Bjarni segir það vera Alþingis, frekar en sitt, að ákveða hvort Sigríði sé sætt á ráðherrastóli

„Tapi menn trausti getur það leitt til breytinga á skipan ráðherra­lista Sjálfstæðis­flokksins.“

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðis­flokksins og fjármála- og efnahags­ráðherra, lagði áherslu á það í umræðum um pólitíska ábyrgð og stöðu Sigríðar Andersen dómsmála­ráðherra í óundirbúnum fyrir­spurnar­tíma í morgun að Sigríður gegndi ráðherra­embætti í umboði Alþingis. Það væri Alþingis, frekar en formanns Sjálfstæðis­flokksins, að ákveða hvort Sigríði væri sætt á ráðherra­stóli.

„Hátt­virtur þingmaður þarf því ekki að horfa til formanns Sjálfstæðis­flokksins með það hvort einstaka ráðherrar í ríkis­stjórninni starfi áfram í hans skjóli, það er vilji meirihluta þingsins sem hefur úrslita­áhrif á hvort ráðherrar sitja í ríkis­stjórn eða ekki. Þetta er þing­bundin stjórn. Það er laga­umhverfið sem ég og við öll störfum við,“ sagði Bjarni í svari við fyrir­spurn Helga Hrafns Gunnars­sonar, þingmanns Pírata.

Helgi spurði hvort Bjarni, sem formaður Sjálfstæðis­flokksins, liti svo á að seta Sigríðar Andersen sem dómsmála­ráðherra í ríkis­stjórn væri á hans ábyrgð. Þá benti Helgi á að ekki virtist vera pólitískur vilji fyrir því að virkja ákvæði um Landsdóm og hina lagalegu ráðherra­ábyrgð. „Það liggur fyrir að ákveðið tómarúm er í pólitískri ábyrgð á Íslandi. Maður hefði þá haldið að hæstvirtur forsætis­ráðherra bæri ábyrgð á setu annarra ráðherra en ef maður spyr hana bendir hún á formann Sjálfstæðis­flokksins í ríkis­stjórn — ég er augljós­lega að tala um hæstvirtan dómsmála­ráðherra — nefnilega hæstvirtan fjármála- og efnahags­ráðherra Bjarna Benediktsson. Einn bendir á annan og öll þessi ábyrgðar­keðja virðist vera heldur óskýr,“ sagði Helgi og bætti við: „Mig langar þá að spyrja hæstvirtan fjármála- og efnahags­ráðherra hvort hann sem formaður Sjálfstæðis­flokksins í ríkis­stjórn sé ábyrgur fyrir setu annarra ráðherra síns flokks í ríkis­stjórn. Ef svo er ekki, hver er þá ábyrgur fyrir því?“

Landsdómsfyrirkomulagið enn í gildi

Bjarni Benediktsson benti á að lög um Landsdóm væru sannarlega enn í gildi. „Hafi menn þá sannfæringu að rétt sé að kalla saman landsdóm skulu menn tala fyrir því. Þetta er fínn vettvangur til þess. En það er alveg undarlegt að sjá sérfræðinga og aðra segja að lögunum hafi verið kippt úr sambandi út af orðum sem hafa fallið hér,“ sagði hann og vísaði þá væntanlega til nýlegrar umfjöllunar Frétta­blaðsins um tómarúm í pólitískri ábyrgð á Íslandi. „Sumir hafa verið þeirrar skoðunar að þetta sé úrelt fyrirbæri og ég er þeirrar skoðunar. Það færi vel á því að lögin væru tekin til heild­stæðrar endur­skoðunar og fyrir­bærið lands­dómur fellt niður og við færðum þau mál í annan og almennari farveg, sem sagt það hvernig ráðherrar eru dregnir til ábyrgðar. En í milli­tíðinni gilda lögin að sjálfsögðu.“

Þá vék Bjarni að því í hvers skjóli ráðherrar sætu í ríkis­stjórn. „Í tilfelli Sjálfstæðis­flokksins legg ég fram tillögu í þing­flokknum sem fær blessun og ég fer með hana til samstarfs­flokkanna. Ég held að þannig hafi það gengið fyrir sig hjá flestum flokkum fram til þessa. Ég styð alla ráðherra í ríkis­stjórninni, þá sem sitja fyrir hönd Sjálfstæðis­flokksins og alla hina.“

Helgi Hrafn spurði hvort það breytti þá engu ef dómsmála­ráðherra græfi undan nýju dómsstigi á Íslandi með lögbroti við skipun dómara. „Nú er svo komið að þessi ágæti þing­flokkur hefur ákveðið þetta. Og hvað? Er þá aldrei snúið við? Hver ber ábyrgð á því að hæstvirtur dómsmála­ráðherra víki þegar hún stendur sig ekki í starfinu ef ekki formaður Sjálfstæðis­flokksins í ríkis­stjórn?“ 

„Tapi menn trausti getur það meðal
annars leitt til breytinga á skipan
ráðherra­lista Sjálfstæðis­flokksins“

Í svörum sínum lagði Bjarni áherslu á ábyrgð þingsins og sagði Helga Hrafn ekki þurfa að horfa sérstak­lega til sín. „Þetta er þing­bundin stjórn. Það er laga­umhverfið sem ég og við öll störfum við. Ég var einfald­lega að reyna að útskýra fyrir hátt­virtum þingmanni hvernig hlutirnir ganga fyrir sig á hinum pólitíska vettvangi í mínum stjórn­málaflokki. Þar geta vissulega orðið breytingar af ýmsum ástæðum. Tapi menn trausti getur það meðal annars leitt til breytinga á skipan ráðherra­lista Sjálfstæðis­flokksins eins og hjá öðrum flokkum og eru dæmi um það í sögunni í hinu íslenska stjórnmála­lífi.“ Athygli vakti að Bjarni kom Sigríði Andersen ekki sérstak­lega til varnar en tók sérstak­lega fram að vel gætu orðið breytingar á skipun ráðherra­lista Sjálfstæðis­flokksins ef ráðherrar glötuðu trausti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórn Katrínar

FréttirRíkisstjórn Katrínar

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstrinu á Íslandi heldur en VG“

Drífa Snædal sagði eftir­minnilega árið 2017 að það yrði „eins og að éta skít í heilt kjör­tímabil“ fyrir Vinstri græn að fara í ríkis­stjórnar­samstarf með Sjálfstæðis­flokknum. Staða hennar gamla flokks í dag kemur henni ekki á óvart. „Fyrir vinstrið í fram­tíðinni þá þarf það nátt­úrlega að hafa afleiðingar fyrir flokk að miðla málum svo hressilega að það er ekkert eftir af hugsjónunum,“ segir Drífa.
GreiningRíkisstjórn Katrínar

Sambúðin sem sært hefur VG nánast til ólífis

Vinstri græn sungu hástöfum á lands­fundi sínum fyrir rúmu ári: „Það gæti verið verra.“ Nú hefur það raungerst. Flokkurinn skrapar botninn í fylgis­mælingum og hefur ekki sammælst um nýja forystu eftir brott­hvarf eins vinsælasta stjórn­málamanns landsins og flokkurinn skrapar botninn í fylgis­mælingum. Hvort flokkurinn sé nægilega sterkur til að spyrna sér upp og forða sér frá útrýmingu á eftir að koma í ljós.

21 mín. lestur

GreiningRíkisstjórn Katrínar

Róttækur hugsjóna­flokkur verður að borgara­legum valda­flokki

Vinstri græn hafa á síðustu fimm og hálfu ári tapað trausti og trúverðug­leika, gefið afslátt af mörgum helstu stefnu­málum sínum og varið hegðun og aðgerðir sem flokkurinn talaði áður skýrt á móti. Samhliða hefur róttækt fólk úr gras­rótinni yfirgefið Vinstri græn, kjósenda­hópurinn breyst, hratt gengið á pólitíska inneign Katrínar Jakobs­dóttur og fylgi flokksins hrunið. Þetta er fórnar­kostnaður þess að komast að völdum með áður yfir­lýstum pólitískum andstæðingum sínum.

10 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár