Steingrímur segir orð sín um „grenjandi minnihluta“ ekki hafa neitt með grát að gera

Stein­grímur J. Sigfússon útskýrir í grein í Morgun­blaðinu í dag að með orðum sínum um „grenjandi minni­hluta“ hafi hann verið að vísa til mikils minni­hluta, en ekki þess að einhver væri að grenja. Það samræmist hans norð­lenska tungutaki eða málvitund.

Steingrímur J. Sigfússon forseti Alþingis.
Stein­grímur J. Sig­fús­son for­seti Alþingis. Mynd: Birgir Þór Harðarson

„Samkvæmt mínu norð­lenska tungutaki eða málvitund þýðir orðið grenjandi minni­hluti = mikill minni­hluti. Samanber einnig grenjandi stórhríð eða grenjandi rigning, sem sagt mikið af hvoru tveggja. Hefur ekkert með grát að gera,“ skrifar Stein­grímur J. Sigfússon þingmaður Vinstri grænna og forseti Alþingis í aðsendri grein í Morgun­blaðinu í dag. 

Þar svarar hann Guðna Ágústs­syni fyrr­verandi ráðherra Framsóknar­flokksins, sem reit blaða­grein á sama vettvangi sem birtist á miðvikudag, sem hafði einmitt fyrir­sögnina „Örlítill grenjandi minni­hluti“. Var þar ítrekað vísað til sömu orða Steingríms sem hann lét falla í þingræðu um Hálendis­þjóðgarð í síðustu viku.

Ýmsir hafa tekið orðum Steingríms illa, eða sem svo að hann hafi verið að tala um einhvern vælandi og skælandi minni­hluta. Í grein sinni í dag útskýrir Stein­grímur að svo sé ekki. Hann hafi verið að vísa til þess að mikill minni­hluti, eða um 10 prósent, hafi í nýjustu skoðana­könnun Félags­vísinda­stofnunar sagt á móti hugmyndinni um að stofna þjóðgarð á miðhálendinu.

„Tíu prósentin sem lýstu andstöðu leyfði ég mér sem sagt að kalla örlítinn eða mjög mikinn („grenjandi“) minni­hluta. Það er tölfræðilegt mat en hefur ekkert með skoðana­frelsi eða virðingu fyrir ólíkum sjónar­miðum að gera,“ skrifar Stein­grímur.

Norð­lenskt tungutak forseta Alþingis hefur sem áður segir farið fyrir brjóstið á sumum andstæðingum Hálendis­þjóðgarðs.

„Þetta er skandall að for­seti Alþingis láti svona út úr sér. Hann er í raun að gera lítið úr Alþingi með þessum ummæl­um. Hvernig eiga lands­menn að geta treyst þess­ari stofnun þegar for­seti Alþingis talar svona um hluta lands­manna?“ sagði Krist­inn Snær Sigurjónsson, sem heldur utan um undir­skrifta­söfnun gegn þjóðgarðs­áformum, í samtali við Kjarnann í síðustu viku.

Ítrekar að ekki sé verið að taka neitt af neinum

Í grein sinni rekur hann einnig að það sé „þvættingur“ sem hvergi eigi sér stoð í frumvarpi Guðmundar Inga Guðbrands­sonar umhverfis- og auðlinda­ráðherra að „taka eigi stjórnina af sveitar­félögunum og bændum“ og að „ríkis­stofnun í Reykjavík taki að sér afréttar­löndin, sekti og rukki alla unnendur hálendisins, reki bændur og sauðkindina til byggða“ eins og Guðni hélt fram í áður­nefndri grein sinni.

Stein­grímur leggur áherslu á, rétt eins og hann gerði í þingræðu sinni um málið, að sveitar­félögum yrði tryggð mjög sterk staða í stjórn­kerfi fyrir­hugaðs þjóðgarðs og að með frum­varpinu væri ekki verið að taka neitt frá neinum.

„Þetta snýst um að leyfa okkur og komandi kynslóðum að eiga hálendið áfram saman. Þeim sem landið byggja og gestum þeirra að njóta þess án þess að það spillist, og varðveita og nýta á sjálf­bæran hátt mestu auðlind Íslands, með fullri virðingu fyrir fiskimiðunum, landið okkar,“ skrifar Stein­grímur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár