Bára Huld og Birna tilnefndar til fjölmiðlaverðlauna

Umfjöllun sem Birna Stef­ánsdóttir og Bára Huld Beck, blaðamenn Kjarnans, unnu er tilnefnd til fjölmiðla­verðlauna á Degi íslenskrar náttúru.

Dómnefnd hefur tilnefnt fjóra til Fjölmiðla­verðlauna umhverfis- og auðlinda­ráðuneytisins sem veitt verða á Degi íslenskrar náttúru, 16. september. Tilnefnd til verð­launanna eru meðal annars Bára Huld Beck og Birna Stef­ánsdóttir, blaðamenn Kjarnans, Sagafilm, Sigríður Halldórs­dóttir RÚV og ritstjórn Stundarinnar.

Tilnefningar voru gerðar opinberar í dag á vef umhverfis- og auðlinda­ráðuneytisins.

Dómnefnd skipuðu Kjartan Hreinn Njálsson, Ragna Sara Jóns­dóttir, formaður, og Valgerður Anna Jóhanns­dóttir.

Í rökstuðningi dómnefndar segir, að Bára Huld og Birna hafi beint sjónum lesenda að neyslu­hegðun og þeim úrslita­áhrifum sem breyting á henni mun hafa í barátt­unni við loftslags­breytingar.

„Í þremur frétta­skýringum sem taka m.a. á mikilli fata­neyslu almennings, neyslu dýra­afurða og plast­úrgangi draga Bára Huld og Birna upp ítarlega og fræðandi mynd af þeim vanda sem felst í óhóflegri neyslu almennings og hvaða leiðir eru færar í gera þessa neyslu sjálf­bærari,“ segir í rökstuðningnum.

SagaFilm fékk tilnefningu fyrir þátta­röðina „Hvað höfum við gert?“ sem sýnd var á RÚV.

„Í þátta­röðinni er fjallað með vönduðum og yfir­veguðum hætti um hið marg­slungna viðfangs­efni sem loftslags­breytingar eru. Afrakstur ítarlegrar rannsóknar­vinnu, frumlegrar mynd­vinnslu og vönduðu vali á viðmælendum er þáttaröð sem kom viðfangs­efninu rækilega á dagskrá í íslensku samfélagi og varð þannig hvati að fjöl­breyttri umræðu um það hvernig við tökumst á við loftslags­breytingar; hvernig við stemmum stigu við þeim, hvernig við aðlögumst þessum breytingum og hvernig hvert og eitt okkar getum lagt okkar lóð á vogar­skálarnar í þessu mikla verkefni,“ segir í rökstuðningnum.

Sigríður er tilnefnd fyrir umfjöllun um plast­mengun í frétta­skýringa­þættinum Kveik.

Í rökstuðningi dómnefndar segir að Sigríður sýni fram á hversu útbreidd plast­mengun er á Íslandi, á láði og legi. „Þessu nær Sigríður fram með því að fylgja vísinda­mönnum í rann­sóknum sínum, sem og með því að varpa ljósi á plast­neyslu almennings. Enn fremur sýnir umfjöllunin fram á að ekki er allt sem sýnist þegar endur­vinnsla plasts er annars vegar. Þannig tekst Sigríði að undir­strika hvernig plast­mengun er ekki aðeins vandamál sem snertir einstaklinginn og nærumhverfi hans, heldur einnig hvernig viðfangs­efnið er hafið yfir landamæri, eins og svo oft er raunin þegar hvers kyns mengun er annars vegar,“ segir í rökstuðningi.

Ritstjórn Stundarinnar var svo tilnefnd fyrir umfjöllun um loftslags­breytingar undir yfir­skriftinni „Hamfara­hlýnun“.

„Ítarlegri, myndrænni og vandaðri umfjöllun Stundarinnar um hamfara­hlýnun tókst einkar vel að draga fram og vekja athygli á mikilvægi einstaklings­framtaksins. Í umfjölluninni var að finna fróðlegar og áhuga­verðar frásagnir fólks sem hefur breytt lífsstíl sínum vegna þeirra breytinga sem ýmist eru hafnar eða eru yfir­vofandi vegna breytinga á loftslagi. Á sama tíma freista blaðamenn Stundarinnar þess að svara áleitnum og mikil­vægum spurningum um losun Íslands á gróðurhúsa­loft­tegundum og hvernig stjórn­völdum hefur vegnað í því verkefni sínu að draga úr losun,“ í rökstuðningnum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár