Mynd: Birgir Þór Harðarson

Breyttar matarvenjur Íslendinga ókunnar – Hafa loftslagsbreytingar áhrif?

Hér á landi virð­ast sífellt fleiri sleppa dýra­af­urðum til að sporna gegn lofts­lags­breyt­ingum. Gífurleg aukn­ing hefur orðið á fram­boði á sér­stökum vegan-vörum og sjá má marg­falda aukn­ingu í sölu á jurta­mjólk og íslensku græn­meti.

Margt bendir til þess að á Íslandi velji sífellt fleiri græn­ker­a­fæði í stað fæðu sem kemur úr dýrum og dýra­af­urðum. Fram­boðið af sér­stökum vegan-vörum hefur marg­fald­ast í dag­vöru­versl­unum og eft­ir­spurnin eftir ákveðnum vörum er slík að fram­leiðslan stendur ekki undir henni. Fjölgað hefur í hópi veit­inga­staða sem bjóða ein­göngu upp á græn­ker­a­fæði, auk þess sem fjöldi staða býður nú einnig upp á græn­kera­rétti. Ómögu­legt er hins vegar að segja hversu stór hluti Íslend­inga hefur breytt mat­ar­venjum sínum á þann hátt að hætta eða draga úr neyslu dýra­af­urða, þar sem engum tölu­legum upp­lýs­ingum hefur verið safnað um mat­ar­venjur Íslend­inga í rúman ára­tug.

Sala á jurtamjólk aukist um 386 prósent

Mjólk­ur­neysla lands­manna hefur farið minnk­andi á síð­ustu árum og hefur heild­ar­sala á drykkj­ar­mjólk, þ.e. nýmjólk, létt­mjólk, und­an­rennu og fjör­mjólk, dreg­ist saman um 7,9 millj­ónir lítra eða 25 pró­sent frá árinu 2010. Í heild­ina hefur sala á mjólk­ur­vörum hjá Sambandi afurða­stöðva í mjólkur­iðn­að­i dreg­ist saman um 4,1 pró­sent á síð­ustu 9 ár­um.

Samhliða þess­ari þróun hefur bæði eft­ir­spurn og úrval jurta­mjólkur auk­ist tals­vert. Hjá mat­vöru­versl­un­inni Krónunni hefur salan á jurta­mjólk auk­ist gríð­ar­lega á síð­ustu árum. Á árunum 2015 til 2018 jókst salan um 386 pró­sent. Árið 2016 jókst salan um 95 pró­sent frá árinu á undan, árið 2016 jókst saman um 92 pró­sent frá árinu á undan og árið 2018 jókst salan um 30 pró­sent frá árinu á undan. Sigurður Gunnar Mark­ús­son, fram­kvæmda­stjóri inn­kaupa­sviðs hjá Krónunni, bendir á í sam­tali við Kjarnann að skortur á vöru­fram­boði hafi haft ein­hver áhrif á söl­una í fyrra.

Til að mynda hefur hafra­mjólk frá sænska fyr­ir­tæk­inu Oatly notið gríð­ar­legra vin­sæla út um allan heim og hafa vin­sældir hafra­mjólk­ur­inn­ar verið það mikl­ar að Oatly hef­ur átt fullt í fangi með að svara eft­ir­spurn hér á Íslandi sem og víðar og því voru vör­un­ar ófá­an­leg­ar í versl­un­um hér á landi um hríð í fyrra.

Jó­hanna Ýr Hall­gríms­dótt­ir, mark­aðs­stjóri hjá Innn­es, sem hef­ur síð­ast­liðin tvö ár flutt inn hafra­vör­ur frá Oatly sagði í sam­tali við Morg­un­blaðið í des­em­ber í fyrra að á síð­ast­liðnum árum hefði eft­ir­spurnin eftir hafra­mjólk marg­fald­ast. Að sögn Jóhönnu er eft­ir­spurnin enn að aukast en hún er sann­færð um að það teng­ist vit­und­ar­vakn­ingu meðal al­menn­ings. „Fyrst byrj­aði fólk á að taka vegan­úar en ég tel þess­ar lífs­stíls­breyt­ing­ar al­mennt komn­ar til að vera. Þetta er ekki þessi tísku­bóla sem marg­ir spáðu í fyrstu. Það er nú jöfn eft­ir­spurn eft­ir hafra­mjólk allt árið, hvort sem það eru jól eða janú­ar,“ sagði Jóhanna.

Anna ekki eftirspurn

Brynjar Ing­ólfs­son, inn­kaupa­stjóri Hagkaups, segir í sam­tali við Kjarnann að vegan-ostar, sósur, drykkir unnir úr plöntu­af­urðum og til­búnir réttir sem flokk­ast sem vegan hafi stækkað umtals­vert í veltu og úrvali á und­an­förnum árum. Erfitt sé hins vegar fyrir dag­vöru­búðir að taka saman sölu á öllu sem gæti flokk­ast sem vegan enda eru margar vörur vegan án þess að vera skil­greindar sér­stak­lega sem slíkar.

Þá hefur eft­ir­spurn eftir íslensku græn­meti jafn­framt auk­ist á síð­ustu árum. Gunn­laugur Karlsson, fram­kvæmda­stjóri Sölu­fé­lags garð­yrkju­manna, segir í sam­tali við Kjarnann að eft­ir­spurn eftir íslensku græn­meti sé gríð­ar­leg en að íslenskir garð­yrkju­bændur hafi ekki getað annað þess­ari eft­ir­spurn. Þar á meðal sé eini sveppa­fram­leið­indi lands­ins, Flúða­sveppir, en þó að fyr­ir­tækið fram­leiði ell­efu tonn af sveppum í hverri viku þá nái fyr­ir­tæki ekki að anna eft­ir­spurn eftir íslenskum sveppum. Georg Ottósson, eig­andi Flúða­sveppa, sagði í sam­tali við Vísi um málið að keto- og vegan­fæði lands­manna ætti mik­inn þátt í því hvað sveppa­fram­leiðslan gangi vel.

Enn fremur hefur eft­ir­spurn eftir íslenskum höfrum auk­ist. Örn Karlsson, bóndi á Sandhóli í Skaft­ár­hreppi, hefur tvö­faldað ræktun á höfrum til mann­eldis í ár. Örn segir í sam­tali við Bænda­blaðið að eft­ir­spurnin sé svo mikil að hann anni henni ekki „Ég hef því miður þurft að neita versl­unum, mötu­neytum og bök­urum um hafra und­an­farið þar sem þeir eru ein­fald­lega búnir hjá mér,“ segir Örn. Hann segir jafn­framt að til hans hafi leitað aðilar sem hafa áhuga á ýmiss konar vinnslu með hafra eins og að búa til prótein­stangir, hafra­mjólk og annað slíkt. Hann segir mögu­leik­ana óend­an­lega og því hafi legið beint við að auka rækt­un­ina.

Sleppa dýra­af­urðum til að sporna gegn loftslagsbreytingum

Á heima­síðu Samtaka græn­kera á Íslandi segir að þrjár helstu ástæður þess að fólk ger­ist vegan séu sið­ferðis-, umhverfis- og heilsu­fars­á­stæður. Sú afstaða fólks að sleppa dýra­af­urðum til að sporna gegn lofts­lags­breyt­ingum hefur hlotið aukna athygli á und­an­förnum árum en það helst í hendur við að á síð­ustu árum hefur fjöldi rann­sókna verið birtur sem sýnir fram á ein af þeim aðgerðum sem talið er að gæti haft úrslita­á­hrif í bar­átt­unni gegn hlýnun jarðar séu breyttar neyslu­venjur fólks.

Í byrjun októ­ber 2018 kom út ný skýrsla loft­lags­­sér­­fræð­inga á vegum Sam­ein­uðu þjóð­anna þar sem skýrt var frá­ ó­hugn­an­­legri ­stöðu er varðar hlýnun jarð­­ar. Nið­­ur­­stöður skýrsl­unnar sýna að hita­­stig á jörð­unni mun hækka um 1,5 gráðu fyrir 2030 ef ekki er brugð­ist hratt við. Í skýrsl­unni segir að nauð­syn­legt sé að breyt­a því hvernig lönd eru nýtt, hvernig fólk borð­­ar, hvernig menn ferð­­ast og svo fram­­veg­­is.

Sér­fræð­ingar hjá Matvæla- og land­bún­að­ar­stofnun Sam­ein­uðu þjóð­anna (FAO) hafa reiknað út losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda frá hefð­bund­inni kjöt­fram­leiðslu og fram­leiðslu dýra­af­urða í heim­inum. Þegar allt er tekið með í reikn­ing­inn er áætlað að fram­leiðsla á kjöti og dýra­af­urðum valdi 14,5 pró­sent af allri mann­gerðri losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda. Í skýrslu stofn­un­ar­innar segir að ákveðið tækni­legt þak sé á mögu­leikum til minnk­unar á útblæstri svo fram­ar­lega sem ekki er hrein­lega dregið úr fram­leiðslu. Slíkur sam­dráttur í fram­leiðslu skilar engum árangri á heild­ina litið nema neyslan drag­ist líka saman. Ef neysla helst óbreytt er ein­ungis verið að flytja útblástur á milli landa.

Yfir­grip­mis­mikil rann­sókn á áhrifum mat­væla­fram­leiðslu var einnig birt í vís­inda­rit­inu Nat­ure í fyrra. Nið­ur­staða ­rann­­sókn­­ar­inn­ar ­sýndi að gíf­­ur­­legur sam­­dráttur í kjöt­­­neyslu gæti haft úrslita­á­hrif í að halda hætt­u­­legum veð­­ur­far­s­breyt­ingum í skefj­um. Sam­kvæmt rann­­sókn­inni þarf neysla á Vest­­ur­löndum á nauta­kjöti að drag­­ast saman um 90 pró­­sent og auka þarf neyslu á baunum og belg­­jurtum fimm­falt. Í rann­­sóknin er sýnt fram á land­­bún­­aður og fram­­leiðsla dýra­af­­urða veldur ekki aðeins losun gróð­­ur­húsa­­loft­teg­unda frá búpen­ingi, heldur einnig eyð­ing skóga, gríð­­ar­­mik­illi vatns­­­notkun og súrnun sjá­v­­­ar.

Vitundarvakning um kolefnisfótspor

Vit­und­ar­vakn­ing virð­ist hafa orðið meðal almenn­ings um að ein­stak­lingar geti með breyt­ingum á neyslu­venjum sínum dregið úr kolefn­isfótspori sínu. Í nýlegri umhverfiskönnun Gallup kom fram að rúm­lega helm­ingur lands­manna seg­ist hafa breytt ­neyslu­venj­u­m sínum í dag­legum inn­kaupum gagn­gert til þess að minnka umhverf­is­á­hrif á síð­ustu tólf mán­uð­um.

Enn fremur má sjá í könnun um við­horf neyt­enda til garð­yrkju hér á landi, sem Gallup hefur fram­kvæmt síð­ustu ár fyrir Sölu­fé­lag garð­yrkju bænda, að tals­verð breyt­ingu hefur orðið á mik­il­vægi vistspors þegar kemur að vali neyt­enda á græn­meti.

Í könn­un­inni, sem fram­kvæmd var í febr­úar á þessu ári, var spurt hvaða þrjá helstu kosti svar­andi telji að íslenskt græn­meti hafi fram yfir inn­flutt græn­meti. Alls svör­uðu 34,2 pró­sent að minna vist­spor væri einn af helstu kostum íslensks græn­metis fram yfir inn­flutt. Það er tölu­verð breyt­ing frá árinu á undan en í febr­úar 2018 svörðu 10,2 pró­sent að minna vist­spor væri einn af helstu kostum íslensks græn­metis fram yfir inn­flutt. Árið 2002 svör­uðu aðeins 2,4 pró­sent að minna vist­spor væri einn af þremur helstu kostum íslensks græn­metis.

Í sömu könnun sögð­ust jafn­framt 68,5 pró­sent að það skiptu þau miklu máli hversu langt inn­flutt græn­meti ferð­ast áður en það fer loks á markað á Íslandi í sömu könnun. Gunn­laugur Karlsson, fram­kvæmda­stjóri Sölu­fé­lags garð­yrkju­manna, segir í sam­tali við Kjarnann að sam­kvæmt könn­un­inni sé ljóst að fólk sé nú mun með­vit­að­ara um kolefn­is­fót­spor vara en áður. Á síð­asta ári kom út skýrsla starfs­hóps um raf­orku­mál­efni garð­yrkju­bænda en þar kemur fram að hlut­deild garð­yrkj­unnar í heild­ar­kolefn­is­spori íslenskrar mat­væla­fram­leiðslu er um 1 pró­sent og í mörgum til­fellum mun minna en inn­fluttra garð­yrkju­af­urða.

Kallar eftir því að matarvenjur Íslendinga verði kannaðar

Engar nákvæmar tölur liggja þó fyrir hversu margir hér á landi kjósa að borða græn­ker­a­fæðu í stað fæðu úr dýra­af­urðum. Benjamín Sig­ur­geirs­son, for­maður Samtaka græn­kera á Íslandi, segir í sam­tali við Kjarnann að hlut­fall þeirra sem eru græn­metisætur og vegan hér á landi hafi aldrei verið kannað af neinu viti svo hann viti til. Hann segir hins vegar að hlut­fallið geti verið í kringum tvö til þrjú pró­sent eða tæp­lega tíu þús­und manns. Hann telur aftur á móti að hlut­fall þeirra sem ákveðið hafa að minnka dýra­af­urða­neyslu sé að ein­hverju leiti mun meiri. Hann bendir á mjög margir sleppi til dæmis mjólk­ur­vörum úr kúa­mjólk þó þeir séu ekki vegan.

MMR hefur á síð­ustu árum kannað jóla­hefðir Íslend­inga en sam­kvæmt nið­ur­stöðu könn­un­ar­innar hefur á síð­ustu árum orðið aukn­ing í neyslu græn­met­is­fæðis á jóla­dag. Alls sögð­ust 3 pró­sent neyta græn­met­is­fæðis á jóla­dag í fyrra. Þá borð­uðu einnig fleiri Íslend­ingar fisk eða sjáv­ar­fang á jóla­dag í fyrra en áður. Sá hópur svar­enda sem borðar græn­met­is­mat á jóla­dag hefur auk­ist tals­vert á síð­ustu árum en árið 2010 sögð­ust 0,6 pró­sent svar­enda neyta græn­met­is­fæðis á jóla­dag en í árið 2018 3 pró­sent. Þá kváð­ust 6 pró­sent þeirra sem voru í ald­urs­hópnum 18 til 29 ára ætla að gæða sér á græn­met­is­fæði.

Breki Karlsson, for­maður Neyt­enda­sam­tak­anna, hefur kallað eftir því að mat­ar­venjur Íslend­inga verði kann­aðar. Hann segir það löngu tíma­bært en síð­asta könnun var gerð fyrir rúmum ára­tug. Breki greindi frá því, í sam­tali við frétta­stofu Stöðvar 2, að í nágranna­löndum Íslands fjölgi hratt í hópi ungs fólks sem leggi áherslu á ýmis konar græn­met­is­fæði. Í nýlegri könnun sem gerð var í Svíþjóð kom fram að nú neytir um fjórð­ungur fólks þar í landi undir þrí­tugu græn­met­is­fæðis.

„Þetta er þróun sem ég hef heyrt að sé að byrja hér, við erum nokkrum árum á eftir Skand­in­avíu. Þetta er þróun sem fer undir rad­ar­inn hjá okkur af því að við gerum engar rann­sóknir til að kanna þessi mál,“ segir Breki.

Hann kallar því eftir því að gerðar verði víð­tækar neyt­enda­rann­sóknir hér á landi svo móta megi fram­tíð­ar­sýn um mat­ar­venjur lands­manna.

Komið á borð stjórnvalda

Kolefn­is­fót­spor mat­væla er ekki aðeins komið á borð fyr­ir­tækja og neyt­enda heldur einnig stjórn­valda. Í mat­ar­stefnu Reykja­vík­ur­borgar sem sam­þykkt var í maí 2018 segir að stór hluti los­unar gróðurhúsaloft­teg­unda vegna mat­væla­fram­leiðslu sé vegna kjötfram­leiðslu, mat­arsóunar og flutn­ings á mat. Í sam­ræmi við lofts­lags­mark­mið borg­ar­innar er gert ráð fyrir að minnka kolefn­is­spor borg­ar­innar og mæla árang­ur­inn reglu­lega. „Útreikn­ingur á losun vegna inn­kaupa og fram­leiðslu á mat eru flóknir og falla undir óbeina losun. Nokkrum þum­al­putta­reglum er þó hægt að fylgja; kolefn­is­spor minnkar við aukna neyslu fæðu úr jurt­aríkinu á kostnað dýraaf­urða, og flutn­ingar á matvöru með flugi hafa stórt fótspor sam­an­borið við skipa­flutn­inga,“ segir í stefn­unni.

Í stefn­unni má finna mark­mið um aukna neysla fæðu úr jurt­aríkinu í mötuneytum borg­ar­innar. Ein af aðgerðum til að ná því mark­miði er að græn­met­isréttir eða græn­met­isútgáfa af rétti dags­ins, standi til boða í öllum stærri mötuneytum borg­ar­innar. Samkvæmt stefn­unni á inn­leið­ing á aðgerð­inni á að hefj­ist á þessu ári.

Í matarstefnu Reykjavíkurborgar segir að stór hluti losunar gróðurhúsalofttegunda vegna matvælaframleiðslu sé vegna kjötframleiðslu, matarsóunar og flutnings á mat.
Í mat­ar­stefnu Reykja­vík­ur­borgar segir að stór hluti los­unar gróðurhúsaloft­teg­unda vegna mat­væla­fram­leiðslu sé vegna kjötfram­leiðslu, mat­arsóunar og flutn­ings á mat.

Í inn­kaupa­stefnu mat­væla fyrir rík­is­að­ila sem sam­þykkt var á fundi rík­i­s­tjórn­ar­innar síð­asta föstu­dag er tekið í svip­aðan streng. Í stefn­unni segir að íslenska ríkið kaupi mat­væli fyrir um þrjá millj­arða króna á ári og sem stór­kaup­andi geti það haft víð­tæk áhrif á eft­ir­spurn eftir mat­vælum, stuðlað að umhverf­is­vænni inn­kaupum og dregið úr kolefn­is­spori og eflt nýsköpun. Sjálf­bært matar­æði er í for­grunni í stefn­unni og tekið er fram að í opin­berum ráðlegg­ingum um matar­æði skal tekið með í reikn­ing­inn atriði eins og kolefn­is­spor mat­væla og auð­linda­notkun. Samkvæmt skýrsl­unni ein­kenn­ist sjálfbært matar­æði meðal ann­ars af meiri neyslu fæðis úr jurt­aríkinu en minni neyslu á rauðu kjöti, unnum kjötvörum og öðrum mikið unnum mat­vælum.

Í könnun starfshópsins sem vann inn­kaupa­stefn­una fyrir sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra kom fram að tæp 72 pró­sent pró­sent stofn­ana bjóða nú þegar upp á græn­met­isrétti viku­lega eða oftar og þar af tæp 36 pró­sent dag­lega. Tæp 30 pró­sent stofn­ana sögðust bjóða upp á veganrétti viku­lega eða oftar en 39 pró­sent aldrei. Í stefn­unni segir að æski­legt sé að boðið sé upp á græn­met­isrétti/veganrétti sem val­kost í mötuneytum.

Í nýrri loft­lags­stefn­u Stjórn­ar­ráðs­ins um sam­drátt í losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda og kolefn­is­jöfnun tíu ráðu­neyta má finna grein­ingu á kolefn­is­fótspori Stjórn­ar­ráðs­ins og aðgerðir til að draga úr því. Stjórn­ar­ráðið hyggst draga úr losun sinni á koltví­sýr­ing um sam­tals 40 pró­sent fyrir árið 2030. Ein af aðgerðum Stjórna­ráðs­ins til að draga úr losun er að hlutur græn­metis og fisks hefur verið auk­inn í mötu­neytum ráðu­neyt­anna með það í huga að draga úr neyslu á rauðu kjöti þar sem það veldur meiri losun koltví­sýr­ings en aðrir fæðu­flokkar.

Í innkaupastefnu stjórnvalda segir að íslenska ríkið kaupi matvæli fyrir um þrjá milljarða króna á ári og sem stórkaupandi getur það haft víðtæk áhrif á eftirspurn eftir matvælum, stuðlað að umhverfisvænni innkaupum og dregið úr kolefnisspori og eflt nýsköpun.
Í inn­kaupa­stefnu stjórn­valda segir að íslenska ríkið kaupi mat­væli fyrir um þrjá millj­arða króna á ári og sem stór­kaup­andi getur það haft víð­tæk áhrif á eft­ir­spurn eftir mat­vælum, stuðlað að umhverf­is­vænni inn­kaupum og dregið úr kolefn­is­spori og eflt nýsköpun.

Dapurlegt að minnkun kjötneyslu hafi ekki verið í aðgerðaáætluninni

Umhverf­is- og auð­linda­ráðu­­neytið kynnti í sept­­em­ber á síð­asta ári aðgerða­á­ætlun í loft­lags­­mál­um­. ­Sam­­kvæmt heima­­síð­u ráðu­­neyt­is­ins á áætl­­unin að vera horn­­steinn og leið­­ar­­ljós um útfærslu á stefnu stjórn­­­valda í mála­­flokkn­­um. Í heild voru settar fram 34 aðgerðir í áætl­un­inni en engin af þeim aðgerðum snýr að mat­ar­venjum fólks og hvergi í skýrsl­unni er minnst á vit­und­ar­vakn­ingu um kosti græn­ker­a­fæðis.

Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir, þing­kona Vinstri grænna, hélt stutt erindi á mál­þingi sem Samtök græn­kera á Íslandi stóðu fyrir í tengslum við Veganúar 2019.

Rósa Björk fjall­aði meðal ann­ars um aðgerðir stjórn­valda en hún minnt­ist á að það væri miður að ekki hefði verið komið inn á minnkun kjöt­neyslu í aðgerða­á­ætl­un­inni.

„Það er svo­lítið mikið dap­ur­legt að það sé ekki inn í aðgerða­á­ætlun rík­is­stjórnar um loft­lags­mál. En þetta er fyrsta skrefið. Þess vegna er það gríð­ar­lega mik­il­vægt að við sem erum hér og við sem erum á þingi sem höfum áhuga á þessum málum krefj­umst þess að þetta komi inn í næsta skrefi. Því þetta er tví­mæla­laust stór partur af því,“ sagði hún.

Rósa Björk nefndi jafn­framt að ríkið gæti notað alls­konar íviln­anir og nið­ur­greiðslur til að hvetja til betri neyslu­hátta. Hún nefndi þar skatta­kerfið sem öfl­ugt tæki til þess að nota til að hafa áhrif á neyslu­venjur og tal­aði hún þar til að mynda um syk­ur­skatt­inn. Að hennar mati ætti að nota þetta tæki í meira mæli, þar á meðal í nið­ur­greiðslu á raf­orku til græn­met­is­rækt­unar.

Sam­starfs­fé­lagi Rósu Andrés Ingi Jóns­son, þing­maður Vinstri grænna, hefur einnig vakið athygli á notkun skatta sem lið í aðgerðum gegn loft­lags­breyt­ingum. Í stöðu­upp­færslu á Facebook fyrr á þessu ári benti Andrés á að mögu­lega væri kjöt­skattur rök­rétt næsta skref, bæði til að bregð­ast við áhrifum á kjöt­neyslu á heilsu­far en ekki síður sem liður í aðgerðum gegn loft­lags­breyt­ingum af manna­völd­um. Hann benti jafn­framt á að hægt væri til dæmis að nota skatt­tekj­urnar til að hjálpa bændum að verða kolefn­is­hlut­laus­ir, ásamt því væri hægt að styðja bændur í að taka upp fram­leiðslu á græn­meti og fræða almenn­ing um breytta neyslu­hætti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár