Allt að níu þúsund uppsagnir hjá Shell á næstu tveimur árum

Olíu­fyrirtækið Shell hyggst leggjast í endur­skipulagningu á næstu árum og segja upp allt að níu þúsund starfs­manna sinna. Eitt af nýju verkefnum fyrir­tækisins er kolefnis­förgun í Noregs­hafi.

Ben van Beurden, framkvæmdastjóri Royal Dutch Shell
Ben van Beurden, fram­kvæmda­stjóri Royal Dutch Shell Mynd: Shell

Olíu­fyrirtækið Royal Dutch Shell tilkynnti í dag að fyrir­tækið ætlaði að segja upp 7-9 þúsund starfs­mönnum sínum á næstu tveimur árum og beina sjónum sínum í auknum mæli til umhverfis­vænni orku­framleiðslu. Meðal nýrra verkefna fyrir­tækisins er föngun og förgun kolefnis í Noregs­hafi.

Ben van Beurden, framkvæmda­stjóri olíu­fyrir­tækisins, sagði frá fyrir­huguðum uppsögnum í viðtali sem birtist á forsíðu Shell í dag. Samkvæmt því eru uppsagnirnar liður í endur­skipulagningu innan félagsins, sem vill stefna að minni losun kolefnis í fram­tíðinni. Van Beurden segir fyrir­tækið hafa val um að framleiða olíu og jarðefna­eldsneyti með sem minnstum útblæstri eða stefna sjálft að því að verða kolefnis­hlutlaust. „Við höfum ákveðið að fara seinni og stærri leiðina,” segir Van Beuren í viðtalinu.

Samkvæmt frétt Reuters um málið störfuðu um 83 þúsund manns hjá Shell um síðustu áramót, en van Beurden telur að endur­skipulagning fyrir­tækisins muni spara rúma tvo milljarða Bandaríkja­dala, sem samsvarar 278 milljörðum íslenskra króna.

Einn helsti keppinautur Shell, British Petroleum (BP), tilkynnti einnig nýlega að fyrir­tækið hygðist leggja meiri áherslu á fram­leiðslu grænna orkugjafa í fram­tíðinni og segja upp um tíu þúsund starfs­manna sinna í leiðinni.

Frétta­stofan Reuters telur að samkeppni um græna orkugjafa muni aukast á næstunni, samhliða hruni í eftir­spurn eftir olíu á síðustu mánuðum. Á síðustu þremur ársfjórðungum hefur sala Shell, sem er stærsti olíu­smásali í heimi, fallið um um það bil þriðjung.

Kolefnisföngun í Noregshafi

Hluti af nýrri starfsemi Shell fer í föngun og förgun kolefnis í Noregs­hafi. Búist er við að verkefnið, sem kallað er Northern Lights, muni hefjast árið 2024 og geyma allt að einni og hálfri milljón tonna af kolefni á ári hverju. Geymslu­getan leyfir þó geymslu allt að fimm milljón tonna af kolefni á hverju ári ef eftir­spurnin er nógu mikil.

Samkvæmt tilkynningu frá Shell hyggst olíu­fyrirtækið bjóðast til þess að fanga og farga kolefnis­útblæstri hjá iðnaðar­fyrirtækjum um alla Evrópu. Olíu­fram­leiðandinn segir einnig að ýmis stór­fyrirtæki hafi skrifað undir vilja­yfirlýsingu um að útblástur þeirra yrði fargaður með Northern Lights verk­efninu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár