Mynd: Bára Huld Beck

Óhófleg fatakaup Íslendinga draga dilk á eftir sér

Fatasóun Íslend­inga hefur auk­ist veru­lega á síð­ustu árum en árið 2016 henti hver íbúi hér á landi að með­al­tali 15 kílóum af textíl og skóm yfir árið. Það er nærri því tvö­falt meira magn en fjórum árum áður.

Vit­und­ar­vakn­ing hefur orðið um umhverf­is­mál hér á landi á und­an­förnum árum. Í nýlegri umhverfiskönnun Gallups sögð­ust tveir af hverjum þremur Íslend­ingum hafa breytt hegðun sinni til þess lág­marka áhrif á umhverfi og lofts­lags­breyt­ingar. Í neyslu­sam­fé­lagi nútím­ans er hægt að breyta mörgu í þeirri von að draga úr umhverf­is­fótspor­inu. Fólk hefur meðal ann­ars verið hvatt til að breyta ferða­venjum sínum, flokka meira, breyta matar­æði og kaupa minna.

Stjórn­völd hafa einnig aukið aðgerðir í umhverf­is­málum en núver­andi rík­is­stjórnin hefur meðal ann­ars kynnt aðgerða­á­ætlun í loft­lags­málum til næstu 12 ára. Rík­is­stjórnin hefur einnig sett sér stefnu þegar kemur að draga úr myndun úrgangs á Íslandi og þar með draga úr losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda. Í úrgangs­stefnu umhverf­is­ráðu­neyt­is­ins fyrir næstu sex ár verða ákveðnir úrgangs­flokkar í brennid­epli en þar á meðal er textílsóun. Á síð­ustu árum hefur orðið mikil aukn­ing í fata­sóun hér landi en árið 2016 hentu Íslend­ingar rúmum 5700 tonnum af textíl og skóm.

Hver Íslendingur hendir 15 kílóum af fötum

Árið 2016 henti hver Íslend­ingur að með­al­tali 15 kílóum af textíl og skóm yfir árið, sam­kvæmt sam­an­tekt umhverf­is­ráðu­neyt­is­ins. Það er nærri því tvö­falt meira magn en hver Íslend­ingur henti árið 2012 en þá henti hver íbúi að með­al­tali rúmum 8 kílóum á ári. Það er því gríð­ar­leg aukn­ing á fjórum árum. Inni­falið í þessum fimmtán kílóum er bæði magnið sem fer til end­ur­nýt­ingar og magnið sem ratar í bland­aðan úrgang og endar í flestum til­fellum í urðun. Samkvæmt Umhverf­is­stofnun fer 60 pró­sent af vefn­að­ar­vöru á Íslandi í ruslið og endar annað hvort í urðun eða brennslu. Aðeins 40 pró­sent fer í end­ur­notkun og end­ur­nýt­ingu.

3000 tonn send úr landi á hverju ári

Rauði kross­inn sér um að flokka og end­ur­vinna vefn­að­ar­vöru hér á landi en fata­söfnun er eitt mik­il­væg­asta fjár­öfl­un­ar­verk­efni sam­tak­anna. Á höf­uð­borg­ar­svæð­inu eru yfir 90 Rauða kross gámar sem taka við fötum og öðrum textíl. Fatnaður er síðan flokk­aður og gef­inn þurf­andi hér á landi sem og erlendis en sam­tökin úthluta fatn­aði til 1.500 ein­stak­linga á Íslandi á ári hverju, þar á meðal til Frú Ragn­heiðar, til hæl­is­leit­anda og ann­arra ein­stak­linga sem á þurfa að halda.

Auk þess selur Rauða kross­inn fatnað í versl­unum sínum víðs vegar um landið á lágu verði. Langstærsti hlut­inn af textílnum sem safn­að­ist í fata­söfnun Rauða Krossins er þó sendur í flokk­un­ar­stöðvar erlendis. Þaðan er textílnum síðan dreift til end­ur­sölu­að­ila eða settur í end­ur­nýt­ingu en ágóð­inn rennur í hjálp­ar­sjóð Rauða kross­ins.

Á síð­asta ári sendi Rauði kross­inn 3000 tonn af textíl erlendis, sam­kvæmt flokk­un­ar­stöð Rauða Krossins. Það er um 230, fjör­tíu feta, gámar á hverju ári, eða að með­al­tali fjórir og hálfur gámur í hverri viku.

Verslanir Rauða krossins á höfuðborgarsvæðinu eru fimm. Tvær á Laugaveginum, ein á Skólavörðustíg, ein í Mjóddinni og ein í Hafnarfirði. Einnig eru búðir á Akureyri, Húsavík, Borgarnesi, Eskifirði, Egilsstöðum, Stöðvarfirði og Hornafirði.
Versl­anir Rauða kross­ins á höf­uð­borg­ar­svæð­inu eru fimm. Tvær á Lauga­veg­inum, ein á Skóla­vörðu­stíg, ein í Mjódd­inni og ein í Hafn­ar­firði. Einnig eru búðir á Akureyri, Húsavík, Borg­ar­nesi, Eski­firði, Egils­stöðum, Stöðv­ar­firði og Horna­firði.

Sprenging í netverslun Íslendinga

Framboð á ódýrum fatn­aði hefur auk­ist til muna hér á landi en und­an­farin ár hafa fleiri versl­un­ar­keðjur opnað á Íslandi sem þekktar eru fyrir fram­leiðslu sem á ensku er kölluð „fast fas­hion“ og þýða mætti sem „einnota tísku“. Má þar nefna fata­keðj­urnar Lindex og H&M en slíkar versl­anir selja fatnað á lægra verði og gríð­ar­leg velta er á fata­úr­vali í búð­unum í hverjum mán­uði.

Á svip­uðum tíma hefur orðið gíf­ur­leg aukn­ing í net­verslun Íslend­inga og þá sér­stak­lega kaup á vörum frá útlöndum í gegnum alþjóð­legar vef­versl­anir. Í við­tali við tíma­ritið Umræðan sagði Vésteinn Við­ars­son, fyrrum vöru­stjóri pakka­send­inga hjá Íslands­pósti, að vatna­skil hafi orðið árið 2013 þegar Íslend­ing­ar upp­götv­uðu kín­versku net­versl­un­ina Ali­Ex­press og í fram­hald­inu aðrar sam­bæri­leg­ar vef­versl­an­ir. Frá árinu 2013 til árs­ins 2017 sjöföld­uð­ust send­ingar til lands­ins frá útlöndum en árið 2017 keyptu Íslend­ingar vörur frá erlendum net­versl­unum fyrir 4,3 millj­arða króna, sam­kvæmt toll­skrán­ingu frá Embætti toll­stjóra og toll­af­greiðslu Íslands­pósts. Sam­an­borið við kaup frá inn­lendum net­versl­unum fyrir 8,8 millj­arða á sama tíma.

Í

skýrslu

Rann­sókn­ar­set­urs versl­unar um íslenska net­verslun kemur fram að sá vöru­flokkur sem Íslend­ingar keyptu mest af frá erlendum net­versl­unum 2017 voru föt og skór. Á milli ára juk­ust fata­kaup frá erlendum fata­versl­unum um 31,4 pró­sent, ef bornir eru saman síð­ustu árs­fjórð­ungar 2016 og 2017. Í skýrsl­unni kemur einnig fram að Íslend­ingar kaupa mest af fötum frá Bret­landi en á síð­ustu árum hefur breska vef­versl­unin ASOS notið gríð­ar­lega vin­sælda um allan heim.

Rúmlega fjórir svona gámar fullir af notuðum fötum sendir úr landi í hverri viku
Rúmlega fjórir svona gámar fullir af not­uðum fötum sendir úr landi í hverri viku

Umhverfismengun fataiðnaðarins

Óhófleg fata­kaup og þá sér­stak­lega kaup á end­ing­ar­litlum fatn­aði dregur dilk á eftir sér. Nánast hver ein­asta flík sem keypt er á Íslandi, hvort sem hún endar í end­ur­vinnslu eða urðun, fylgir gríð­ar­legt umhverf­is­spor. Því fylgir tals­verð losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda að ferja fatnað til lands­ins en kolefn­is­fót­spor flík­ar­innar hefst miklu fyrr.

Umhverf­is­vanda­mál tengd fata­iðn­að­inum eru margs­konar því flíkur eru búnar til úr ólíkum efnum, bæði nátt­úru­legum efnum og til­búnum efnum sem fram­leidd eru úr hrá­olíu eins og akrýl, nælon og pólý­ester. Bómull er nátt­úr­legt efni sem er notað í næstum helm­ing allra flíka sem fram­leiddar eru í heim­inum en ræktun bómullar er jafn­framt ein sú ósjálf­bær­asta í heim­in­um í dag. Fram­leiðsla á aðeins einum bómullar stutt­erma­bol þarfn­ast tæp­lega 2700 lítra af vatni en það er sama magn og meðal mann­eskja drekkur á 900 dögum.

Bómull­ar­plantan er ekki aðeins frek á vatn heldur er efna­notkun í kringum ræktun hennar mikil en áburð­ar­notkun í bómull­ar­ræktun ein sú mesta sem ger­ist í land­bún­aði og um 12 pró­sent allrar notk­unar á skor­dýra­eitri í land­bún­aði er vegna bómull­ar­ræktar. Auk þess þarf ýmis eit­ur­efni og vatn til að lita flík­ina en afgang­inum af litnum er skolað í burtu og vatna­svæði taka við óhreins­uðu skólpi frá verk­smiðjum með til­heyr­andi áhrifum á líf­ríki og íbúa svæð­anna í kring.

Konur að vinna í fataverksmiðju í borginni Dezhou í Kína
Konur að vinna í fata­verk­smiðju í borg­inni Dezhou í Kína

Einnota tíska hefur rutt sér rúms í heim­inum á síð­ustu ára­tugu í kjöl­far alþjóð­legra versl­un­ar­keðja sem bjóða upp á skugga­lega ódýrar flíkur og stöðugt fram­boð. Þeirri tísku fylgir krafa um mjög ódýra og hraða fram­leiðslu og því neyð­ast verk­smiðjur til draga úr öllum auka kostn­aði sem getur haft þær afleið­ingar að ekki er hugað að umhverf­is­á­hrifum. Fram­leiðsla ódýrra fata er ekki aðeins meng­andi heldur veldur þetta gríð­ar­lega fram­boð því að fólk kaupir mun meira af end­ing­ar­litlum fatn­aði og hendir þeim í kjöl­farið hraðar.

Á Íslandi er talið að um 60 pró­sent af textíl endi í urðun en þegar föt úr nátt­úru­legum trefjum eins og bóm­ull og silki enda í land­fyll­ingu þá mynd­ast metan­gas sem veldur auknum gróð­ur­húsa­á­hrifum. Þar sem þessi föt eru einnig oft stút­full af eitr­uðum lit­ar­efnum þá henta þau ekki í moltu­gerð og geta mengað grunn­vatn ef land­fyll­ingin er ekki ein­angruð almenni­lega. Við brennslu geta þessi eit­ur­efni líka losnað út í and­rúms­loftið. Auk þess eru föt sem búin eru til úr hrá­olíu eins og pólý­ester og nælon í raun plast og því alls óvíst hvort þau brotni yfir­höfuð niður. Hin 40 pró­sentin sem enda í end­ur­vinnslu og eru flokkuð hjá Rauða kross­inum eru jafn­framt að langstærstum hluti send aftur út úr landi til end­ur­flokk­unar og sölu.

Fyr­ir utan þá margs kon­ar meng­un sem fram­leiðsla á fötum veldur, þá á fram­leiðslan sér einnig fleiri skugga­hliðar. Í nýlegri heim­ild­ar­mynd New York Times, Invisi­ble hands, er greint frá því hvernig fata­fram­leiðsla hefur meðal ann­ars ýtt und­ir man­sal og barna­þrælk­un. Auk þess hefur verið fjallað um á hræði­legar vinnu­að­stæður fólks í verk­smiðjum víða um heim í fjöl­miðlum og fjöl­mörg dæmi þess að verk­smiðjur stórra alþjóð­legra versl­un­ar­keðja hafa hrunið og fjöldi fólks dáið.

Markmiðið að draga úr fatasóun á hvern íbúa

Íslensk stjórn­völd hafa sett sér stefnu um myndun úrgangs um landið allt til tólf ára í senn. Markmið stefn­unnar er að draga úr úrgangi og draga þar með úr losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda. Auk þess er mark­miðið að bæta nýt­ingu auð­linda, meðal ann­ars með því að leggja áherslu á græna nýsköpun. Núver­andi úrgagns­stefna stjórn­valda, Saman gegn sóun, er stefna stjórn­valda fyrir tíma­bilið 2016 til 2027. Í stefnu­yf­ir­lýs­ing­unni eru ákveðnir úrgangs­flokkar í brennid­epli á hverju ári og ráð­gert er að verk­efni sem heyri undir þessa flokka verði til úti í sam­fé­lag­inu og á meðan hver flokkur er í for­gangi þá sé mögu­legt að sækja um verk­efna­styrki til ráðu­neyt­is­ins.

Í stefnu­yf­ir­lýs­ing­unni segir að úrgangs­for­varnir stjórn­valda snúa í rík­ara mæli að sjálf­bærri neyslu. Að allir geti sem neyt­endur lagt sitt til úrgangs­for­varna með því að staldra við og hugsa hvort ekki sé hægt að nýta hluti lengur, gera við þá eða gefa þá, svo þeir hljóti lengra líf. Á sama hátt geti fram­leið­endur og dreif­ing­ar­að­ila lagt sitt af mörkum við að mark­aðs­setja vörur sem hafa ásætt­an­legan end­ing­ar­tíma og mögu­legt er að gera við.

Textíl úrgangur verður í brennid­epli á næsta ári, sam­kvæmt stefnu­yf­ir­lýs­ing­unni. Í yfir­lýs­ing­unni kemur fram að á síð­ustu árum hafi orðið vit­und­ar­vakn­ing í fata­iðn­aði um efna­inni­hald í fatn­aði og aðra umhverf­is­lega ábyrgð iðn­að­ar­ins. Þá sjái umhverf­is­ráð­herra sér tæki­færi í því að styðja við enn frek­ari fram­farir og auka áhuga almenn­ings á mál­efn­inu. Í við­auka stefnu­yf­ir­lýs­ing­ar­innar kemur fram að mark­miðið stjórn­valda sé að draga úr magni textíls og skófatn­aðar á hvern íbúa í tíu kíló á hvern íbúa. En líkt og greint var frá hér að ofan þá henti hver íbúi 15 kílóum af textíl og skóm árið 2016.

Ráðuneytið þegar lagst í ráðstafanir

Í svari umhverf­is­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans um hvernig ráðu­neytið hyggst draga úr magni textíls og skófatn­aðar um fimm kíló á hvern íbúa, segir að ráðu­neytið hafi nú þegar lagst í nokkar ráð­staf­anir til að draga úr magni textílúr­gangs. Þar á meðal séu fata­safn­anir um land allt, auk þess hafi mál­fundur verið hald­inn um sjálf­bærni í tísku­iðn­aði og íslensk stjórn­völd hafi tekið þátt í nor­rænu verk­efni um textíl úrgangi. Í svar­inu segir að frek­ari ráð­staf­anir til draga úr fata­sóun hvers íbúa liggi ekki fyrir á þess­ari stundi en gera megi ráð fyrir að frekar ráð­staf­anir feli meðal ann­ars í sér aukna fræðslu og annan stuðn­ing við frek­ari end­ur­notkun fatn­aðar en sam­kvæmt ráðu­neyt­inu mun það skýrist betur á næsta ári hvernig verður tek­ist á við þessa teg­und úrgangs.

Í byrjun árs fékk Kven­fé­laga­sam­bands Íslands 1.325.000 króna styrk frá Umhverfis- og auð­linda­ráðu­neyt­inu fyrir verk­efnið sitt, Vit­und­ar­vakn­ing gegn sóun. Á heima­síðu Kven­fé­lags­sam­bands­ins segir að með styrk ráðu­neyt­is­ins muni sam­bandið halda áfram að hvetja kven­fé­lags­konur og almenn­ing að taka þátt í að minnka fata­sóun. Áfram verði vakin athygli á umhverf­is­á­hrifum fata­só­unar með fyr­ir­lestrum, við­burðum og greinum í Hús­freyj­unni og á vef Leið­bein­inga­stöðvar heim­il­anna. Auk þess verði næsti Umhverf­is­dagur hald­inn á Hall­veig­ar­stöðum þann 23. mars næst­kom­andi en þar verður fræðsla, fata­skipti­mark­aður, boðið upp á fata­við­gerðir og fleira tengt sóun.

Fataflokkunarstöð Rauða krossins
Fata­flokk­un­ar­stöð Rauða kross­ins

Ef draga á úr sóun, þarf að draga úr kaupum

Það er fagn­að­ar­efni að fata­sóun sé komin á dag­skrá stjórn­valda en því getur fylgt vit­und­ar­vakn­ing um fata­sóun hjá almenn­ing og fyr­ir­tækjum. Á hinn bóg­inn er ljóst að stór­tæk­ari breyt­inga er þörf af hendi stjórn­valda ef draga á veru­lega úr sóun Íslend­inga. Í febr­úar á þessu ári greindi BBC frá því að breskir þing­menn hafi lagt til að þeir sem fram­leiða og selja föt verði látnir greiða 1 penní eða um 1,5 krónur fyrir hverja flík sem seld er svo fjár­magna megi end­ur­vinnslu og förgun þar í landi. Auk þess hefur verið lagt til þar í landi að við­gerðir á fötum verði nið­ur­greiddar og sjálf­bær fram­leiðsla styrkt.

Í stefnu­yf­ir­lýs­ingu umhverf­is­ráð­herra er lagt til að skoð­aður verði grund­völlur fyrir sam­starfs­verk­efni með kaup­mönnum um að auka mark­aðs­hlut­deild fatn­aðar sem ber merk­ingar um vist­væna fram­leiðslu eða lágt inni­hald skað­legra efna, merk­ingar líkt og Svan­ur­inn, GOTS19 og Tiltro til tekstiller20.

Ábyrgð stjórn­valda er mikil þegar kemur að umhverf­is­málum en einnig geta ein­stak­lingar lagt sitt að mörkum til að draga úr sinni eigin fata­sóun og þar með umhverf­is­fótspori sínu. Á vef Umhverf­is­stofn­unar segir að hver Íslend­ingur kaupi sautján kíló af nýjum fötum á ári hverju, það er þrisvar sinnum meira en meðal jarð­ar­búi. Því er ljóst að Íslend­ingar þurfa að draga úr fata­kaupum ef draga á úr fata­sóun.

Í leið­bein­ingum frá Umhverf­is­stofnun er fólk hvatt til að kaupa flíkur úr betri gæðum í stað þess að kaupa ódýr og end­ing­ar­lítil föt. Auk þess sé nú orðið mun auð­veldra að kaupa notuð föt hér á landi en á síð­ustu árum hafa fata­mark­aðir sprottið upp um land allt. Að lokum leggur Umhverf­is­stofnun einnig mikla áherslu á að fólk fari með allan textíl, líka það sem er ónýtt, blettótt eða með götum í end­ur­vinnslu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár