr 110 Bandaríkja­dölum á tunnuna niður í 25 Bandaríkja­dali á ríflega einu og hálfu ári.

Fyrir Ísland er mikil hækkun olíuverðs ekki góð tíðindi. Fyrir flug­félögin, WOW Air og Icelandair, er hækkunin sérlega íþyngjandi, í krefjandi rekstrar­umhverfi, og það sama á við um útgerðar­fyrirtækin. Almennt á litið þá er hátt verð á olíu ekki gott fyrir Ísland, þar sem það hefur afleidd áhrif á verðlag og ýtir jafnan undir verðbólgu­þrýsting vegna hærra verðs á innfluttum vörum.

Ein ástæða þess að verðið hefur hækkað eru viðskipta­þvinganir gagnvart Íran, að því er fram kemur í umfjöllun breska ríkis­útvarpsins BBC. Framboðið hefur dregist saman á sama tíma og eftir­spurn hefur aukist. Það hefur ýtt verðinu upp á við.

Donald Trump Bandaríkja­forseti, sem beitti sér sérstak­lega fyrir viðskipta­þvingunum gagnvart Íran, hefur kallað eftir því að samtök olíu­framleiðslu­ríkja (OPEC) taki ákvörðun um að auka fram­leiðslu stórkost­lega með það að markmiði að lækka olíu­verðið. Hann sagði í tísti á Twitter aðgangi sínum, 20. september, að Banda­ríkin legðu sitt af mörkum við að tryggja öryggi miðausturlanda en þau beittu sér aðeins fyrir því að hækka olíu­verðið. Hann bætti svo við, að þessu myndu Banda­ríkin ekki gleyma.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár