Gerðu ekki ráð fyrir hvelfingu með beljandi árfarvegi undir húsinu

„Í leit­inni að Lúðvík kemur í ljós þessi gríð­ar­lega hvelf­ing undir því húsi og ég held að við höfum ekki átt von á,“ segir Guðrún Haf­steins­dóttir, dóms­mála­ráð­herra. Hún var við­mæl­andi Helga Seljan í tíunda þætti af Pressu. Von er á end­ur­skoðun á almanna­varn­ar­lögum í heild sinni.

„Jörðin gleypir mann. Þá finnum við mjög fyrir því að Grinda­vík er ekki eins traust og við vorum að von­ast eftir að hún væri eftir að kviku­gang­ur­inn mynd­ast undir Grinda­vík,“ sagði Guðrún Haf­steins­dóttir, dóms­mála­ráð­herra, við­mæl­andi Helga Seljan í nýjasta þætti af Pressu. Fjöl­mörg­um spurn­ing­um er enn ósvar­að um ákvarð­ana­töku og at­burða­rás í að­drag­anda þess að Lúð­vík Pét­urs­son féll of­an í sprungu sem lá í gegn­um húsa­garð í Grinda­vík. Veð­ur­stof­an hafði sér­stak­lega var­að við sprungu­hreyf­ing­um en áhættu­mat lá ekki enn fyr­ir.

Nákvæm­lega tveimur mán­uðum eftir að íbúar Grinda­víkur höfðu allir sem einn yfir­gefið bæinn í kjöl­far stórra jarð­skjálfta, kom­ist heilt á húfi undan ham­förum, hvarf Lúðvík Pét­urs­son ofan í sprungu. Hann hafði verið að vinna við að þjappa jarð­veg ofan á holu í húsa­garði við göt­una Vest­ur­hóp.

Tveimur sól­ar­hringum síðar, eftir flókna og for­dæma­lausa björg­un­ar­að­gerð við stór­hættu­legar aðstæður í hyl­djúpri sprung­unni, var leit að honum hætt. 

Spurn­ing­arnar sem ætt­ingjar Lúðvíks spyrja sig og vilja að verði svarað með rann­sókn, annarri en þeirri sem Vinnu­eft­ir­litið vinnur nú að, hafa vaknað hjá fleirum. Til að mynda setja þeir spurn­ing­ar­merki við það hvers vegna verk­takar voru sendir inn á lóð íbúð­ar­húss, til að fylla upp í sprungu. 

Áttu ekki von á hvelfingu undir húsinu

„Í leit­inni að Lúðvík kemur í ljós þessi gríð­ar­lega hvelf­ing undir því húsi og ég held að við höfum ekki átt von á því að hún væri svona mikil með belj­andi árfar­vegi þar undir.“ Guðrún segir málið vera til rann­sóknar. 

„Ég hef heim­ild, sam­kvæmt almanna­varna­lögum, til þess að kalla eftir ytri og innri úttekt. Mér finnst mjög eðli­legt að það verði gert, þannig að vita­skuld þegar að svona hörmu­legir atburðir eigi sér stað að þá eigum við að rann­saka þá til hlítar. Hvað gerð­ist? Hefði verið hægt að koma í veg fyrir það eða ekki?“

Guðrún ítrek­aði að allar aðgerðir sem Almanna­varnir hafi ráð­ist í hafi verið gerðar að vel ígrund­uðu máli og fullum heil­indum til að tryggja öryggi þeirra sem þar starfa og búa. „Það er algjör for­senda fyrir fram­tíð­ar­byggð í Grinda­vík, að fólk geti snúið til baka.“ Hún segir allt Almanna­varna­við­bragð vera miðað að því að tryggja líf, heilsu og verð­mæta­björgun.

Guðrún telur mik­il­vægt að vita nákvæm­lega hvernig ástandi und­ir­stöður byggð­ar­innar í Grinda­vík séu til að hægt verði að snúa til baka í bæinn í nokkurn veg­inn eðli­legt líf. Mun það þýða að ein­hver svæði verði hugs­an­lega girt af og hús rifin. Að sama skapi verði ekki gert ráð fyrir áfram­hald­andi byggð á ein­hverjum svæðum innan Grinda­víkur. 

Almannavarnir rannsaka sjálfar sig

Fyrir tveimur árum var rann­sókn­ar­nefnd almanna­varna lögð niður og eft­ir­lit með almanna­vörnum flutt til Almanna­varna og ráðu­neytis almanna­varna. „Nú er ég með í gangi end­ur­skoðun á Almanna­varn­ar­lögum í heild sinni,“ segir Guðrún og væntir þess að nið­ur­stöður fáist í vor úr grein­ing­ar­vinnu á end­ur­skoð­un­inni. Hún stefnir á að fara með frum­varp á næsta haust­þingi fyrir Alþingi um breyt­ingu á almanna­vara­lögum. 

Spurð hvort hún teldi eðli­legt að lög­reglu­stjóri í hverju hér­aði fari með jafn mikla ábyrgð og lögð hefur verið á lög­reglu­stjóra Suð­ur­nesja, í tengslum við rým­ing­arnar í Grinda­vík, sagði Guðrún „það þarf ein­hver að gera það.“

„Við erum búin að vera í gríð­ar­lega miklu almanna­varna­við­bragði. Við erum að end­ur­skoða lögin og það er full­kom­lega eðli­legt að það sé allt skoðað, aðkoma allra. Þetta er að verða stærsti atburður núna á lýð­veld­is­tím­anum og þó við færum lengra aftur, þannig þetta er gríð­ar­lega flókið og þetta varðar margar stofn­anir. Þannig að það er mjög mik­il­vægt að við förum vand­lega yfir alla ferla því það er líka kallað eftir því að við séum ekki að bregð­ast nógu hratt við. Við séum að bregð­ast of harka­lega við. Þannig að þegar að á sér stað svona skerð­ing, svona mikið inn­grip inn í líf borg­ar­anna þá er mjög eðli­legt að það sé vand­lega skoðað og ég hef hug á að gera það.“

Kjósa
17
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Pressa

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár