Fyrirtæki verða að upplýsa um raunverulega eigendur svo Ísland fari af gráa listanum

Fjármála- efna­hags­ráðu­neytið segir það vera for­sendu þess að Ísland verði tekið af gráa list­anum að íslensk félög gefi upp raun­veru­lega eig­endur sína til yfir­valda. Frestur til þess rennur út um næstu mán­aða­mót.

Skortur á því að raun­veru­legt eign­ar­hald á íslenskum félögum lægi fyrir var eitt af þeim atriðum sem verð til þess að Financial Action Task Force (FATF) setti Ísland á gráan lista sam­tak­anna í októ­ber. Ein for­senda þess að Ísland verði tekið af list­anum er að skrán­ingu raun­veru­legra eig­enda verði komið í almenni­legt horf á þessu ári.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu sem birt var í dag. Lög sem flýttu fresti sem félög hafa til þess að upp­lýsa um raun­veru­lega eig­endur sína til 1. mars næst­kom­andi voru sam­þykkt skömmu fyrir síð­ustu jól.

Flýtt vegna gráa list­ans

Þegar voru í gildi kvaðir um að upp­lýsa um raun­veru­lega eig­endur þegar nýtt félag er stofn­að. Þær hafa verið í gildi frá 30. ágúst síð­ast­liðnum og frá 1. des­em­ber hefur verið hægt að senda upp­lýs­ingar um hverjir þeir eru með raf­rænum hætti til rík­is­skatt­stjóra.

Upp­haf­lega stóð til að gefa öðrum félög­um, þ.e. þeim sem þegar eru í rekstri, frest til 1. des­em­ber 2019 til að koma upp­lýs­ingum um raun­veru­lega eig­endur til emb­ættis rík­is­skatt­stjóra. hefði sá frestur haldið ætti rík­is­skatt­stjóri því að vera kom­inn með allar upp­lýs­ingar um eig­endur félaga sem starfa á Íslandi, ef allir fylgdu lög­un­um.

Ákveðið var að flýta þeim frest eftir að alþjóð­legur vinnu­hópur um um aðgerðir gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka, Financial Action Task Force (FATF), setti Ísland á gráan lista fyrir að bregð­ast ekki nægi­lega vel við fjöl­mörgum athuga­semdum sam­tak­anna um brotala­mir í vörnum gegn pen­inga­þvætti á Ísland­i.

Ein af athuga­semd­unum sem FATF gerði sneri að því að ekki þurfti að greina frá raun­veru­legum eig­endum félaga á Ísland­i.

Brotala­mir í eft­ir­liti banka

Á Íslandi hefur verið hægt að kom­­ast upp með það að fela eign­­ar­hald félaga, með ýmsum leið­­um. Ein sú algeng leið var fólgin í því að láta félög, t.d. eign­­ar­halds­­­fé­lög eða rekstr­­ar­­fé­lög, vera í eigu erlendra félaga, sem voru síðan í eigu ann­­arra erlendra félaga, sem voru í eigu sjóða í skatta­­skjólum þar sem engar eða litlar kröfur voru gerðar um skrán­ingar og skil á gögn­­um. Þannig hefur verið verið hægt að fela hver raun­veru­­legur eig­andi félaga er.

Hér á landi hefur slíkt eft­ir­lit aðal­lega verið á hendi banka. Í kjöl­far þess að FATF gerði úttekt á Íslandi, og skil­aði þeirri nið­ur­stöðu vorið 2018 að eft­ir­lit Íslands með pen­inga­þvætti fengi fall­ein­kunn, þá hóf Fjár­mála­eft­ir­litið að gera athug­anir á íslenskum fjár­mála­fyr­ir­tækjum og getu þeirra til að verj­ast pen­inga­þvætt­i.

Nið­ur­stað­an, sem birt var helg­ina fyrir jólin 2019, var sú að Fjár­mála­eft­ir­litið gerði athuga­semdir við mat allra íslensku við­skipta­bank­anna á upp­lýs­ingum um raun­veru­lega eig­endur fjár­muna eða félaga sem eru, eða hafa ver­ið, í við­skiptum við þá. Í nið­ur­stöðum eft­ir­lits­ins á athugun eft­ir­lits­ins á pen­inga­þvætt­is­vörnum þeirra voru gerðar athuga­semdir við þeir hafi ekki metið upp­lýs­ingar um raun­veru­lega eig­endur með sjálf­stæðum hætti.

Dag- og stjórn­valds­sektir

Sam­kvæmt nýju lög­unum um raun­veru­lega eig­endur þá er hægt að refsa þeim sem ekki fylgja þeim. Ef eig­endur félaga upp­lýsa ekki um hver hinn raun­veru­legi eig­andi er, með fram­vísun þeirra gagna sem lögin kalla á, þá getur rík­is­skatt­stjóri lagt á tvenns konar sektir á við­kom­and­i.

Ann­ars vegar er um dag­sektir að ræða. Þær geta numið frá tíu þús­und krónum og allt að 500 þús­und krónum á dag. Heim­ilt er að ákvæða umfang þeirra sem hlut­fall af til­teknu stærðum í rekstri við­kom­and­i. Við ákvörðun um fjár­hæð dag­sekta er heim­ilt að taka til­lit til eðlis van­rækslu eða brots og fjár­hags­legs styrk­leika við­kom­andi aðila. Dag­sekt­irnar sem verða ákvarð­aðar eru aðfar­ar­hæf­ar.

Hins vegar er um stjórn­valds­sektir að ræða. Þær er hægt að leggja á þá sem veita ekki upp­lýs­ingar eða veita rang­ar/vill­andi upp­lýs­ing­ar. Þegar brot á lög­unum er framið í starf­semi lög­að­ila, og í þágu hans, má leggja stjórn­valds­sekt á lög­að­il­ann án til­lits til þess hvort sök verður sönnuð á fyr­ir­svars­mann eða starfs­mann lög­að­ila. „Sektir sem lagðar eru á ein­stak­linga geta numið frá 100 þús. kr. til 5 millj. kr. Sektir sem lagðar eru á lög­að­ila geta numið frá 500 þús. kr. til 80 millj. kr. en geta þó verið hærri eða allt að 10 pró­sent af heild­ar­veltu sam­kvæmt síð­asta sam­þykkta árs­reikn­ingi lög­að­il­ans eða 10 pró­sent af síð­asta sam­þykkta sam­stæðu­reikn­ingi ef lög­að­ili er hluti af sam­stæð­u,“ segir í lög­un­um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár