Norska ríkið selur SAS

Norska ríkið seldi allan sinn hlut í flug­félaginu SAS fyrr í dag, en hlutabréf félagsins lækkuðu um 3% í kjölfarið.

Erna Solberg, forsætisráðherra Noregs
Erna Solberg, for­sæt­is­ráð­herra Noregs

Atvinnu-og sjávar­útvegs­ráðuneyti Noregs tilkynnti í gær áform sín um að selja 10% hlut sinn í flug­félaginu. Í kjölfar tilkynningarinnar lækkaði verð á hluta­bréfum félagsins um rúm 3% við opnun markaða í dag.

Ríkis­stjórn Noregs og NRK greindu frá því fyrr í dag að allir útistandandi hlutir sem norska ríkið átti í flug­félaginu væru seldir, en sölu­verðið nam 597 milljónum norskra króna, sem jafn­gildir tæpum 7,9 milljörðum íslenskra króna. Fréttir af sölunni birtist degi eftir tilkynningu atvinnu-og sjávar­útvegs­ráðuneytis Noregs þar sem áhugi ríkisins á að selja hlut sinn í félaginu var tilgreindur. Samkvæmt tilkynningunni segir efnahags­ráðherra landsins, Torbjørn Røe Isaksen, að ríkis­stjórnin hafi verið skýr með að eiga ekki hluti í SAS til langs tíma.

Forsætis­ráðherra landsins, Erna Solberg, sagði sömuleiðis að salan hafi lengi legið í kortunum og ríkis­stjórnin hafi fullt umboð til þess.

70 ára saga á enda

Með sölunni lýkur meira en 70 ára eignar­sögu norska ríkisins á SAS. Flug­félagið, sem fullu nafni heitir Scandinavian Airlines, var stofnað árið 1946 úr samruna opinberra flug­félaga Noregs, Svíþjóðar og Danmerkur. Megin­markmið félagsins var að vera í stakk búin fyrir langar vega­lengdir, en fyrsta áætlunar­flug félagsins var á milli Stokk­hólms og New York. Árið 2001 fór SAS svo á hlutabréfa­markað í Skandínavíulöndunum þremur, en ríkis­stjórnir landanna áttu þá samanlagt helming allra hluta­bréfa fyrir­tækisins.

Salan hefur verið gagnrýnd af Verkamanna­flokknum og Miðju­flokknum þar í landi, en Terje Aasland, talsmaður Verkamanna­flokksins, segir ríkis­stjórnina virðast ætla að selja hlut sinn til þess eins að selja. Geir Pollestad, þingmaður Miðju­flokksins, segist hræðast sölu­maraþon af hálfu ríkis­stjórnarinnar, þar sem hún muni selja út mikilvæg fyrirtæki til erlendra aðila.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár