Spurði hvort „örlítill grenjandi minnihluti“ ætti að geta neitað þjóðinni um þjóðgarð

Stein­grímur J. Sigfússon forseti Alþingis sagði á þingi að frumvarp um Hálendis­þjóðgarð færði aukin völd og áhrif til heima­manna og þjóð­garðurinn nyti ríks stuðnings þjóðarinnar. „Grenjandi minni­hluti“ ætti ekki að hafa neitunar­vald.

Steingrímur J. Sigfússon forseti Alþingis í ræðustól í kvöld.
Stein­grímur J. Sig­fús­son for­seti Alþingis í ræðu­stól í kvöld. Mynd: Skjáskot

„Á einhver örlítill grenjandi minni­hluti að hafa neitunar­vald um það að þjóðin megi stofna þennan þjóðgarð sinn á sínu eigin landi?“ spurði Stein­grímur J. Sigfússon forseti Alþingis og þingmaður Vinstri grænna í ræðu sinni um Hálendis­þjóðgarð á Alþingi í kvöld.

Forseti Alþingis er ekki tíður gestur í ræðustól þingsins, en Stein­grímur sagðist hafa látið það eftir sér að halda ræðu um málið, sem hann sagði sér mikilvægt. „Ég hef sterkar taugar til þessa svæðis,“ sagði Stein­grímur og bætti því við að fyrir honum væri leyndist hjarta Íslands og helgi­dómar á hálendinu.

„Fyrir okkur sem ekki eru trúuð er vissulega hægt að komast í helgidóma, þeir eru kannski annars eðlis heldur en kirkjur eða moskur. Mér er það mikið tilfinningamál að við stöndum okkur, núverandi kynslóð í landinu, í gæslu okkar fyrir þessum perlum sem þarna liggja,“ sagði hann og bætti við að hann fagnaði því mjög að frum­varpið væri komið fram til umræðu á Alþingi.

Sagðist hann þess fullviss að hægt yrði að breikka samstöðu enn frekar um málið í meðförum þingsins, en sagði þó þegar vísbendingar um að 65 prósent þjóðarinnar væru hlynnt því að stofna þennan þjóðgarð og vildu fá sinn hálendis­þjóðgarð.

„Að sjálfsögðu á að leita eins góðrar samstöðu og mögulegt er, en ég segi líka alveg hiklaust að sá síðasti eigi ekki að hafa neitunar­vald,“ sagði Stein­grímur.

Síðan spurði hann hvort það væri svo að „einhver örlítill grenjandi minni­hluti“ ætti að hafa neitunar­vald gagnvart þjóðinni um þjóð­garðinn. Svo rakti Stein­grímur að verið væri að tala um þjóð­lendurnar, hina gömlu almenninga Íslands.

Hann minnti á að þver­pólitíska nefndin um stofnun miðhálendis­þjóðgarðs, sem hann sat í fyrir hönd Vinstri grænna, hefði valið þá leið til að greiða götu málsins, að draga minnsta samnefnara og marka Hálendis­þjóðgarði svæði utan um þjóð­lendur innan hálendis­lína. „Er þá ekki staðan býsna sterk, til að inn á því svæði megi þjóðin stofna sinn þjóðgarð?“

Verið að færa „stóraukin áhrif og völd“ til heimafólks

Þau sjónarmið að með stofnun Hálendis­þjóðgarðs sé verið að færa skipulags­völd frá sveitar­félögum hafa heyrst í umræðum um málið.

Stein­grímur sagði sveitar­félögum landsins tryggður alveg „óheyrilega sterkur vettvangur“ innan stjórn­sýslu fyrir­hugaðs þjóðgarðs, ásamt fleirum sem þyrftu að koma að málum svo að vel færi.

Hann sagði undarlegt að engir alþingis­menn hefðu minnst á það í umræðum kvöldsins að með þessu frumvarpi væri verið að færa sveitar­félögum, heima­mönnum, umsýslu frið­lýstra svæða sem Umhverfis­stofnun færi með nú. Stein­grímur sagði auk þess að ekki væri með frum­varpinu verið að raska neinum hefð­bundnum nytjum á svæðunum. Það skilyrði væri þó gert að þær nytjar væru sjálf­bærar.

Stein­grímur sagði að öfugt við það sem væri oft heyrðist í umræðunni væri í raun verið að færa heima­mönnum „stóraukin áhrif og völd í þessu frumvarpi“.

Stjórnmálamönnum verði þakkað um aldir

Hann setti fram þann spádóm undir lok ræðu sinnar, að þeirri kynslóð íslenskra stjórn­málamanna sem skilaði í höfn því verki að stofna þennan „stórkost­lega merkilega þjóðgarð á heimsvísu, með gríðar­legum tækifærum fyrir okkur öll,“ yrði þakkað um aldir á Íslandi.

„Við erum ekki að taka neitt frá neinum með því að stofna þennan þjóðgarð, við erum að tryggja að hlutir verði til, óskemmdir og ósnortnir, handa komandi kynslóðum,“ sagði Stein­grímur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár