Ruglið í fréttastraumi Facebook veldur titringi

Mark Zuckerberg segir unnið að umbótum, en hann segir að það þurfi að fara varlega. Facebook hafi það mikil áhrif.

Eftir að New York Times greindi frá því á mánudaginn, að stjórn­endur Facebook hefðu rætt það sín á milli, hvort það væri „þeim að kenna“ að Donald Trump hefði unnið forseta­kosningarnar í Banda­ríkjunum, þá hefur mikil umræða spunnist um það á hvaða vegferð samfélags­miðlarnir séu þegar kemur að umræðu um hin ýmsu mál.

Ekki okkur að kenna

Facebook hefur sérstak­lega verið til umræðu í Banda­ríkjunum, og sá Mark Zuckerberg, forstjóri og stofnandi Facebook, ástæðu til að skrifa um þetta á Facebook síðu sína 13. nóvember síðastliðinn. Í grein hans á síðunni, segir hann 99 prósent af því sem sett er fram á Facebook sé greinanlegt eftir höfundi og þannig auðrekjanlegt. Örlítill hluti af heildinni sé það ekki, því „afar ólíklegt“ Facebook hafi ekki haft áhrif á það hvernig fór í kosningunum 8. nóvember síðastliðinn.

Í pistlinum segir hann einnig, að það sé ekki í verka­hring Facebook að ritskoða efnið sem sé dreift á samfélags­miðlinum og virða þurfi skoðana­frelsi í hvívetna. Hins vegar geti fyrir­tækið gert meira til að tryggja að fólk sjái fyrst og fremst það sem það hefur áhuga á og villa sjá. Alltaf megi gera betur og það ætli fyrir­tækið að gera.

Róar ekki fólk

Á vefnum Inc.com, sem fjallar um nýsköpun og viðskipti, segir að starfs­fólk Facebook sé ósátt við hvernig frétta­straumi (News Feed) sé háttað, þar sem oft birtist á honum áróðurs­kenndar umfjallanir sem fólk hafi ekki óskað eftir. Þetta hafi verið áberandi í aðdrag­anda kosninganna og margar af vinsælustu fréttunum á Facebook, samkvæmt BuzzFeed, hafi verið rangar og uppspuni frá rótum.

Þessu hafa starfs­mennirnir áhyggjur, og vilja gera breytingar til úrbóta.

Wall Street Journal greindi frá því í gær að Google og Twitter væru einnig undir pressu vegna þess hversu vaxandi villandi áróður væri orðinn á netinu, og hversu auðvelt það virtist vera að koma honum fyrir augu fólks.

Facebook er þó orðið áhrifa­meira, en samfélags­miðillinn er nú með 1,8 milljarð manna sem notendur um allan heim mánaðar­lega, og notkun eykst stöðugt, sérstak­lega á farsímum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár